Götukarfa á Miklatúni 23. ágúst 2006 13:30 Götukarfa Það verður væntanlega hart barist í götukörfuboltamótinu á Miklatúni um næstu helgi.
Götukörfuboltamótið 305 verður haldið á Miklatúni um næstu helgi. Leikarinn Ívar Örn Sverrisson og tónlistarmaðurinn Sverrir Bergmann, sem standa fyrir mótinu, búast við góðri þátttöku. "Við erum búnir að pæla í þessu lengi að það sé kominn tími á að endurvekja götuboltann á Íslandi," segir Ívar Örn Sverrisson. "Það er búið að vanta aðstöðu og við ýttum á eftir því að það yrði eitthvað gert. Núna eru komnar nýjar körfur í réttri hæð á Miklatúni og við erum að halda mótið í tilefni af því," segir hann, en rétt hæð er 305 sentimetrar eins og nafn mótsins ber með sér. "Ég var í þessu þegar þetta stóð sem hæst þetta körfuboltaæði hérna heima. Það er synd að því var ekki fylgt eftir meira og það var eins og aðstaðan hyrfi smátt og smátt. Ég held að það sé forsenda fyrir því að það sé blómlegt körfuboltalíf hérna að það verði aðstaða fyrir krakkana að leika sér," bætir Ívar við. Vonast hann eftir því að mótið eigi eftir að festa sig í sessi í framtíðinni. "Ef það verður vel tekið í þetta mót sjáum við því ekkert til fyrirstöðu að reyna að hafa þetta árlegan viðburð." Mótið hefst kl. 10.00 á laugardag og stendur yfir fram eftir degi. Hvert lið er skipað 3-4 leikmönnum en þrír keppa á móti þremur í hverjum leik með einn varamann. Keppt verður í fjórum flokkum, karla- og kvenna. Annars vegar fyrir 15-17 ára leikmenn og hins vegar 18 ára og eldri. Skráningargjald er 500 kr. á hvern leikmann og er greitt á staðnum. Tilkynna þarf þátttöku á 305@hive.is. Senda þarf nöfn leikmanna og kennitölur, nafn liðsins og upplýsingar um rétta aldursflokkinn. Í verðlaun verða glænýir Nike körfuboltaskór og boltar.
Menning Mest lesið Hvað hafa þau að fela? Lífið Sér mest eftir fullyrðingum sínum um einhverfu Lífið Hvað veistu um… Björgvin Halldórsson? Lífið Emily in Paris-stjarna látin Lífið Þingmönnum skyndilega bannað að hanga í stiganum við matsalinn Lífið Buxur með opið klof vöktu athygli Tíska og hönnun Hver prjónuð peysa sendi skýr skilaboð til þolenda ofbeldis Tíska og hönnun Bústaðarferð með vinum endaði á óvæntri trúlofun Lífið Stóri skandallinn, óvæntir sigurvegarar og ótvíræð taplið Menning Tvíburar sem búa saman, lærðu það sama og eignuðust börn á sama tíma Lífið Fleiri fréttir Bústaðarferð með vinum endaði á óvæntri trúlofun Fyrsta BBQ- og reykmatarhátíðin í Kolaportinu um helgina Emily in Paris-stjarna látin Hvað hafa þau að fela? Þingmönnum skyndilega bannað að hanga í stiganum við matsalinn Hvað veistu um… Björgvin Halldórsson? Sér mest eftir fullyrðingum sínum um einhverfu Tvíburar sem búa saman, lærðu það sama og eignuðust börn á sama tíma Skrautlegt einvígi á Vistabella á Spáni „Af hverju er ég að leita í eitthvað svona ljótt?“ Frumkvöðull selur elegant íbúð í 101 Kveðjustund í ráðhúsinu Þegar yfirvöld gengust við fljúgandi furðuhlutum Óhefðbundið leynivopn Helgu Sigrúnar Nálægðin við dauðann gjörbreytti ferlinum Gói Sportrönd og Tinna selja í Hveragerði Móðurhlutverkið næst á dagskrá hjá Þóreyju Stjörnulífið: Berir að ofan í brúðkaupi Stórstjörnur tróðu upp í útskriftarveislum Verzlinga Áslaug lék eftir útskriftarpósu móður sinnar Draumabrúðkaup Gerðar við Garda-vatn Stjúpur og fjólur það heitasta Þeir lofuðu rokki en afhentu rækjusamloku á Þingvöllum „Formaður Sjálfstæðisflokksins átti eflaust flott úr“ Sagt að drulla sér heim þegar hún ætlaði að kjósa í fyrsta sinn Krakkatía vikunnar: Bein, Grettir og gúrkutíð Grafinn í sand í sólarhring Fréttatía vikunnar: Eldur, Karl III og Þjóðhátíð „Við erum bara tvö eftir“ Afi snýr aftur á litla sviði Þjóðleikhússins Sjá meira