Baltasar náði ekki að skora 22. ágúst 2006 11:00 knattspyrnukappinn knái Baltasar Kormákur náði aðeins að leika tvo leiki með Neista frá Hofsósi í sumar. Hann kom inn á sem varamaður í eina sigurleik liðsins – í 2-1 sigri gegn Snæfelli.
Baltasar Kormákur náði ekki að skora mark fyrir Neista á Hofsósi í sumar, eins og hann ætlaði sér, en síðasta umferð 3. deildar karla í knattspyrnu var leikin um helgina. Baltasar hefur þrjú síðustu ár leikið með liði Neista og þegar Fréttablaðið ræddi við hann fyrr í sumar var hann staðráðinn í því að skora mark. Það tókst hins vegar ekki. "Ég spilaði ekki einn einasta leik eftir að ég talaði við ykkur síðast. Ég gat því miður ekki spilað þar sem ég hef verið upptekinn við vinnu vegna myndarinnar," sagði Baltasar í samtali við Fréttablaðið í gær en hann er að leggja lokahönd á kvikmyndina Mýrina sem frumsýnd verður innan skamms. eista frá Hofsósi gekk ekki sem skyldi í C-riðli 3. deildar karla í sumar. Liðið vann einn leik, gerði tvö jafntefli og tapaði tólf. Markatala liðsins var heldur ekkert til að hrópa húrra fyrir – skoraði 10 mörk en fékk 71 á sig. Baltasar telur þó ekki að gengi liðsins hefði verið betra ef hann hefði leikið með því. "Það hefði engu breytt þó að ég hefði verið með. Annars er þetta ágætis árangur hjá liðinu og ætli við höfum ekki verið sigurvegar í öllum leikjum sumarsins miðað við mannfjölda," segir Baltasar en aðeins um 170 manns búa á Hofsósi. Baltasar, sem fór frá Breiðabliki til Neista á frjálsum samningi í júlí 2003, náði aðeins að leika tvo leiki með Neista í sumar. Mark Duffield hefur verið samherji Baltasar hjá Neista en hann setti nýtt met á laugardaginn var þegar hann lék 400. deildarleik sinn á Íslandsmótinu í knattspyrnu.
Menning Mest lesið Brúðkaup ársins 2025 Lífið Cooper bað móðurina um hönd Hadid Lífið „Mér finnst gaman að láta sjokkera mig“ Lífið Einhverfir kaþólikkar um allan heim heita Þorlákur Lífið Heitt í hamsi hjá gestum á „helvíti á jörðu“ í Breiðholti Lífið Helvíti á jörðu: Emmsjé Gauti minnti á líkamsræktarþjálfara í maníu Gagnrýni Hefur misst vini og kunningja vegna skoðana sinna Lífið Veikindi eyðilögðu líka stóru stund Manúelu Lífið Leitin á Svínafellsjökli sem hefur enn ekki skilað árangri Lífið Stjörnulífið: Óskar tíkunum gleðilegra jóla Lífið Fleiri fréttir Einhverfir kaþólikkar um allan heim heita Þorlákur Cooper bað móðurina um hönd Hadid „Mér finnst gaman að láta sjokkera mig“ Brúðkaup ársins 2025 Heitt í hamsi hjá gestum á „helvíti á jörðu“ í Breiðholti Chris Rea hefur ekið heim um jólin í síðasta skipti Saga jarðaði alla við borðið Vísa ásökunum Skinner um kosningasvindl á bug Kimmel ávarpar bresku þjóðina: Frábært ár fyrir fasisma „Ég hugsa til þín á hverjum einasta degi“ Stjörnulífið: Óskar tíkunum gleðilegra jóla Veikindi eyðilögðu líka stóru stund Manúelu Hefur misst vini og kunningja vegna skoðana sinna Leitin á Svínafellsjökli sem hefur enn ekki skilað árangri Krakkatía vikunnar: Ísskápastríð, Eivör og Grafarvogur „Við byrjuðum að hlusta á jólalög í júlí“ Frægir fundu ástina 2025 Íslenska stelpan sem gerðist mormóni Fréttatía vikunnar: Rob Reiner, Dóra Björt og fullir unglingar 500 Esjuferðir á árinu: „Sumir hrista bara hausinn og lygna augunum“ Útgefandi Walliams lætur hann róa Fáklæddir barþjónar þegar Regnboginn opnaði í Bíó Paradís Þriðja stigs krabbameinið það besta sem kom fyrir hann Dúnninn bakaður í fjóra sólarhringa til að drepa allt í honum Heilsu krónprinsessunnar hrakar gríðarlega Pete orðinn pabbi Nýkominn úr meðferð og „sjaldan verið betur nýsleginn túskildingur“ Laufey á lista Obama „Ég heyrði þá kalla á mig en gat engu svarað“ Opnar sig í fyrsta sinn: Kyssti yfirmanninn í fyrsta sinn þetta kvöld Sjá meira