Fetar í fótspor föður síns 27. ágúst 2006 18:00 Í þá gömlu góðu Helgi Pétursson, Ólafur Þórðarson og Ágúst Atlason skipa Ríó tríóið.
Hljómsveitin Sprengjuhöllin, með Snorra Helgason á gítar, sýndi stórksemmtileg tilþrif í Kastljósinu á fimmtudagskvöldinu. Snorri á ekki langt að sækja hæfileikana en hann er sonur Helga Pé úr Ríó tríóinu. „Pabbi kenndi mér nú ekki á gítarinn heldur lærði ég bara á hann sjálfur,“ sagði Snorri þegar Fréttablaðið ræddi við hann. Hanni segist ekki vita til þess að hafa orðið fyrir áhrifum frá Ríó tríóinu em: „Það hlýtur að hafa einhver áhrif þegar tónlistin er alltaf hljómandi í kring.“ Gítarleikarinn knái segist að sjálfsögðu hlusta á lög Ríó tríósins. „Auðvitað hlusta ég. Ég má heldur ekki segja neitt annað,“ segir Snorri hlæjandi. Spurður hvert sé uppáhaldslagið hans með Ríó tríó segir hann: „Þeir eiga nokkra góða smelli en það er erfitt að velja á milli.“ Helgi Pé hefur fylgst grannt með Snorra og Sprengjuhöllinni. „Mér finnst þetta glaðlegt og skemmtilegt hjá þeim. Melódísk lög með fínum textum og það er gaman að þeir skuli semja allt sjálfir. Mér sýnist þeir vera að skapa sinn eigin stíl,“ segir Helgi. „Þeir eru líka duglegir sem er gott. Því þetta kemur allt með æfingunni og það segi ég af gamalli reynslu.“ Þeir feðgar hafa einu sinni troðið upp saman með Ríó tríóinu en það var þegar móðir Snorra fagnaði fimmtugsafmæli sínu. „Það gekk ljómandi vel en við höfum ekki verið að troða mikið upp saman enda erum við að ferðast á ólíkum slóðum í tónlistinni,“ segir Helgi. Bassaleikarinn segir soninn ekki hafa sýnt tónlistinni mikinn áhuga þegar hann var yngri. „Öll eldri systkinin hans þrjú fóru í tónlistarnám, bæði á píanó og í söng en ekkert þeirra hefur sinnt því frekar. Snorri byrjaði hins vegar bara upp úr þurru þegar hann seildist í gítar bróður síns þegar hann var fimmtán ára,“ segir Helgi. „Óli vinur minn úr Ríóinu kenndi hins vegar tónmennt í Hlíðaskóla þegar Snorri var að fara þar í gegn. Og þó ég hefði ekki séð þess merki að Snorri ætlaði í tónlistina tók Óli eftir því. „Það er músík í þessum strák,“ sagði hann og það hefur gengið eftir.“ Helgi segir Snorra og félaga í Sprengjuhöllinni ekki vera beint í Ríó tríó stílnum. „Hann hefur samt verið að hlusta á mikið af því sem ég hlustaði sjálfur á, svo sem Kinks og The Band og hann tekur Dylan í nefið. Svo við erum kannski ekki svo langt frá hvor öðrum í tónlistinni.“
Menning Mest lesið „Þetta er bara nútímavændi“ Lífið Krefst þess að Elvar greiði sér miskabætur vegna hljóðbúts Lífið Ungfrú Ísland teymið svarar fyrir sig Lífið Thelma og Sveinn Aron sjóðheitt par Lífið Sendi nýrri kærustu kveðju í stúkuna Lífið Eyddi mörgum árum í að fela það sem aðrir tóku varla eftir Lífið Danski leikstjórinn setti vini sínum afarkosti Lífið Seiðandi Alaska heillaði gesti upp úr skónum Tónlist Stjörnulífið: Heitustu skvísur landsins mála Ibiza rauða Lífið „Eins og þegar einangrunarplasti er strokið eftir glerrúðu“ Lífið Fleiri fréttir Thelma og Sveinn Aron sjóðheitt par „Þetta er bara nútímavændi“ Sendi nýrri kærustu kveðju í stúkuna Stökk Ulrike Meinhof í heim hryðjuverkanna „Eins og þegar einangrunarplasti er strokið eftir glerrúðu“ Krabbameinið það besta sem hafi komið fyrir hann Dorrit þvoði hárið í íslenskri náttúru Danski leikstjórinn setti vini sínum afarkosti Stjörnulífið: Heitustu skvísur landsins mála Ibiza rauða Ungfrú Ísland teymið svarar fyrir sig Krefst þess að Elvar greiði sér miskabætur vegna hljóðbúts Fimmtug hjón vilja swinga með vinahjónum sínum Eyddi mörgum árum í að fela það sem aðrir tóku varla eftir „Bókmenntalegir palladómar frá mér ekki mikils virði“ Krakkatía vikunnar: Tjútt, tjull og feitir bangsar Sleppti því að þrífa símann í viku og niðurstaðan kom á óvart „Þegar ég syng finn ég mest fyrir pabba“ Fréttatía vikunnar: Kíró, tár og ræningjarenna Segir stjórnendur Ungfrú Ísland hafa gert upp á milli keppenda Taka upp Netflix þætti í miðbænum og Tina Fey óvæntur gestur Laug um að Jay-Z hefði nauðgað henni „Bjóða upp á einhverja díla sem meika engan sens og undirbjóða allt“ „Það voru margir með tár á hvarmi“ Svín út um allt í fallegu einbýli Björns Braga Margot Robbie ekki lengur Margot Robbie Hvað veistu um… kvikmyndahátíðir? Kærasta Love Island stjörnunnar Davide í fangelsi Birgitta mætti sem fimleikakona, markmaður, leikmaður og þjálfari Taylor og Taylor nefndu barnið Taylor Þú trúir ekki hvað lögreglan gerði við sönnunargagnið Sjá meira