Atvinnumál og alþjóðavæðing 5. september 2006 15:15 Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir Fyrsta vetrarfundur Femínistafélags Íslands fjallar um atvinnumál kvenna í tengslum við alþjóðavæðingu. MYND/Teitur
Fyrsti opni vetrarfundur Femínistafélags Íslands fer fram á Thorvaldsen Bar í kvöld en þar verður rætt um málefni kvenna í tengslum við hnattvæðingu og atvinnumál. "Umræðuefni kvöldsins er raunar tvíþætt," útskýrir Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir hjá Femínistafélaginu. "Annars vegar hefur verið rætt talsvert undanfarið um málefni tveggja erlendra kvenna sem neitað var um dvalarleyfi hér á landi eftir að hafa komið úr ofbeldisfullum hjónaböndum með íslenskum mönnum og hins vegar hafa skapast líflegar umræður um heimilishjálp á póstlista Femínistafélagsins og því munum við helga þetta fyrsta "hitt" alþjóðavæðingu og kynjavídd hennar." Steinunn bendir á að margar erlendar konur hafi tekið að sér þrif á heimilum Íslendinga en slík vinna sé oft ekki gefin upp og því njóti slíkir starfskraftar ekki trygginga og réttinda sem lögleg atvinna veitir. "Þetta er áhugavert í samhengi við baráttu verkalýðsfélaganna sem hafa undanfarið barist gegn undirboðum og svartri vinnu. Þar er í langflestum tilvikum um karlastörf að ræða en konur hafa verið í meirihluta erlends vinnuafls hér á landi þar til virkjunarframkvæmdirnar fóru í gang. "Mér að vitandi hefur ekki verið gerð úttekt eða rannsókn á þessum óopinbera geira atvinnumarkaðarins hérlendis og því er ekki hægt að segja til um hversu algengt þetta er," útskýrir Steinunn. Frummælendur á fundinum í kvöld verða Silja Bára Ómarsdóttir, forstöðumaður Alþjóðamálastofnunar Háskóla Íslands, sem mun fjalla um alþjóðavæðinguna og áhrif hennar á stöðu kvenna; Tatjana Latinovic, formaður Félags kvenna af erlendum uppruna, ræðir um stöðuna hér á landi og hvernig okkur tekst að gera Ísland að fjölmenningarsamfélagi og að lokum mun Margrét Steinarsdóttir, lögfræðingur hjá Alþjóðahúsi, fjalla um lagalegar hliðar og mál þau sem koma til kasta Alþjóðahússins. Fundurinn er öllum opinn en hann hefst kl. 20 í Bertelstofu en að loknum erindum verða umræður þar sem gestum gefst gott tækifæri til að kryfja málin.
Menning Mest lesið „Kjóllinn markaði nýtt upphaf í mínu lífi“ Tíska og hönnun Syrgja Arnar Atla sem lést 24 ára gamall Lífið Leggur til að hætt verði lestri kveðja við útfarir Lífið Lét drauminn rætast á Ítalíu Lífið Kominn á toppinn Lífið Hjartað slær í Hafnarfirði: „Við erum búin að sprengja það alveg utan af okkur“ Tónlist Nýr grillþáttur fer í loftið á þriðjudag Lífið samstarf Nálgast hundrað þúsund fylgjendur á Instagram og rekur sveitahótel Lífið Orion tannlæknastofa stækkar og opnar stofu á 5 stjörnu hóteli í miðbæ Búdapest Lífið samstarf Hvað veistu um... Ross í Friends? Lífið Fleiri fréttir Kominn á toppinn Leggur til að hætt verði lestri kveðja við útfarir Lét drauminn rætast á Ítalíu Syrgja Arnar Atla sem lést 24 ára gamall Nálgast hundrað þúsund fylgjendur á Instagram og rekur sveitahótel Sindri gerðist trukkabílstjóri Piparmeyjan Paul mæti á skjáinn í júlí Laufey óskar ástinni sinni til hamingju með daginn Kolfinna Nikulás og Sturla Atlas halda á ný mið Greta Salóme á von á sínu þriðja Bónorð yfir síðum bjór á Brooklyn-brúnni Ungir veiðimenn nutu sín í sólinni Hvað veistu um... Ross í Friends? GusGus drottning og frú selja í Hafnarfirði „Þetta átti allt að gerast og ég er þakklát í dag“ Athafnahjón selja sjarmerandi hús í Vesturbæ Ólík túlkun listamanna á Reykjavík í tvær aldir „Ég vil gera frábæra hluti eins og ég sé í sjónvarpinu“ Jóhann Örn fulltrúi Íslands í Mr. Bear Europe Þrastahreiður í Garðabæ í beinni Kjarnorkuverkfræði-draumurinn rætist í París Gugga gestur í afmælisboði Kanye West Söguleg skiltaskipti á Ölstofunni Urður trúlofuð og mætt aftur á Instagram „Grét meðan verið var að dæla í mig blóðinu” Fjárfestir og fyrirsæta selur útsýnisíbúð Útskiptin miklu og svikula elítan Stjörnulífið: Halla og Eiður Smári ástfangin á Þingvöllum Jökull í Kaleo kynnti nýju kærustuna Kúrekahattar, sólskinsbros og forsetahjón í banastuði á Þingvöllum Sjá meira