Lífið

Tónlist Bjarkar kveikti Íslandsáhugann

Umbra Meinafræðingurinn Askja og lögreglukonan Freyja snúa bökum saman og gott betur þegar þær verða skotmörk morðingja sem situr um þær á götum Reykjavíkur.
Umbra Meinafræðingurinn Askja og lögreglukonan Freyja snúa bökum saman og gott betur þegar þær verða skotmörk morðingja sem situr um þær á götum Reykjavíkur.

"Ég er yfir mig hrifinn af Íslandi og hef komið tvisvar til landsins. Ég fékk hugmyndina að sögunni þegar ég var síðast í Reykjavík og hélt áfram að þróa hana þegar ég kom aftur heim til Bandaríkjanna," segir Steve Murphy, höfundur myndasögunnar Umbra sem gerist á Íslandi. Sagan fjallar um ástkonurnar Freyju og Öskju sem komast í kast við harðsvíraða glæpamenn þegar þær rannsaka grunsamlegan líkfund úti á landi.

"Ég eyddi þremur vikum á Íslandi um miðjan tíunda áratuginn, leigði mér bíl og keyrði allan hringveginn. Ég heillaðist gjörsamlega af yfirþyrmandi landslaginu, fossunum, jöklunum og hreinni náttúrunni. Ég kom svo aftur í janúar 1999 og var í nokkra daga. Ég vildi upplifa Ísland að vetrarlagi en hélt mig alfarið í Reykjavík og gerði lítið annað en að ganga um borgina, bæði á daginn og um nætur. Það var kalt og hvasst og mér fannst þetta mjög villt."

Steve segir að því sé eins farið með sig og marga aðra að tónlist Bjarkar hafi fyrst vakið áhuga hans á landinu. "Ég las síðan nokkrar bækur um landið og hreifst af almennum áhuga og trú Íslendinga á yfirskilvitlega hluti, álfa, huldufólk og ég veit ekki hvað. Eftir því sem ég las meira fékk ég áhuga á Íslendingasögunum og landslaginu."

Steve segist hafa hug á því að koma aftur til Íslands og dvelja þá mun lengur. "Ég stefni að því að skoða fljótlega möguleika á því að leigja íbúð í Reykjavík í eitt ár en mig langar virkilega til þess að búa á Íslandi."






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.