Lífið

Hugmyndaríkur prjónastrákur

Guðmundur er aðeins 19 ára gamall en hefur nú þegar vakið mikla athygli fyrir peysurnar sem hann hannar sem seldar eru í versluninni Kronkron
Guðmundur er aðeins 19 ára gamall en hefur nú þegar vakið mikla athygli fyrir peysurnar sem hann hannar sem seldar eru í versluninni Kronkron

Ég er gjörsamlega sneyddur öllu tískuviti. Þetta bara gerðist alveg ósjálfrátt að ég leiddist út í þennan bransa, segir Guðmundur Hallgrímsson betur þekktur sem Mundi en peysur eftir hann eru seldar í versluninni Kronkron og hafa vakið mikla athygli. Peysurnar eru síðar ullarpeysur með stórri hettur og kraga með skemmtilegu munstri sem sýnir tvo geimfara leiðast. Munstrið á að sýna þyngdarleysi og spratt hugmyndin þegar ég var að horfa á HeMan í sjónvarpinu og byrjaðu að rissa þetta niður á blað.

Svo vatt þetta bara upp á sig og allt í einu er ég þekktur sem fatahönnuður. Gott dæmi um hvernig góðar hugmyndir geta þróast á óvæntan hátt. Mundi prjónar ekki sjálfur og fer að hlæja þegar blaðamaður spyr hann um það. Ég læt konu á saumastofunni Janus prjóna allt fyrir mig enda hef ég ekkert vit á svona hlutum. Munda finnst íslenska ullin vera vanmetið efni og segir peysurnar sínar vera hlýjar og góðar og 66¨norður ætti bara að fara að vara sig. Allar peysurnar mínar eru fóðraðar með flís efni því aðal vandamálið með ullina eru hvað hún stingur mikið.

Mundi er aðeins 19 ára gamall og er á öðru ári í námi í grafískri hönnun við Listaháskóla Íslands. Hann komst inn með undanþágu enda ekki búin með stúdenstpróf. Ég lét bara á þetta reyna án þess að vera með neinar væntingar en þetta gekk í gegn mér til mikillar gleði og undrunar, segir Mundi en hann hefur ekki hug á flytja sig yfir í fatahönnunardeildina enda segist hann vera fyrst og fremst listamaður sem hefur gaman af gera allskyns munstur. Ég ætla að halda hönnun minni áfram undir Mundi Design og svo er aldrei að vita hvað framtíðin ber í skauti sér, segir þessi fjölhæfi ungi listamaður að lokum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.