Margir eldklárir keppa í hrútaþukli 22. ágúst 2006 14:00
Færustu hrútaþuklarar landsins leggja nú lokahönd á undirbúning fyrir árlegt meistaramót í hrútaþukli sem haldið verður á Ströndum um helgina. Fer mótið fram í Sauðfjársetrinu í Sævangi, skammt sunnan við Hólmavík, og má eiga von á að hundruð manna leggi leið sína á mótið. "Í fyrra komu um þrjú hundruð og við búumst við þeim fjölda, þótt ekki keppi nema svona sextíu til sjötíu. Hinir eru bara að koma að sýna sig og sjá aðra," segir Jón Jónsson, skipuleggjandi meistaramótsins. Keppt er í tveimur flokkum, flokki reyndra hrútadómara og þeirra sem eru óvanir í hrútaþukli, og segir Jón að Strandamenn séu færir í hrútadómum enda sé svæðið þekkt fyrir sauðfjárrækt. "Eitt árið unnu heimamenn en síðustu ár hafa utanhéraðsmenn unnið okkur Strandamenn í þessu, bara komið og hrifsað verðlaunin," segir Jón. Hann bætir við að í flokki reyndra hrútadómara vinni yfirleitt bændur þótt vinningshafi síðasta árs hafi einnig verið kjötmatsmaður. Handhafi meistaramótstitilsins heitir Björn Þormóður Björnsson á Ytra-Hóli í Vindhælishreppi og segir Björn að vel geti farið svo að hann taki þátt í mótinu um helgina. Aðspurður segist hann þó ekki fara þangað til að verja meistaratitil sinn. "Engum hefur tekist að verja titilinn, enn sem komið er. Það er ekkert gefið í þessu fyrirfram, þeir eru eldklárir margir í þessu," segir Björn sem bætir við að keppnin sé nú aðallega gerð til gamans og úrslitin geti því fallið hvernig sem er. Björn segir að keppnin snúist alls ekki eingöngu um hrútaþukl heldur þarf einnig að nota augun og fleira. "Mér þykir hrútaþukl vera hálf skrítið orð, þetta eru eiginlega bara hrútadómar," bætir Björn við.
Menning Mest lesið Hvað hafa þau að fela? Lífið Sér mest eftir fullyrðingum sínum um einhverfu Lífið Hvað veistu um… Björgvin Halldórsson? Lífið Emily in Paris-stjarna látin Lífið Þingmönnum skyndilega bannað að hanga í stiganum við matsalinn Lífið Hver prjónuð peysa sendi skýr skilaboð til þolenda ofbeldis Tíska og hönnun Stóri skandallinn, óvæntir sigurvegarar og ótvíræð taplið Menning Tvíburar sem búa saman, lærðu það sama og eignuðust börn á sama tíma Lífið Skrautlegt einvígi á Vistabella á Spáni Lífið Geralt fær nýtt ævintýri rúmum áratug eftir það síðasta Leikjavísir Fleiri fréttir Emily in Paris-stjarna látin Hvað hafa þau að fela? Þingmönnum skyndilega bannað að hanga í stiganum við matsalinn Hvað veistu um… Björgvin Halldórsson? Sér mest eftir fullyrðingum sínum um einhverfu Tvíburar sem búa saman, lærðu það sama og eignuðust börn á sama tíma Skrautlegt einvígi á Vistabella á Spáni „Af hverju er ég að leita í eitthvað svona ljótt?“ Frumkvöðull selur elegant íbúð í 101 Kveðjustund í ráðhúsinu Þegar yfirvöld gengust við fljúgandi furðuhlutum Óhefðbundið leynivopn Helgu Sigrúnar Nálægðin við dauðann gjörbreytti ferlinum Gói Sportrönd og Tinna selja í Hveragerði Móðurhlutverkið næst á dagskrá hjá Þóreyju Stjörnulífið: Berir að ofan í brúðkaupi Stórstjörnur tróðu upp í útskriftarveislum Verzlinga Áslaug lék eftir útskriftarpósu móður sinnar Draumabrúðkaup Gerðar við Garda-vatn Stjúpur og fjólur það heitasta Þeir lofuðu rokki en afhentu rækjusamloku á Þingvöllum „Formaður Sjálfstæðisflokksins átti eflaust flott úr“ Sagt að drulla sér heim þegar hún ætlaði að kjósa í fyrsta sinn Krakkatía vikunnar: Bein, Grettir og gúrkutíð Grafinn í sand í sólarhring Fréttatía vikunnar: Eldur, Karl III og Þjóðhátíð „Við erum bara tvö eftir“ Afi snýr aftur á litla sviði Þjóðleikhússins Allir fárveikir eftir tónlistarmyndband Helgi Björns og Ragga Gísla ætla að trylla lýðinn með tali og tónum Sjá meira