Lífið

Brúðkaup

Kylie Minogue er á leiðinni upp að altarinu með unnusta sínum Olivier Martinez.
Kylie Minogue er á leiðinni upp að altarinu með unnusta sínum Olivier Martinez.

Söngkonan Kylie Minogue og unnusti hennar, franski leikarinn Olivier Martinez, ætla nú loksins að ganga upp að altarinu í september.

Skötuhjúin eru búin að panta lúxus­hótel í Suður-Frakklandi þar sem athöfnin mun fara fram. Búist er við um 200 manna veislu með öllu tilheyrandi og er Martinez búinn að panta söngvara hljómsveitarinnar Scissor Sisters, Jake Shears, til að syngja í veislunni.

Kylie tók sér frí frá skemmtana­bransanum þegar hún greindist með brjóstakrabbamein á síðasta ári. Nú virðist hún þó vera komin á fullu skrið á ný og er önnum kafin við að taka upp nýja plötu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.