Lífið

Norskt - íslenskt samstarf gefur sig vel

Ingvar Þórðarson  
Myndin hefur opnað þó nokkrar dyr fyrir kvikmyndafélagið Kisa á erlendri grundu.
Ingvar Þórðarson Myndin hefur opnað þó nokkrar dyr fyrir kvikmyndafélagið Kisa á erlendri grundu.

Norsk - íslenska myndin The Bothersome Man hefur heldur betur slegið í gegn en hún var að mestu leyti tekin upp hér á Íslandi. Þeir Ingvar Þórðarson og Júlíus Kemp hjá Kisi ehf. eru meðframleiðendur myndarinnar en hún segir frá fertugum norðmanni sem kemur til undarlegrar borgar og uppgötvar að hann er staddur í lífinu eftir dauðann.

Myndin hefur þegar unnið til nokkurra verðlauna, þar á meðal gagnrýnendaverðlaunin ACID í Cannes og leikstjóraverðlaunin á Karlov Vary - hátíðinni í Tékklandi. Þá mun The Bothersome Man einnig vera þátttakandi á hinni virtu Toronto - kvikmyndahátíð þar sem hún verður sýnd í World Cinema og Discovery flokknum.

Ingvar Þórðarson var að vonum mjög ánægður með þær viðtökur sem myndin hefur fengið en reiknað er með að hún verði frumsýnd hér á landi í kringum jólin. Hún er að rúlla þessu upp, sagði Ingvar. Hún styrkir okkur mjög mikið erlendis og hefur opnað nokkrar dyr að frekari verkefnum í útlöndum, bætti Ingvar við en vildi ekki gefa upp hvað væri í sjónmáli, það myndi skýrist á allra næstu dögum. Kisi framleiðir einnig Astrópíu sem Gunnar Björn Guðmundsson leikstýrir en tökum á henni er nýlega lokið. Unnið er að því að klippa myndina og er Þorvaldur Bjarni Þorvaldsson á fullu við að semja tónlist við hana en hann fær rjómann úr íslensku tónlistarlífi til að flytja lög eftir sig í myndinni. Hún lítur mjög vel út, er algjörlega einstök á íslenskan mælikvarða.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.