Börn þekktustu leikstjóra landsins saman í bíómynd 23. ágúst 2006 17:30 Leikstjórabörnin á æfingu. Frá vinstri eru Ugla Egilsdóttir, Hera Hilmarsdóttir, Gunnur Martinsdóttir Schlüter, Jörundur Ragnarsson, Guðný Halldórsdóttir, Atli Rafn Sigurðarson, Arnmundur Ernst Björnsson, Baltasar Breki Baltasarsson, Tinna Hrafnsdóttir og Hilmir Snær Guðnason, sem er kominn með myndarlegt hippaskegg fyrir myndina. MYND/Vilhelm "
Það varð nú óvart þannig að öll þessi leikstjórabörn verða í myndinni. Þegar ég var að leita að leikurum í vetur fór ég á menntaskólasýningarnar og þá voru þessir krakkar þau sem stóðu upp úr," segir kvikmyndaleikstjórinn Guðný Halldórsdóttir. Tökur á nýrri mynd hennar, Veðramótum, hefjast í vikunni og svo skemmtilega vill til að hún hefur safnað saman í leikhópinn börnum flestra þekktustu kvikmyndaleikstjóra landsins. Þekktustu nöfnin í leikhópnum eru þeir Hilmir Snær Guðnason og Atli Rafn Sigurðarson en með önnur stór hlutverk fara börn flestra þekktustu kvikmyndaleikstjóra landsins. Þau eru Tinna Hrafnsdóttir, dóttir Hrafns Gunnlaugssonar, Gunnur Martinsdóttir Schlüter, dóttir Ásdísar Thoroddsen, Hera Hilmarsdóttir, dóttir Hilmars Oddssonar, Baltasar Breki, sonur Baltasars Kormáks, og Arnmundur Ernst Björnsson, sonur Eddu Heiðrúnar Backman. "Þetta eru allt börn leikstjóra, börn vina minna. Sum þeirra hef ég ekki séð síðan þau voru oggulítil og hafði því ekki hugmynd um að þau væru komin út í leiklistina. En það virðist sem þau séu öll með brennandi áhuga og hafa mörg skipað stóran sess í þeim leikfélögum sem þau hafa verið í. Sum krakkanna hafa svo leikið hjá mér áður," segir Guðný. "Þetta er náttúrlega spennusaga eins og mikið er í tísku núna. Ég tolli í tískunni," segir Guðný þegar hún er spurð út í nýju myndina. Veðramót fjallar um heimili fyrir vandræðaunglinga norður í landi árið 1974. Sagan gerist í nútímanum en brugðið er upp svipmyndum frá 1974 "þegar hippamennskan var við lýði," eins og Guðný orðar það. "Það er ungt fólk sem tekur við þessu vandræðaheimili og það innleiðir nýjar uppeldisaðferðir. Ég myndi halda að óhætt sé að segja að þar gangi á ýmsu," segir Guðný.
Menning Mest lesið „Þetta er bara nútímavændi“ Lífið Krefst þess að Elvar greiði sér miskabætur vegna hljóðbúts Lífið Thelma og Sveinn Aron sjóðheitt par Lífið Sendi nýrri kærustu kveðju í stúkuna Lífið Ungfrú Ísland teymið svarar fyrir sig Lífið Eyddi mörgum árum í að fela það sem aðrir tóku varla eftir Lífið Danski leikstjórinn setti vini sínum afarkosti Lífið Stjörnulífið: Heitustu skvísur landsins mála Ibiza rauða Lífið Seiðandi Alaska heillaði gesti upp úr skónum Tónlist Stökk Ulrike Meinhof í heim hryðjuverkanna Lífið Fleiri fréttir Thelma og Sveinn Aron sjóðheitt par „Þetta er bara nútímavændi“ Sendi nýrri kærustu kveðju í stúkuna Stökk Ulrike Meinhof í heim hryðjuverkanna „Eins og þegar einangrunarplasti er strokið eftir glerrúðu“ Krabbameinið það besta sem hafi komið fyrir hann Dorrit þvoði hárið í íslenskri náttúru Danski leikstjórinn setti vini sínum afarkosti Stjörnulífið: Heitustu skvísur landsins mála Ibiza rauða Ungfrú Ísland teymið svarar fyrir sig Krefst þess að Elvar greiði sér miskabætur vegna hljóðbúts Fimmtug hjón vilja swinga með vinahjónum sínum Eyddi mörgum árum í að fela það sem aðrir tóku varla eftir „Bókmenntalegir palladómar frá mér ekki mikils virði“ Krakkatía vikunnar: Tjútt, tjull og feitir bangsar Sleppti því að þrífa símann í viku og niðurstaðan kom á óvart „Þegar ég syng finn ég mest fyrir pabba“ Fréttatía vikunnar: Kíró, tár og ræningjarenna Segir stjórnendur Ungfrú Ísland hafa gert upp á milli keppenda Taka upp Netflix þætti í miðbænum og Tina Fey óvæntur gestur Laug um að Jay-Z hefði nauðgað henni „Bjóða upp á einhverja díla sem meika engan sens og undirbjóða allt“ „Það voru margir með tár á hvarmi“ Svín út um allt í fallegu einbýli Björns Braga Margot Robbie ekki lengur Margot Robbie Hvað veistu um… kvikmyndahátíðir? Kærasta Love Island stjörnunnar Davide í fangelsi Birgitta mætti sem fimleikakona, markmaður, leikmaður og þjálfari Taylor og Taylor nefndu barnið Taylor Þú trúir ekki hvað lögreglan gerði við sönnunargagnið Sjá meira