Vanity Fair fékk einkaréttinn á Suri Cruise 14. ágúst 2006 11:45 Cruise og Holmes Líkt og jörðin hafi gleypt hjónakornin eftir að Suri Cruise kom í heiminn. CNN greindi frá því fyrir helgi að Vanity Fair hefði fengið einkaréttinn á myndum af barninu.
Tímaritið Vanity hefur fengið einkarétt á að birta fyrstu myndirnar af Suri Cruise, fyrsta barni Tom Cruise og Katie Holmes. Suri fæddist 18. apríl og hefur Penelope Cruz lýst henni sem gullfallegu kornabarni. Engar myndir hafa birst af stúlkubarninu og því ljóst að þetta er mikill happafengur fyrir tímaritið ef satt reynist. Fréttavefur CNN greinir frá því að ljósmyndarinn Anne Leibovitz muni taka myndirnar og að þær komi fyrir almennningssjónir með haustinu. Talsmaður ljósmyndastofu Leibovitz sagðist hins vegar ekkert kannast við þessa myndatöku og talsmaður Cruise vildi ekki láta neitt hafa eftir sér. Suri Cruise hefur verið lýst sem eftirsóttasta kornabarni heims um þessar mundir enda er líkt og jörðin hafi gleypt þau Tom Cruise og Katie Holmes eftir að barnið fæddist. Fréttavefur CNN gengur jafnvel svo langt að líkja Suri við furðufuglinn Howards Hughes sem var alltaf í öllum helstu slúðurdálkum blaðanna án þess að til væri af honum mynd. Varla var til sá fjölmiðill sem ekki fjallaði um ástarsamband Cruise og Holmes enda komu þau fram í þætti Opruh Winfrey þar sem Cruise hoppaði á sófanum um leið og hann sagðist dýrka Holmes. Hann bað síðan sinnar heittelskuðu í París og fengu fjölmiðlar að fylgjast með þessu öllu saman í beinni útsendingu. Margir töldu að sambandið væri einungis hluti af markaðsherferð Cruise en á þessum tíma var hann að kynna Mission: Impossible 3 og Holmes lék stórt hlutverk í Batman Begins. Mission:Impossible fékk þó ekki þá aðsókn sem reiknað hafði verið með og Katie Holmes var tilkynnt að þjónustu hennar væri ekki lengur óskað í Batman-flokknum. Angelina Jolie og Brad Pitt hafa leyft myndatökur af Shiloh dóttur sinni og seldu einkaréttinn fyrir nokkra tugi milljóna sem síðan voru gefnar til styrktar góðs málefnis. Fjölmiðlar í Bandaríkjunum bíða því spenntir eftir að frétta hversu mikið Vanity Fair greiddi fyrir einkaréttinn en það er talið nema nokkrum tugum milljóna.
Menning Mest lesið Eitt myndband selji upp heilu lagerana Menning Barbie-framhald í uppnámi vegna launakrafa Lífið Fréttatía vikunnar: Björk, Usher og peningaþvætti Lífið Dorrit sendir rabbínanum tóninn Lífið Hjartnæm athöfn þegar Gunnar Þórðarson var jarðsunginn Lífið Hálfsextugur Hamm að verða pabbi í fyrsta sinn Lífið Robbie Williams einhverfur Lífið „Sterklega orðaður“ við Bond og efstur hjá veðbönkum Bíó og sjónvarp Jóhanna Guðrún ólétt Lífið Elti draumana til London og tók sjálfa sig í sátt Tónlist Fleiri fréttir Fréttatía vikunnar: Björk, Usher og peningaþvætti Barbie-framhald í uppnámi vegna launakrafa Robbie Williams einhverfur Hálfsextugur Hamm að verða pabbi í fyrsta sinn Hjartnæm athöfn þegar Gunnar Þórðarson var jarðsunginn Dorrit sendir rabbínanum tóninn Berskjölduð og óttaslegin eftir skilnaðinn og framtíðin óráðin Jóhanna Guðrún ólétt Útför Gunnars Þórðarsonar Dreymir um að halda næstu Kaleo-tónleika á Vestfjörðum Emmsjé edrú í sjö ár Fór á skeljarnar undir almyrkvanum Einelti kvenna á vinnustað lúmskt og einkennist af gaslýsingu Hvað veistu um… kirkjur á Íslandi? Þjóðir sem eigi í vopnuðum átökum megi ekki halda Eurovision Guðni var lokaður inni í síðasta almyrkva: „Ég man þennan morgun enn“ Móðir Perezar Hilton sækir um tímabundið forræði yfir börnunum Jói Pé og Molly selja skrifstofuhæð innréttaða sem íbúð OnlyFans-stjarna dæmd fyrir að stinga kærastann til bana Ocasio-Cortez á lausu Frægustu mágar landsins Office-stjarna með ólæknandi krabbamein Pálmi Kormákur og Guðrún nýtt par Selja útsýnishús með saunu og sjóvatnspotti Usher þvertekur fyrir klónið „Það er engin skömm í krabbameininu“ Dottinn í það á ný: „Ég var edrú í sjö ár“ Einstakt einbýlishús á 235 milljónir í Garðabæ Gugga á Þjóðhátíð: „Er þetta leigubíll? Nei, þetta er pó-pó“ Urður yfirgefur Kastljós Sjá meira