Frumkvöðull á flutningabíl 11. ágúst 2006 09:00 Johnny Rock Jón Ívan Rafnsson, betur þekktur sem Johnny Rock, segir að fyrirtækið sem hann vinnur hjá hafi útvegað merkingar á bílinn. Honum þótti þær of litlar og sá því sjálfur um að merkja hann.
Þetta er kallnafnið í vinnunni hjá mér og ég er ekki þekktur undir neinu öðru nafni í þessum geira, segir vörubílstjórinn Jón Ívan Rafnsson, betur þekktur sem Johnny Rock. Margir kannast við bílstjórann með skemmtilega nafnið enda þeytist hann landshlutanna á milli á stóra rauða vörubílnum sínum sem merktur er bak og fyrir - vinnunafninu Johnny Rock. Og það er ekki sökum að spyrja hvað Johnny Rock flytur grjóthnullunga og steina úr jarðvegsvinnu. Ég vinn fyrst og fremst við efniskeyrslu hjá GG, við að flytja grúsin, sand, grjót og það sem tilheyrir í lagnir og grunna. Rock nafnið er samt ekki komið vegna grjótaflutninga. Ég er hálfur Frakki og mamma og pabbi kölluðu mig alltaf Johnny. Svo var það einn af vinum mínum, sem ég var vanur að skemmta mér með, sem kallaði mig rokkara. Honum fannst ég sennilega svo rokkaralegur enda er ég með nokkur húðflúr og nokkuð skrautlegur. Johnny segist hafa fengið mikla athygli út af skiltunum enda hafi það verið tilgangurinn. Ég held að ég hafi verið fyrstur til að setja svona áberandi skilti á bílinn hjá mér. Ég hef líka gaman af því að vera öðruvísi og vil láta taka eftir mér. Ég er líka orðinn nokkuð þekktur á þjóðveginum og það er gaman þegar krakkarnir sem keyra framhjá fara að garga nafnið mitt. Svo horfir lögreglan líka alltaf á mig skrýtnum augum, segir Johnny sem man eftir nokkrum skiltum sem aðrir vörubílstjórar hafa sett upp. Það voru skilti á borð við Naglinn og Kallinn en ekkert þeirra var svona óvenjulegt eins og skiltin mín. Ég held að ég sé skrautlegastur í þessum bransa og það er aldrei að vita hvað ég geri næst. Kannski merki ég húddið eða toppinn á bílnum ég bæti reglulega við mig, segir Johnny Rock, sem ekur um á einum flottasta vörubíl landsins.
Menning Mest lesið „Þetta pólýsamband er orðið að mormónahjónabandi“ Bíó og sjónvarp Yngsta systkinið fjögurra ára og það elsta fimmtíu og fimm Lífið Hvað er það versta sem þú hefur gert? Gagnrýni Endurlífguðu Kilmer með gervigreind fyrir fornleifamynd Bíó og sjónvarp Vilja fá fólk út í sumar með nýjum leik Lífið Hlustun á Bó snaraukist Tónlist Þau syngja Þjóðhátíðarlagið í ár Lífið Krummi kveður pabba sinn Lífið Með líkamsræktaraðstöðu heima í stofu og var að klára bílskúrinn Lífið Cruise tekur á loft í þriðja sinn Bíó og sjónvarp Fleiri fréttir Yngsta systkinið fjögurra ára og það elsta fimmtíu og fimm Vilja fá fólk út í sumar með nýjum leik Með líkamsræktaraðstöðu heima í stofu og var að klára bílskúrinn Þau syngja Þjóðhátíðarlagið í ár Útför Björgvins opin almenningi Báru fram kokteila í vatnsbyssum, páskaeggjum og kransakökum Einvígi aldarinnar endurtekið Svona er dagskrá Barnamenningarhátíðar í ár „Það er verið að kalla hana n-orðinu“ Fjölbreyttur hópur í dómnefnd Ungfrúar Íslands Fengið sinn skerf af áföllum í lífinu Krummi kveður pabba sinn Leikaraliðið í Leitinni að Gollri fullskipað: Jamie Dornan verður Aragorn Oddvitaáskorunin: Myndi vilja vera „sérfræðingur að sunnan“ Rákust á Mamdani yfir morgunbollanum Þetta er áratugurinn sem samtíminn saknar mest Hvað veistu um... Vetrarólympíuleika? Mætti í þáttinn til að vinna sér inn fyrir þurrkara Frumfluttu lag Barnamenningarhátíðarinnar fyrir káta krakka „Ég hef grátið því að ég var svo skotin í þér“ Uppeldið hjá ömmu og afa áhrifamest „Þetta lið á Akureyri vildi ekki gefa mér gullið“ Gurrý um svuntuaðgerðina: „Jesús hvað þetta er búið að vera erfitt“ Clavicular fluttur á spítala vegna ætlaðrar ofskömmtunar Oddvitar landsins takast á við Oddvitaáskorunina Óvænt ökuferð að ógleymanlegu augnabliki Umdeildum K-Pop stjörnum skipt út í Hörpu Opnar sig um andlát kærastans eftir skotárás í New York „Svo kom í ljós að þetta var alls ekki amma mín“ „Hún reyndi aldrei að koma í stað mömmu“ Sjá meira