Lífið

Hótar að kæra

Owen Wilson 
Leikarinn hefur verið orðaður við leikkonuna Kate Hudson sem skildi á dögunum við mann sinn til sex ára.
Owen Wilson Leikarinn hefur verið orðaður við leikkonuna Kate Hudson sem skildi á dögunum við mann sinn til sex ára. MYND/Reuters
Leikarinn Owen Wilson hótar að kæra alla þá sem saka hann um að vera valdur að skilnaði leikkonunnar Kate Hudson. Aðeins nokkrum dögum eftir að Hudson sagði frá skilnaði sínum og eiginmanns síns til sex ára, Chris Robinson, fóru af stað sögusagnir um meint ástarsamband hennar og Wilsons. Talsmenn leikaranna vilja ekki staðfesta orðróminn en fullvissa að Wilson hafi ekki átt neinn þátt í skilnaðinum. Wilson er búinn að ráða lögfræðing sem sér um að kæra alla þá sem halda öðru fram.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.