Sungið og selt í góðgerðaskyni 23. ágúst 2006 09:00 Fríður hópur góðgerðamanna Í efri röð frá vinstri eru Hekla Lydía Gísladóttir, Jón Arnar Jónsson, Anna María Jónsdóttir, Ragna Margrét Einarsdóttir og Steinunn Arna Atladóttir. Í neðri röð eru Eva Margrét Guðnadóttir, Alma Guðrún Guðnadóttir, Elín Ólöf Benediktsdóttir og Viktoría Dröfn Ólafsdóttir. MYND/Vilhelm
Unga kynslóðin lætur ekki sitt eftir liggja í góðgerðamálum. Blaðamaður Fréttablaðsins rakst á fríðan hóp sem safnað hafði tæpum þrjátíu þúsund krónum fyrir krabbameinssjúk börn. Þrátt fyrir ungan aldur hefur lífið kennt þeim dýrmæta lexíu sem hvetur krakkana til góðra verka. "Þegar ég var þriggja ára fékk ég æxli í höfuðið en svo batnaði það þegar ég var sjö ára," segir Eva Margrét Guðnadóttir sem nú safnar peningum ásamt átta öðrum félögum sínum úr Öldutúnsskóla fyrir krabbameinssjúk börn. Systir hennar Alma Guðrún verður alvarleg á svip þegar veikindi Evu Margrétar eru til umræðu en annars er stutt í brosið hjá níumenningunum. "Við fengum hluti til að selja frá nokkrum búðum í Hafnarfirði og svo frá heimilum okkar og frá öðru fólki," segir Jón Arnar Jónsson. Svo komu þau sér fyrir með varninginn í verslunarmiðstöðinni Firðinum í Hafnarfirði og hófu prúttsölu. "Við erum búin að vera að í tvo daga að selja og við erum komin með 29 þúsund og eitthvað," segir Viktoría Dröfn Ólafsdóttir. En þrátt fyrir góðan árangur láta þau ekki staðar numið því næstu daga munu þau halda til í Smáralind og Kringlunni þar sem sölunni verður haldið áfram. "Sumir gefa okkur reyndar pening en vilja ekki kaupa neitt," segir Viktoría Dröfn Ólafsdóttir. "Eins og frændi hennar Elínar Ólínu, Geir Ólafsson söngvari, hann gaf okkur 500 kall en fékk ekki neitt." En þessi góðgerðahópur hefur einnig á að skipa góðum söngvurum og það getur komið sér vel í átaki sem þessu. Þær Hekla Lydía Gísladóttir og Anna María Jónsdóttir sungu fyrir blaðamann frumsamið lag en það var tileinkað minningu Bjarts litla sem lést 6 ára að aldri eftir baráttu við krabbamein. "Við sungum þetta fyrir konu sem vildi ekkert kaupa og þegar hún heyrði lagið fór hún að gráta og gaf okkur svo 500 kall," segir Hekla Lydía að söng loknum. Jón Arnar sneri upp á sig þegar söngur hófst en Ragna Margrét Einarsdóttir og Steinunn Arna Atladóttir voru hálf klökkar líkt og blaðamaður.
Menning Mest lesið Hvað hafa þau að fela? Lífið Sér mest eftir fullyrðingum sínum um einhverfu Lífið Hvað veistu um… Björgvin Halldórsson? Lífið Mikil sorg á Alþingi Lífið Samstarfsfélagar að elskhugum Lífið Bústaðarferð með vinum endaði á óvæntri trúlofun Lífið Týndi sjálfri sér til að þóknast öðrum Tónlist Emily in Paris-stjarna látin Lífið Þingmönnum skyndilega bannað að hanga í stiganum við matsalinn Lífið Buxur með opið klof vöktu athygli Tíska og hönnun Fleiri fréttir Mikil sorg á Alþingi Samstarfsfélagar að elskhugum Bústaðarferð með vinum endaði á óvæntri trúlofun Fyrsta BBQ- og reykmatarhátíðin í Kolaportinu um helgina Emily in Paris-stjarna látin Hvað hafa þau að fela? Þingmönnum skyndilega bannað að hanga í stiganum við matsalinn Hvað veistu um… Björgvin Halldórsson? Sér mest eftir fullyrðingum sínum um einhverfu Tvíburar sem búa saman, lærðu það sama og eignuðust börn á sama tíma Skrautlegt einvígi á Vistabella á Spáni „Af hverju er ég að leita í eitthvað svona ljótt?“ Frumkvöðull selur elegant íbúð í 101 Kveðjustund í ráðhúsinu Þegar yfirvöld gengust við fljúgandi furðuhlutum Óhefðbundið leynivopn Helgu Sigrúnar Nálægðin við dauðann gjörbreytti ferlinum Gói Sportrönd og Tinna selja í Hveragerði Móðurhlutverkið næst á dagskrá hjá Þóreyju Stjörnulífið: Berir að ofan í brúðkaupi Stórstjörnur tróðu upp í útskriftarveislum Verzlinga Áslaug lék eftir útskriftarpósu móður sinnar Draumabrúðkaup Gerðar við Garda-vatn Stjúpur og fjólur það heitasta Þeir lofuðu rokki en afhentu rækjusamloku á Þingvöllum „Formaður Sjálfstæðisflokksins átti eflaust flott úr“ Sagt að drulla sér heim þegar hún ætlaði að kjósa í fyrsta sinn Krakkatía vikunnar: Bein, Grettir og gúrkutíð Grafinn í sand í sólarhring Fréttatía vikunnar: Eldur, Karl III og Þjóðhátíð Sjá meira