Lífið

Kristján kveður Kastljós og heilsar Kauphöll

Kristján kristjánsson
Kveður samstarfsfólk sitt með tár á hvarmi.
Kristján kristjánsson Kveður samstarfsfólk sitt með tár á hvarmi.

"Hærri laun? Þú verður bara að giska á það sjálfur. Ég ætla ekki að tjá mig um mín prívatmál. En ég held að allir viti að Ríkissjónvarpið er nú ekki það fyrirtæki sem borgar best launin. En það er margt annað sem skiptir máli," segir Kristján Kristjánsson sjónvarpsmaður.

Kristján er nú að söðla um. Hann er að hætta á Kastljósi Ríkissjónvarpsins og tekur við starfi hjá FL Group. Á laugardag greindi Fréttablaðið frá því að að Helgi Seljan væri að hefja störf í Kastljósi en frá því var gengið á fimmtudaginn að Kristján væri að hætta í þættinum. Því má ljóst vera að þeir Páll Magnússon sjónvarpsstjóri og Þórhallur Gunnarsson, ritstjóri Kastljóss, hafa ekki haft neinar vöflur á og verið fljótir að festa öngla sína í Helga sem arftaka Kristjáns.

"Já, þeir voru snöggir að því þegar ákvörðun mín lá fyrir. Enda vanir menn," segir Kristján.

Nákvæm starfslýsing Kristjáns hjá FL Group liggur ekki fyrir. Kristján segir það allt koma betur í ljós þegar hann hefur störf hjá fyrirtækinu.

"Ljóst er að ég er ekki talsmaður eða upplýsingafulltrúi í þeim skilningi enda FL Group ekki á neytendamarkaði. En starf mitt lýtur meðal annars að upplýsingum, ímynd, markaðsmálum og samskiptum við Kauphöll."

Kristán er síður en svo grænjaxl í málefnum er snúa að viðskiptalífinu því hann starfaði í mörg ár á Viðskiptablaðinu. Og nú kveður hann Kastljósið eftir sex ár. Með söknuði og tár á hvarmi.

"Það segir sig sjálft. Frábær hópur og afspyrnugott fólk á öllum póstum. Bæði þeir sem vinna baksviðs og þeir sem á skjánum eru. Reyndar má segja svo um allt mitt samstarfsfólk á Ríkissjónvarpinu og undanskil ég þar engan."






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.