Kyntröllið aftur á skjáinn 24. ágúst 2006 14:00 Píanóleikarinn knái Jón Ólafsson mun stýra nýjum spjallþætti í sjónvarpinu á laugardagskvöldum.
Jón Ólafsson píanóleikari mun stjórna nýjum spjallþætti á laugardagskvöldum í Sjónvarpinu. Jón fetar þar með í fótspor ekki ómerkari manna en Hemma Gunn og Gísla Marteins Baldurssonar sem stýrðu feikivinsælum spjallþáttum um árabil. „Það er bara einn Hemmi Gunn og bara einn Gísli Marteinn og það sem ég ætla gera er á allt öðrum nótum," segir Jón. „Megin inntak þáttarins verður músík enda er ég á heimavelli þar, en ég ætla ekkert endilega að fókusera á tónlistarmenn sem slíka. Ég ætla að hafa þáttinn upplýsandi án þess að hann verði of fræðilegur." Jón stýrði áður þættinum Af fingrum fram sem naut töluverðra vinsælda og hlaut Edduverðlaun strax eftir fyrsta veturinn. Þar ræddi hann við tónlistarmenn á öllum aldri. „Þættirnir verða frekar í anda þess sem ég gerði áður, svona kumpánlegt spjall í bland við tónlist. Ég tók mér meðvitað frí frá Af fingrum fram en nú er ég kominn í ágætis stuð til að halda áfram og gera eitthvað sem mér finnst skemmtilegt," segir Jón. „Ég ætla að nýta það sem ég veit mest um , sem er múskin, og svo hef ég líka gaman af því að spjalla við fólk." Jón segist ekki vera búinn að fullmóta þáttinn en hann vinnur nú að þróun hans. „Ég er með fullt af hugmyndum á blaði og ætla að reyna koma þeim þannig fyrir að það verði eitthvað vit í þessu. Ég reikna fastlega með því að píanóið leiki eitthvert hlutverk - að ég nýti mér margra ára píanónám úr æsku," segir tónlistarmaðurinn. Þátturinn hefur ekki en fengið nafn en hann verður frumsýndur um miðjan september. Spurður segir Jón það fylgja því ákveðið áreiti að stjórna þætti í Sjónvarpinu en eins og kunnugt er var hann valinn kynþokkafyllsti maður landsins af hlustendum Rásar 2 þegar hann stjórnaði Af fingrum fram. „Jú, það fylgja því vafasamir titlar að vinna í Sjónvarpinu. Megin tilgangurinn er að ná þessum titli aftur. Ég er rosalega tapsár og það var einhver bankamaður sem hirti titilinn af mér í krafti bankaveldisins og öflugs starfsmannafélags," segir Jón hlæjandi. „Annars verða engir fyrirfram skrifaðir brandarar eða þess háttar í þættinum. Það hentar mér langbest að fá að vera eins og ég er dags daglega nema bara örlítið fínni í tauinu. En bara örlítið!"
Menning Mest lesið Hvað hafa þau að fela? Lífið Sér mest eftir fullyrðingum sínum um einhverfu Lífið Hvað veistu um… Björgvin Halldórsson? Lífið Emily in Paris-stjarna látin Lífið Þingmönnum skyndilega bannað að hanga í stiganum við matsalinn Lífið Hver prjónuð peysa sendi skýr skilaboð til þolenda ofbeldis Tíska og hönnun Stóri skandallinn, óvæntir sigurvegarar og ótvíræð taplið Menning Tvíburar sem búa saman, lærðu það sama og eignuðust börn á sama tíma Lífið Skrautlegt einvígi á Vistabella á Spáni Lífið Geralt fær nýtt ævintýri rúmum áratug eftir það síðasta Leikjavísir Fleiri fréttir Emily in Paris-stjarna látin Hvað hafa þau að fela? Þingmönnum skyndilega bannað að hanga í stiganum við matsalinn Hvað veistu um… Björgvin Halldórsson? Sér mest eftir fullyrðingum sínum um einhverfu Tvíburar sem búa saman, lærðu það sama og eignuðust börn á sama tíma Skrautlegt einvígi á Vistabella á Spáni „Af hverju er ég að leita í eitthvað svona ljótt?“ Frumkvöðull selur elegant íbúð í 101 Kveðjustund í ráðhúsinu Þegar yfirvöld gengust við fljúgandi furðuhlutum Óhefðbundið leynivopn Helgu Sigrúnar Nálægðin við dauðann gjörbreytti ferlinum Gói Sportrönd og Tinna selja í Hveragerði Móðurhlutverkið næst á dagskrá hjá Þóreyju Stjörnulífið: Berir að ofan í brúðkaupi Stórstjörnur tróðu upp í útskriftarveislum Verzlinga Áslaug lék eftir útskriftarpósu móður sinnar Draumabrúðkaup Gerðar við Garda-vatn Stjúpur og fjólur það heitasta Þeir lofuðu rokki en afhentu rækjusamloku á Þingvöllum „Formaður Sjálfstæðisflokksins átti eflaust flott úr“ Sagt að drulla sér heim þegar hún ætlaði að kjósa í fyrsta sinn Krakkatía vikunnar: Bein, Grettir og gúrkutíð Grafinn í sand í sólarhring Fréttatía vikunnar: Eldur, Karl III og Þjóðhátíð „Við erum bara tvö eftir“ Afi snýr aftur á litla sviði Þjóðleikhússins Allir fárveikir eftir tónlistarmyndband Helgi Björns og Ragga Gísla ætla að trylla lýðinn með tali og tónum Sjá meira