Sjónvarpskokkur kaupir Habitat 23. ágúst 2006 11:00 Stórtæk hjón Þau Jón Arnór og Ingibjörg hafa fest kaup á Habitat-versluninni sem hefur lengi verið vinsæl meðal fagurkera í innanhúsarkitektúr.
Jón Arnór Guðbrandsson hefur keypt húsgagnaverslunina Habitat ásamt eiginkonu sinni Ingibjörgu Þorvaldsdóttur og taka þau því við af Árna Ólafi Ásgeirssyni og Sólveigu Hannam sem rekið hafa búðina í rúm sjö ár. Kaupin gengu í gegn á laugardaginn og þegar Fréttablaðið hafði samband við Habitat var það fyrsta símtal Jóns í nýrri verslun. "Þetta hefur alltaf verið aðaláhugamál okkar tveggja; að innrétta með fallegum húsgögnum," segir Jón sem var kampakátur með nýju verslunina en hún hefur lengi verið vinsæl meðal fagurkera í innanhúsarkitektúr. "Við ætlum að gera þó nokkrar breytingar en auðvitað tekur alltaf tíma að fá nýjar vörur inn í búðina," bætir Jón við og segist gjarnan vilja uppfæra þær vörur sem til eru og láta búðina vera meira í takt við það sem er að gerast erlendis. "Núna erum við aðallega að reyna kynnast og læra af öllu því góða fólki sem hér starfar," segir hann og hefur greinilega miklar hugmyndir um búðina. "Við viljum stækka hana og breyta og gera hann ögn líflegri og bjartari," útskýrir hann en róar þó aðdáendur búðarinnar sem þurfa engu að kvíða þrátt fyrir eigendaskiptin. Jón Arnór vakti mikla athygli þegar hann kom heim til frægra Íslendinga og eldaði fyrir þá ásamt félaga sínum, Rúnari Gíslasyni auk þess sem þeir félagar ráku veisluþjónustuna Kokkarnir. "Svo var bara komin tími til að breyta til," útskýrir Jón en hann hætti hjá fyrirtækinu fyrir þremur árum. Nú rekur hann fimm Oasis verslanir ásamt Ingibjörgu í Danmörku og er Habitat því enn ein rósin í hnappagatið.
Menning Mest lesið „Þetta er bara nútímavændi“ Lífið Krefst þess að Elvar greiði sér miskabætur vegna hljóðbúts Lífið Ungfrú Ísland teymið svarar fyrir sig Lífið Thelma og Sveinn Aron sjóðheitt par Lífið Sendi nýrri kærustu kveðju í stúkuna Lífið Eyddi mörgum árum í að fela það sem aðrir tóku varla eftir Lífið Danski leikstjórinn setti vini sínum afarkosti Lífið Seiðandi Alaska heillaði gesti upp úr skónum Tónlist Stjörnulífið: Heitustu skvísur landsins mála Ibiza rauða Lífið „Eins og þegar einangrunarplasti er strokið eftir glerrúðu“ Lífið Fleiri fréttir Thelma og Sveinn Aron sjóðheitt par „Þetta er bara nútímavændi“ Sendi nýrri kærustu kveðju í stúkuna Stökk Ulrike Meinhof í heim hryðjuverkanna „Eins og þegar einangrunarplasti er strokið eftir glerrúðu“ Krabbameinið það besta sem hafi komið fyrir hann Dorrit þvoði hárið í íslenskri náttúru Danski leikstjórinn setti vini sínum afarkosti Stjörnulífið: Heitustu skvísur landsins mála Ibiza rauða Ungfrú Ísland teymið svarar fyrir sig Krefst þess að Elvar greiði sér miskabætur vegna hljóðbúts Fimmtug hjón vilja swinga með vinahjónum sínum Eyddi mörgum árum í að fela það sem aðrir tóku varla eftir „Bókmenntalegir palladómar frá mér ekki mikils virði“ Krakkatía vikunnar: Tjútt, tjull og feitir bangsar Sleppti því að þrífa símann í viku og niðurstaðan kom á óvart „Þegar ég syng finn ég mest fyrir pabba“ Fréttatía vikunnar: Kíró, tár og ræningjarenna Segir stjórnendur Ungfrú Ísland hafa gert upp á milli keppenda Taka upp Netflix þætti í miðbænum og Tina Fey óvæntur gestur Laug um að Jay-Z hefði nauðgað henni „Bjóða upp á einhverja díla sem meika engan sens og undirbjóða allt“ „Það voru margir með tár á hvarmi“ Svín út um allt í fallegu einbýli Björns Braga Margot Robbie ekki lengur Margot Robbie Hvað veistu um… kvikmyndahátíðir? Kærasta Love Island stjörnunnar Davide í fangelsi Birgitta mætti sem fimleikakona, markmaður, leikmaður og þjálfari Taylor og Taylor nefndu barnið Taylor Þú trúir ekki hvað lögreglan gerði við sönnunargagnið Sjá meira