Lífið

Lýgur um ástarlífið

Leikkonan unga Lindsay Lohan  lýgur að slúðurblöðunum um ástarlíf sitt.
Leikkonan unga Lindsay Lohan lýgur að slúðurblöðunum um ástarlíf sitt.

Leikkonan unga Lindsay Lohan viðurkennir í viðtali við tískutímaritið Elle að hún hafi logið að slúður­blöðunum um ástalíf sitt. Leikkonan hefur verið orðuð við marga í gegnum tíðina svo sem Jared Leto, leikarann og hjartaknúsarann Colin Farrell og rokkarana Ryan Adams og Jamie Burke.

Lohan segir að hún segi stundum sannleikann um ástarmálin, en stundum bregður hún á það ráð, ef hún er að hitta strák og vill ekki að slúðurblöðin komist að því, að hringja í vini sína og spyrja þá hvort það sé í lagi að hún segist vera að hitta þá. „Slúðurblöðin koma illa fram við mig og því fæ ég ekki samviskubit þótt ég fari illa með þau." Lohan heldur þó í vonina um að hún muni finna þann eina rétta og segist vera að prófa sig áfram í þeim efnum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.