Lífið

Feta í fótspor sniglabandsins

Útvarpsmennirnir Andri Freyr Viðarsson, Búi Bendtsen og Doddi litli hafa stofnað nýja hljómsveit ásamt Geir Ólafssyni. Hljómsveitin ber nafnið Tríó Briggs og gullvagninn og leika drengirnir óskalög fyrir hlustendur á útvarðsstöðinni X-FM á föstudagsmorgnum.

"Þetta er svona rakarakvartett. Ég, Doddi og Búi vorum búnir að prófa okkur áfram enda er Doddi svo helvíti góður í þessu. Hann var líka einu sinni í svona bandi," segir Freysi.

Útvarpsmennirnir þrír hafa allir komið áður að tónlistargerð áður. Freysi var í hljómsveitinni Fídel, Búi er í Brain Police og Doddi litli er einnig þekktur sem Love Guru. Tríó Briggs mynda útvarpsmennirnir þrír en gullvagninn er sjálfur Geir Ólafsson. Freysi segir að Geir hafi komið seinna inn í hljómsveitina. "Geir hringdi í Búa og sagðist vera með í sveitinni. Hann var í raun aldrei spurður en það segir sig sjálft að hann verði með," segir Freysi.

Þegar drengirnir léku í útvarpinu í gær var Geir þó fjarri góðu gamni - hann hafði gleymt sér. "Hann syngur bara í gegnum símann," segir Freysi. "Hann ætlar samt að fara mæta og verður með næsta föstudag."

Tríó Briggs og gullvagninn feta í fótspor Sniglabandsins sem leikið hefur óskalög hlustenda í beinni útsendingu á Rás 2 um árabil. "Við erum að reyna að feisa þá með okkar version. Það er heldur ekkert vesen á okkur því við erum ekki með nein hljóðfæri heldur teljum bara í."

Áður en kvartettinn leikur óskalög hita þeir hlustendur upp. "Þá leikum við svona klassíkera eins og Obladí, In the middle of the night og Sandman," segir Freysi sem útilokar ekki útgáfu á efni sveitarinnar. "Ef þetta gengur vel er aldrei að vita. Fólk tekur að minnsta kosti vel í þetta. Það er líka alveg kjörið ef 12 tónar vilja gefa okkur út því þá getum við haldið tónleika í búðinni þeirra."






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.