Kvikmyndaveislurnar hefjast 24. ágúst 2006 13:30 Sérstakt málþing verður haldið um mannréttindi og kvikmyndir á vegum Reykjavík Film Festival.
Á næstu mánuðum verða kvikmyndahúsin laus við alla Hollywood-stælana og markaðsetningu því á haustmánuðum gefst borgarbúum tækifæri til sækja tvær ólíkar kvikmyndahátíðir sem báðar náðu að festa sig í sessi á síðasta ári. Reykjavik Film Festival og Iceland International Festival hafa ákaflega ólík markmið. Hinn fyrrnefnda sækir í listrænar myndir og hugsar kvikmyndina eins og listaverk. IFF-hátíðin, með Ísleif B. Þórhallsson í fararbroddi, fékk metfjölda gesta á hátíðina hjá sér í fyrra og þekktir leikarar og leikstjórar á borð við Walter Salles og Gael Garcia Bernal komu hingað til lands á vegum IFF.Einstakar kvikmyndirÍsleifur B. Þórhallsson IFF hefur staðið fyrir komu stórra stjarna úr heimi kvikmyndanna og árið í ár verður engin undantekning.Í fyrstu leit allt út fyrir að þessar tvær hátíðir yrðu í samkeppni hvor við aðra en þær voru báðar haldnar á haustmánuðum í fyrra. Nú hefur hins vegar því verið lýst yfir að þetta sé í síðasta skipti sem þessi háttur verður hafður á; IFF verður framvegis á vorin og Reykjavík Film Festival á haustin. Að sögn Hrannar er hlutverk Reykjavik Film Festival að bjóða Íslendingum upp á það besta og ferskasta úr alþjóðlegri kvikmyndagerð. „Sannleikurinn er sá að hundruð frábærra mynda eru aldrei sýnd hérlendis og alþjóðleg kvikmyndahátíð í Reykjavík vill verða vettvangur fyrir þessar myndir," útskýrir Hrönn. „Enn fremur er ætlunin að koma Reykjavík á kortið sem alþjóðlegri kvikmyndahátíðarborg þar sem kvikmyndaunnendur frá öllum heimshornum geta gengið að vandaðri dagskrá," segir Hrönn. Reykjavik Film Festival kaupir ekki sínar myndir heldur fær þær að láni. „Kvikmyndahátíðin er því eina tækifærið sem gefst til þess að sjá þessar myndir því fæstar þeirra munu halda áfram í bíó eða birtast á myndbandaleigum," segir Hrönn. Gestum kvikmyndahátíðarinnar gefst kostur á að gera meira en að fara bara í bíó því boðið verður upp á námskeið í kvikmyndalestri, málþing um mannréttindi en hápunktur hátíðarinnar verður þó eflaust þegar Reykjavík verður myrkvuð á opnunarkvöldið. Viljum bæta bíómenningunaHrönn Marínósdóttir Segir hlutverk Reykjavík Film Festival að kynna myndir sem aldrei myndu koma í íslensk kvikmyndahús.Að sögn Ísleifs B. Þórhallssonar er meginmarkmið IFF-hátíðarinnar að auka úrval kvikmyndahúsanna og bæta bíómenningu landans. „Við viljum skemmta fólki og ná til breiðari hóps en stundar bíóin venjulega," útskýrir Ísleifur. Hann segir að úrvalið á IFF-hátíðinni sé mjög breitt og hátíðin sýni í raun hvað sem er, svo lengi sem myndin sé góð og áhugaverð. „Við höfum enga fyrirfram ákveðna formúlu til að velja inn myndirnar og tökum bara það besta sem er í boði á hverjum tíma," útskýrir hann. Eitt aðalsmerki IFF í fyrra voru hinir góðu gestir sem sóttu landið heim. Árið í ár er engin undantekning. „Matt Dillon og Marisa Tomei koma bæði vegna opnunarmyndarinnar og þá reiknum við einnig með því að fleiri góðir gestir komi á vegum hátíðarinnar," segir Ísleifur. „Í kringum allar gestakomur verða glæsilegar galasýningar með tilheyrandi veisluhöldum en auk þess verður um nokkrar íslenskar frumsýningar að ræða," útskýrir Ísleifur og segir að jafnframt verði boðið upp á námskeið í handritagerð og fyrirlestra með kvikmyndasafnaranum og grúskaranum Jack Stevens. - fgg
Menning Mest lesið Rúrik mætti með kærustuna í brúðkaupið Lífið Neistalaus trekantur leiðinlega fólksins Gagnrýni Bezos færir brúðkaupið vegna mótmæla Lífið „Þetta er auðvitað klisja en hann var fullkominn“ Lífið Ástin kviknaði á Humarhátíð Lífið Ósýnileg veikindi hafi ekki minna vægi Lífið Rúrik nældi sér í suðræna Sóleyju Lífið Þessi vilja verða safnstjóri Listasafns Reykjavíkur Lífið „Ætlaði að halda þessu leyndu“ Lífið Sælureitur Frosta og Helgu Gabríelu til sölu Lífið Fleiri fréttir Purrkur Pillnikk spilar á Innipúkanum Ósýnileg veikindi hafi ekki minna vægi „Las þetta allt í drasl í gamla daga“ Þessi vilja verða safnstjóri Listasafns Reykjavíkur Þorgerður brák grafin úr gleymsku „Þú gerir heiminn að betri stað“ Ástin kviknaði á Humarhátíð Rúrik mætti með kærustuna í brúðkaupið Sælureitur Frosta og Helgu Gabríelu til sölu Tíu Þjóðhátíðarráð Arons Mola: „Ekki fara í tjörnina “ Bezos færir brúðkaupið vegna mótmæla Fyrsta fjölbragðaglímufélag landsins stefnir á sýningu „Þetta er auðvitað klisja en hann var fullkominn“ Zendaya sást í miðbænum Orri Steinn og Sylvía Rós eignuðust stúlku á þjóðhátíðardaginn Sumarleg og saðsöm salöt Verðlaunahús í Þingholtunum falt fyrir 239 milljónir Hálfmaraþon í hamingjusprengju eftir fótbrot í fyrra Glæsilegustu gellur Garðabæjar skáluðu á Garðatorgi „Ætlaði að halda þessu leyndu“ Heillandi heimili á Kársnesinu fyrir 236 milljónir „Fallegur fjölskyldusamruni“ Feneyjabúar æfir yfir glæsibrúðkaupi Bezos Stjörnum prýtt brúðkaup landsliðsmanns í Grikklandi Barnahátíðin Kátt snýr aftur Stjörnulífið: Laufey á Íslandi og stjörnubrúðkaup í Grikklandi Þegar stjórnvöld úðuðu efnum yfir almenning Málaði loftið í lit sem minnir á skólajógúrt Umbreyta Þjóðleikhúskjallaranum í kabarettklúbbinn Kit Kat „Þetta er bara það sem mig hefur langað alla ævi“ Sjá meira