Syngur með sínu nefi á Gljúfrasteini 26. ágúst 2006 12:00 Guðný dóra gestsdóttir Framkvæmdastjóri safnsins á Gljúfrasteini segir að oft hafi verið setið víða um húsið á stofutónleikum en enginn hafi kvartað enda sé hljómburðurinn einstaklega góður.
Stofutónleikaröðin á Gljúfrasteini í sumar hefur verið með eindæmum vel sótt. Píanóleikarinn kunni Jónas Ingimundarson lýkur tónleikaröðinni á morgun og hyggst fara mjúkum höndum um flygil Nóbelskáldsins. "Auðvitað er heiður fyrir mig að fá að syngja með mínu nefi í stofu Laxness," segir Jónas Ingimundarson píanóleikari um tónleikana á morgun. Hann ætlar að flytja verk eftir Mozart og Schumann og segir að vel hafi þurft að vanda til verka við val á efnisskránni. "Þetta eru verk sem eru kliðmjúk og látlaus en yndisleg, og ekki við hæfi að spila eitthvað hávaðasamt inni í stofu. Ég valdi þessi verk einnig vegna þess að þetta er falleg músík sem mér þykir gaman að," segir Jónas og bætir við að bæði tónskáldin eigi árið í ár, því 250 ár séu liðin frá fæðingu Mozarts og 150 ár frá því að Schumann dó. Aðspurður um hvernig nálægðin í stofunni hafi áhrif á hljóðfæraleikarann segist Jónas vera gamall refur sem hafi spilað við allar mögulegar aðstæður. "Þetta hefur bara sinn sjarma og er auðvitað ekki konsert í þeim skilningi," bætir hann við. "Það er nú ekki algengt að vera með opinberan tónlistarflutning í svona heimahúsi, en auðvitað afskaplega passandi inni í þessu og alveg aðdáunarvert og fallegt að hafa þetta svona á sunnudögum yfir sumarið." Flygillinn sem Jónas leikur á var í eigu Halldórs Laxness og er því sögufrægur gripur. "Ég hef sest við flygilinn og efast ekki um að hann er tilbúinn að taka á móti manni. Ég fór þangað um daginn og gat ekki fundið neitt annað en að hann heilsaði mér með brosi. Svo nú er bara mitt að klappa honum og reyna að lokka út sönginn og ylinn úr honum," segir Jónas Ingimundarson píanóleikari. Guðný Dóra Gestsdóttir, framkvæmdastjóri Gljúfrasteins - húss skáldsins, segir það mikinn heiður fyrir safnið að fá Jónas Ingimundarson til að ljúka stofutónleikaröðinni. "Þetta hefur gengið framar vonum, verið mjög vel sótt og fólk hefur verið ánægt," segir Guðný Dóra og bætir við að starfslið Gljúfrasteins sé staðráðið í að taka upp þráðinn næsta sumar og bjóða upp á fleiri tónleika í stofunni. Anna Guðný Guðmundsdóttir píanóleikari var fengin til að vera sérlegur tónlistarráðgjafi stofutónleikaraðarinnar en oft voru haldnir stofutónleikar á meðan Halldór Laxness bjó á Gljúfrasteini. Milli sjötíu og áttatíu manns hafa hlýtt á fjölsóttustu stofutónleikana. "Þá er setið hérna í stiganum, frammi á gangi, staðið aftast og alls staðar þar sem er pláss. Hingað til hefur þó enginn kvartað yfir sætinu því hljómburðurinn er svo góður hérna. Það er viðarklæðning í stofunni sem virkar mjög vel þannig að ég hef alla vega setið frammi í stiganum á mörgum tónleikum og heyrt mjög vel," bætir Guðný Dóra við. Stofutónleikarnir á morgun hefjast klukkan 16 og er aðgangseyrir fimm hundruð krónur.
Menning Mest lesið Eitt myndband selji upp heilu lagerana Menning Barbie-framhald í uppnámi vegna launakrafa Lífið Fréttatía vikunnar: Björk, Usher og peningaþvætti Lífið Dorrit sendir rabbínanum tóninn Lífið „Sterklega orðaður“ við Bond og efstur hjá veðbönkum Bíó og sjónvarp Hálfsextugur Hamm að verða pabbi í fyrsta sinn Lífið Hjartnæm athöfn þegar Gunnar Þórðarson var jarðsunginn Lífið Robbie Williams einhverfur Lífið Elti draumana til London og tók sjálfa sig í sátt Tónlist Vinsælasta ABBA-sýning heims í Hörpu og Hofi Lífið samstarf Fleiri fréttir Fréttatía vikunnar: Björk, Usher og peningaþvætti Barbie-framhald í uppnámi vegna launakrafa Robbie Williams einhverfur Hálfsextugur Hamm að verða pabbi í fyrsta sinn Hjartnæm athöfn þegar Gunnar Þórðarson var jarðsunginn Dorrit sendir rabbínanum tóninn Berskjölduð og óttaslegin eftir skilnaðinn og framtíðin óráðin Jóhanna Guðrún ólétt Útför Gunnars Þórðarsonar Dreymir um að halda næstu Kaleo-tónleika á Vestfjörðum Emmsjé edrú í sjö ár Fór á skeljarnar undir almyrkvanum Einelti kvenna á vinnustað lúmskt og einkennist af gaslýsingu Hvað veistu um… kirkjur á Íslandi? Þjóðir sem eigi í vopnuðum átökum megi ekki halda Eurovision Guðni var lokaður inni í síðasta almyrkva: „Ég man þennan morgun enn“ Móðir Perezar Hilton sækir um tímabundið forræði yfir börnunum Jói Pé og Molly selja skrifstofuhæð innréttaða sem íbúð OnlyFans-stjarna dæmd fyrir að stinga kærastann til bana Ocasio-Cortez á lausu Frægustu mágar landsins Office-stjarna með ólæknandi krabbamein Pálmi Kormákur og Guðrún nýtt par Selja útsýnishús með saunu og sjóvatnspotti Usher þvertekur fyrir klónið „Það er engin skömm í krabbameininu“ Dottinn í það á ný: „Ég var edrú í sjö ár“ Einstakt einbýlishús á 235 milljónir í Garðabæ Gugga á Þjóðhátíð: „Er þetta leigubíll? Nei, þetta er pó-pó“ Urður yfirgefur Kastljós Sjá meira