Stílbrögð og töffaraskapur 9. ágúst 2006 10:00 MIami Vice Leikstjóri: Michael MannAðalhlutverk: Colin Farrell, Jamie Foxx, Li Gong, Naomie Harris @TónlistUmfjöllun Niðurstaða:Niðurstaða: Stílsnilli Michaels Mann nýtur sín í botn í þessari bestu aðlögun sjónvarpsefnis að kvikmyndaforminu síðan The Untouchables voru og hétu. Þetta er Miami Vice nýrra tíma. Töff mynd sem er sótthreinsuð af öllu daðri við níunda áratuginn.
Sjónvarpsþættirnir Miami Vice (1984-1989) eru tengdir „eitís“ tískunni órjúfanlegum böndum og Don Johnson sem fór þar með hlutverk löggunnar Sonny Crockett var aðaltöffari þessara ára, í bleikum stuttermabol með þriggja daga skegg. Þættirnir sjálfir hafa elst mun betur en fatatíska þessa tíma. Michael Mann var einn framleiðenda þáttanna og er óumdeildur stílisti þeirra. Það má segja margt gott um Mann en hann er fyrst og fremst brjálæðislega góður stílisti. Hann hefur getið sér gott orð fyrir myndir á borð við Manhunter, The Last of the Mohicans, Heat, The Insider og Collateral. Allar bera þessar myndir vott um stílfimi hans en með nýju Miami Vice myndinni toppar hann öll sín fyrri verk. Mann sleppir því blessunarlega að reyna að fanga stemningu og áferð níunda áratugarins en tekst samt að halda öllum helstu stíleinkennum sjónvarpsþáttanna. Töffið lekur því af hverjum ramma, með útpældum sviðsmyndum, fimleikum með tökuvélarnar og öðrum tæknilegum stílbrögðum. Þá eru aðalpersónurnar eitursvalar, bruna um á hraðskreiðum bílum, enn hraðskreiðari bátum og munda frethólka af öllum stærðum og gerðum af mikilli list eins og lög gera ráð fyrir í Miami. Þessi mynd er þvottekta Miami Vice fyrir nýja tíma og laus við alla nostalgíu. Löggutvíeykið Crockett og Tubbs er lausbyggt á nöfnum sínum úr sjónvarpinu. Þeir sigla sem fyrr undir fölsku flaggi og stunda stórviðskipti við eiturlyfjabaróna með það fyrir augum að uppræta dóphring sem teygir anga sína meðal annars til Kúbu og Kólumbíu. Mann eyðir engum tíma í kynningar á persónum og byrjar myndina á fullu gasi og maður þarf ekki að hafa séð einn einasta Miami Vice þátt til að njóta myndarinnar í botn. Hún er samt langt því frá að vera hasarmynd í hefðbundnum skilningi og eins og svo oft áður skrúfar Mann söguna áfram hægt og bítandi en þó af öryggi og krafti. Stílsnilli hans tryggir svo að manni leiðist aldrei og þeir sem vilja hasar verða síður en svo sviknir enda býður Mann upp á hressilega skotbardaga sem jafnast fyllilega á við djöfulganginn í Heat. Þá er myndin dæmigerð Mann-mynd fyrir þær sakir að hún vinnur á að sýningu lokinni, sækir á mann og kveikir löngun til þess að sjá hana aftur sem fyrst, þó ekki væri nema bara til þess að dást að stíliseraðri umgjörðinni. Jamie Foxx og Colin Farrell skila Tubbs og Crockett með sóma og fá báðir svigrúm til að kafa ofan í persónurnar, sem fá pláss til að njóta sín á kostnað hamagansins. Farrell er mátulega klístraður Crockett með hormottu og sítt að aftan. Þessi nýi Crockett er nógu ólíkur Don Johnson til þess að maður er fljótur að gleyma töffaranum í bleika bolnum og kaupir Farrell í hlutverkinu með húð og hári. Tubbs var alltaf hálf bjánalegur í þáttunum og stóð ætíð í skugga Johnsons. Foxx er hins vegar miklu öflugri leikari en Philip Michael Thomas og þeir Farrell skipta myndinni bróðurlega á milli sín og það má vart á milli sjá hvor sé meiri töffari. Miami Vice er eðal löggudrama sem bregst hvorki gömlum aðdáendum þáttanna né þeim sem kunna að meta góðar spennumyndir án þess að hafa hundsvit á bleikum bolum og hvítum pokabuxum.
Menning Mest lesið Danskur stórleikari þakklátur á Íslandi Lífið Vilhjálmur sagður upplifa sig illa svikinn Lífið Ástin blómstraði hjá Aroni Can og Ernu á Edition Lífið Karl Th. jarðsunginn í dag Lífið Kristín og Kolbeinn eiga von á janúarbarni Lífið Hvað veistu um... Pólland? Lífið Bónorð í háloftunum: „Manifestaði draumamanninn“ Lífið „Þetta er bara nútímavændi“ Lífið Sex hundruð sungu fyrir Brynhildi Menning Bein útsending: Skarsgård fyrir fullu Háskólabíói Lífið Fleiri fréttir Bein útsending: Skarsgård fyrir fullu Háskólabíói Kristín og Kolbeinn eiga von á janúarbarni Tvíburasystur fæddu börn sama dag á sama sjúkrahúsi Unnur Borg og Gugga saman í paradís Vilhjálmur sagður upplifa sig illa svikinn Bónorð í háloftunum: „Manifestaði draumamanninn“ Karl Th. jarðsunginn í dag Ástin blómstraði hjá Aroni Can og Ernu á Edition Danskur stórleikari þakklátur á Íslandi Love on the Spectrum-stjarna spókar sig á klakanum Hvað veistu um... Pólland? Pattra með pæju-padelmót Thelma og Sveinn Aron sjóðheitt par „Þetta er bara nútímavændi“ Sendi nýrri kærustu kveðju í stúkuna Stökk Ulrike Meinhof í heim hryðjuverkanna „Eins og þegar einangrunarplasti er strokið eftir glerrúðu“ Krabbameinið það besta sem hafi komið fyrir hann Dorrit þvoði hárið í íslenskri náttúru Danski leikstjórinn setti vini sínum afarkosti Stjörnulífið: Heitustu skvísur landsins mála Ibiza rauða Ungfrú Ísland teymið svarar fyrir sig Krefst þess að Elvar greiði sér miskabætur vegna hljóðbúts Fimmtug hjón vilja swinga með vinahjónum sínum Eyddi mörgum árum í að fela það sem aðrir tóku varla eftir „Bókmenntalegir palladómar frá mér ekki mikils virði“ Krakkatía vikunnar: Tjútt, tjull og feitir bangsar Sleppti því að þrífa símann í viku og niðurstaðan kom á óvart „Þegar ég syng finn ég mest fyrir pabba“ Fréttatía vikunnar: Kíró, tár og ræningjarenna Sjá meira