Lífið

Spennan magnast í Rock Star

Magni Syngur bítlalagið Back in the U.S.S.R. og svo frumsamda lagið When the Time Comes.
Magni Syngur bítlalagið Back in the U.S.S.R. og svo frumsamda lagið When the Time Comes.

Í kvöld má reikna með að þorri íslensku þjóðarinnar sitji límdur fyrir framan sjónvarpsskjána þegar Rock Star: Supernova heldur áfram.

Magni "okkar" Ásgeirsson verður annar í röðinni og mun fyrst flytja bítlalagið Back in the U.S.S.R. en svo reynir hann fyrir sér með frumsamda lagið When the Time Comes.

Stjórnandi þáttarins, Dave Navarro, sá sig nauðbeygðan eftir síðasta þátt til að eyða nokkrum línum á bloggi sínu þar sem hann sagðist ekki "hata Magna". "Ég vil gera hreint fyrir mínum dyrum. Ég hata engan. Sá orðrómur hefur verið á kreiki að ég hati Magna en það er fáránlegt, ég hata engan og síst af öllum Magna enda þekki ég manninn ekki neitt," skrifar Navarro á bloggi sínu. "Mér finnst hann frábær söngvari líkt og allir aðrir sem eftir eru í keppninni," bætir gítarleikarinn við. "Ég hef aldrei sagt neitt neikvætt um frammistöðu hans en auðvitað á ég mitt uppáhald meðal hinna fimm."

Fimm keppendur eru nú eftir og væntanlega komast fjórir áfram í úrslitaþáttinn sem verður eftir viku. Á blogginu má sjá ýmsar hugleiðingar um hverjir standi eftir en einhverjum finnst sem bæði Dilönu og Lúkasi sé farið að fatast flugið. Eru flestir sem hallast að því að Storm eða Toby verði send heim eftir frammistöðu þeirra um helgina og ef tekið er mið af kosningabrjálæðinu sem gekk yfir Ísland í síðustu viku ætti Magni að eiga greiða leið inn í úrslitaþáttinn.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.