Madonna léleg í Danmörku 28. ágúst 2006 12:45 Krossfestingin fór ekki fyrir brjóstið á dönskum áhorfendum enda sagði Politiken að réttast hefði verið að endurgreiða miðana vegna slakrar frammistöðu poppdívunnar. MYND/Getty
Tónleikaferð poppdívunnar Madonnu hefur verið mikið til umfjöllunar í erlendum fjölmiðlum enda gengst poppdrottningin upp í því að hneyskla viðstadda. Frændur okkar Danir voru ekki par hrifnir af frammistöðu hennar. Tónlistargagnrýnendur danskra fjölmiðla létu gamminn geysa í gær eftir tónleika Madonnu í Horsens á Jótlandi. Eru þeir sammála um að frammistaða hennar hafi valdið vonbrigðum og eins fá tónleikaskipuleggjendur skömm í hattinn því lítill hluti tónleikagesta á að hafa séð almennilega uppá svið. Hljóðkerfið var ekki uppá marga fiska og því yfirgnæfðu harmakvein pirraðra tónleikagesta tónlistina. Fá tónleikanir aðeins eitt hjarta af sex í gagnrýni Politiken og segir þar að réttast væri að endurgreiða miðana líkt og gert er í bíó þegar filman bilar en miðarnir kostuðu 700 danskar krónur. Ekstrablaðið segir tónleikana hafa verið hneyksli og segist finna til með Rolling Stones sem þurfi að standa á þessu sama sviði í næstu viku. Samúðin sé þó enn meiri með aðdáendum hljómsveitarinnar sem þurfi að sætta sig við svo slæman aðbúnað. Blaðamaður Berlingske tidende er ögn jákvæðari og gefur sviðinu sjálfu fullt hús en söngkonunni aðeins tvær. Segir hann tónleikana hafa minnt á leiksýningu þar sem allt er þaulæft og engin leið að fara út fyrir handritið. Eins hafi predikun hennar um trúarbrögð og stjórnmál misst marks. En veitingamenn og búðareigendur í Horsens eru vafalítið sáttir við sitt enda ruku Madonnuréttirnir, brauðin og kokteilanir út fyrir tónleikana. Þó frammistaða söngkonunnar hafi sennilega spillt fyrir sölunni eftir þá.
Menning Mest lesið Eitt myndband selji upp heilu lagerana Menning Barbie-framhald í uppnámi vegna launakrafa Lífið Fréttatía vikunnar: Björk, Usher og peningaþvætti Lífið Dorrit sendir rabbínanum tóninn Lífið Hjartnæm athöfn þegar Gunnar Þórðarson var jarðsunginn Lífið Hálfsextugur Hamm að verða pabbi í fyrsta sinn Lífið Robbie Williams einhverfur Lífið „Sterklega orðaður“ við Bond og efstur hjá veðbönkum Bíó og sjónvarp Vinsælasta ABBA-sýning heims í Hörpu og Hofi Lífið samstarf Jóhanna Guðrún ólétt Lífið Fleiri fréttir Fréttatía vikunnar: Björk, Usher og peningaþvætti Barbie-framhald í uppnámi vegna launakrafa Robbie Williams einhverfur Hálfsextugur Hamm að verða pabbi í fyrsta sinn Hjartnæm athöfn þegar Gunnar Þórðarson var jarðsunginn Dorrit sendir rabbínanum tóninn Berskjölduð og óttaslegin eftir skilnaðinn og framtíðin óráðin Jóhanna Guðrún ólétt Útför Gunnars Þórðarsonar Dreymir um að halda næstu Kaleo-tónleika á Vestfjörðum Emmsjé edrú í sjö ár Fór á skeljarnar undir almyrkvanum Einelti kvenna á vinnustað lúmskt og einkennist af gaslýsingu Hvað veistu um… kirkjur á Íslandi? Þjóðir sem eigi í vopnuðum átökum megi ekki halda Eurovision Guðni var lokaður inni í síðasta almyrkva: „Ég man þennan morgun enn“ Móðir Perezar Hilton sækir um tímabundið forræði yfir börnunum Jói Pé og Molly selja skrifstofuhæð innréttaða sem íbúð OnlyFans-stjarna dæmd fyrir að stinga kærastann til bana Ocasio-Cortez á lausu Frægustu mágar landsins Office-stjarna með ólæknandi krabbamein Pálmi Kormákur og Guðrún nýtt par Selja útsýnishús með saunu og sjóvatnspotti Usher þvertekur fyrir klónið „Það er engin skömm í krabbameininu“ Dottinn í það á ný: „Ég var edrú í sjö ár“ Einstakt einbýlishús á 235 milljónir í Garðabæ Gugga á Þjóðhátíð: „Er þetta leigubíll? Nei, þetta er pó-pó“ Urður yfirgefur Kastljós Sjá meira