Krókódíla-Steve látinn 5. september 2006 14:30 Stingskata Stingskata varð Steve Irwin að bana í köfunarferð í gær.
Ástralska sjónvarpsstjarnan Steve Irwin, eða Krókódílaveiðimaðurinn, lést eftir að stingskata stakk hann í brjóstið í köfunarferð í gær.Irwin, sem var 44 ára gamall, var við vinnu á nýrri heimildarmynd um kóralrif undan ströndum Norðaustur-Queenslands, þegar atvikið átti sér stað. Irwin hafði helgað líf sitt gerð sjónvarpsefnis um krókódíla og önnur óargadýr og þótti mörgum hann vera einum of fífldjarfur í nágrenni villidýranna. Varð það honum að bana í gær þegar hann synti of nálægt einni skötunni. Hafa þær eitraðan gadd á halanum sem þær beita ósjálfrátt ef þær verða hræddar. Aðeins er þó vitað til þess að einn maður hafi látist af völdum skötunnar í Ástralíu, fyrir 61 ári. Irwin lést nær samstundis. Hann lætur eftir sig eiginkonu og tvö börn. Til merkis um fífldirsku Irwins þá vakti hann hörð viðbrögð víða um heim þegar hann hélt á eins mánaðar gömlum syni sínum aðeins einum metra frá krókódíl fyrir nokkrum árum. Töldu margir að hann hefði farið algjörlega yfir strikið með athæfinu. Irwin var þekktur fyrir sjónvarpsþátt sinn The Crocodile Hunter sem hefur verið sýndur á sjónvarpsstöðinni Animal Planet. Hann var einnig tíður gestur í kvöldþætti Jay Leno og átti þar auðvelt með að vekja athygli fólks á hinum ýmsu dýrum, enda afar hress náungi að eðlisfari. n
Menning Mest lesið Sér mest eftir fullyrðingum sínum um einhverfu Lífið Þingmönnum skyndilega bannað að hanga í stiganum við matsalinn Lífið Hvað veistu um… Björgvin Halldórsson? Lífið Stóri skandallinn, óvæntir sigurvegarar og ótvíræð taplið Menning Tvíburar sem búa saman, lærðu það sama og eignuðust börn á sama tíma Lífið Skrautlegt einvígi á Vistabella á Spáni Lífið Geralt fær nýtt ævintýri rúmum áratug eftir það síðasta Leikjavísir „Af hverju er ég að leita í eitthvað svona ljótt?“ Lífið Hver prjónuð peysa sendi skýr skilaboð til þolenda ofbeldis Tíska og hönnun Stjörnulífið: Berir að ofan í brúðkaupi Lífið Fleiri fréttir Þingmönnum skyndilega bannað að hanga í stiganum við matsalinn Hvað veistu um… Björgvin Halldórsson? Sér mest eftir fullyrðingum sínum um einhverfu Tvíburar sem búa saman, lærðu það sama og eignuðust börn á sama tíma Skrautlegt einvígi á Vistabella á Spáni „Af hverju er ég að leita í eitthvað svona ljótt?“ Frumkvöðull selur elegant íbúð í 101 Kveðjustund í ráðhúsinu Þegar yfirvöld gengust við fljúgandi furðuhlutum Óhefðbundið leynivopn Helgu Sigrúnar Nálægðin við dauðann gjörbreytti ferlinum Gói Sportrönd og Tinna selja í Hveragerði Móðurhlutverkið næst á dagskrá hjá Þóreyju Stjörnulífið: Berir að ofan í brúðkaupi Stórstjörnur tróðu upp í útskriftarveislum Verzlinga Áslaug lék eftir útskriftarpósu móður sinnar Draumabrúðkaup Gerðar við Garda-vatn Stjúpur og fjólur það heitasta Þeir lofuðu rokki en afhentu rækjusamloku á Þingvöllum „Formaður Sjálfstæðisflokksins átti eflaust flott úr“ Sagt að drulla sér heim þegar hún ætlaði að kjósa í fyrsta sinn Krakkatía vikunnar: Bein, Grettir og gúrkutíð Grafinn í sand í sólarhring Fréttatía vikunnar: Eldur, Karl III og Þjóðhátíð „Við erum bara tvö eftir“ Afi snýr aftur á litla sviði Þjóðleikhússins Allir fárveikir eftir tónlistarmyndband Helgi Björns og Ragga Gísla ætla að trylla lýðinn með tali og tónum „Ég viðurkenni alveg að ég mun sakna Tenerife“ Tilkynntu óvart dauða konungsins Sjá meira