Fagnaður á svið á ný 20. september 2006 16:00 Fagnaði Fagnað í þjóðleikhúsinu Verk Nóbelskáldsins Harolds Pinters fer aftur á svið um helgina. MYND/Ómar
Leikritið Fagnaður eftir breska leikskáldið og Nóbelsverðlaunahafann Harold Pinter fer aftur á svið Þjóðleikhússins og verður fyrsta sýningin næstkomandi sunnudag. Harold Pinter, eitt frægasta leikskáld samtímans, hlaut Nóbelsverðlaunin í bókmenntum árið 2005 en leikritið Fagnaður er af mörgum álitið hans fyndnasta og aðgengilegasta verk í áraraðir. Pinter er eitt frumlegasta og merkasta leikskáld Breta á síðari hluta tuttugustu aldar en hann hefur á ferli sínum skrifað á þriðja tug leikrita og haft gífurleg áhrif á leiklistarlíf í Bretlandi, bæði sem leikstjóri og höfundur. Á síðari árum hefur Pinter látið mikið til sín taka á opinberum vettvangi en hörð gagnrýni hans á ríkisstjórnir Bretlands og Bandaríkjanna vegna stefnu þeirra í alþjóðastjórnmálum hefur vakið mikla athygli. Harold Pinter voru á þessu ári veitt evrópsku leiklistarverðlaunin, virtustu leiklistarverðlaun álfunnar. Mörg leikrita Pinters hafa verið sett upp á Íslandi; þau þekktustu eru Húsvörðurinn, Eins konar Alaska, Kveðjuskál, Heimkoman, Elskhuginn og leikritið Svik sem sett var upp hérlendis á síðasta ári. Fagnaður gerist á veitingastað í London þar sem matargestir eru allir að fagna einhverju. Undir niðri býr þó ógn og taugaveiklun sem ágerist þegar líður á. Verkið er margslungið og óvæntur húmor leikskáldsins nýtur sín vel. Í tengslum við endurupptöku sýningarinnar verður boðið upp á Kvöldstund með Pinter þau kvöld sem sýningar verða og verður þá boðið upp á næringu fyrir líkama og sál. Að loknum málsverði í Leikhúskjallaranum mun Martin Regal, dósent í ensku við Háskóla Íslands, flytja erindi um Pinter og verk hans en leiksýningin hefst síðan kl. 21.00. Leikstjóri Fagnaðar er Stefán Jónsson en leikarar eru Edda Arnljótsdóttir, Guðrún Gísladóttir, Hjálmar Hjálmarsson, Jón Páll Eyjólfsson, Kristján Franklín Magnús, Margrét Kaaber, Nanna Kristín Magnúsdóttir, Ólafur Darri Ólafsson og Ólafur Egill Egilsson. Þýðandi er Elísabet Snorradóttir, búningar eru í höndum Rannveigar Gylfadóttur, Björn Bergsteinn Guðmundsson sér um lýsingu og höfundur leikmyndar er Börkur Jónsson.
Menning Mest lesið Hvað er það versta sem þú hefur gert? Gagnrýni Þau syngja Þjóðhátíðarlagið í ár Lífið „Þetta pólýsamband er orðið að mormónahjónabandi“ Bíó og sjónvarp Yngsta systkinið fjögurra ára og það elsta fimmtíu og fimm Lífið Vilja fá fólk út í sumar með nýjum leik Lífið Endurlífguðu Kilmer með gervigreind fyrir fornleifamynd Bíó og sjónvarp Með líkamsræktaraðstöðu heima í stofu og var að klára bílskúrinn Lífið Hlustun á Bó snaraukist Tónlist Cruise tekur á loft í þriðja sinn Bíó og sjónvarp Útför Björgvins opin almenningi Lífið Fleiri fréttir Yngsta systkinið fjögurra ára og það elsta fimmtíu og fimm Vilja fá fólk út í sumar með nýjum leik Með líkamsræktaraðstöðu heima í stofu og var að klára bílskúrinn Þau syngja Þjóðhátíðarlagið í ár Útför Björgvins opin almenningi Báru fram kokteila í vatnsbyssum, páskaeggjum og kransakökum Einvígi aldarinnar endurtekið Svona er dagskrá Barnamenningarhátíðar í ár „Það er verið að kalla hana n-orðinu“ Fjölbreyttur hópur í dómnefnd Ungfrúar Íslands Fengið sinn skerf af áföllum í lífinu Krummi kveður pabba sinn Leikaraliðið í Leitinni að Gollri fullskipað: Jamie Dornan verður Aragorn Oddvitaáskorunin: Myndi vilja vera „sérfræðingur að sunnan“ Rákust á Mamdani yfir morgunbollanum Þetta er áratugurinn sem samtíminn saknar mest Hvað veistu um... Vetrarólympíuleika? Mætti í þáttinn til að vinna sér inn fyrir þurrkara Frumfluttu lag Barnamenningarhátíðarinnar fyrir káta krakka „Ég hef grátið því að ég var svo skotin í þér“ Uppeldið hjá ömmu og afa áhrifamest „Þetta lið á Akureyri vildi ekki gefa mér gullið“ Gurrý um svuntuaðgerðina: „Jesús hvað þetta er búið að vera erfitt“ Clavicular fluttur á spítala vegna ætlaðrar ofskömmtunar Oddvitar landsins takast á við Oddvitaáskorunina Óvænt ökuferð að ógleymanlegu augnabliki Umdeildum K-Pop stjörnum skipt út í Hörpu Opnar sig um andlát kærastans eftir skotárás í New York „Svo kom í ljós að þetta var alls ekki amma mín“ „Hún reyndi aldrei að koma í stað mömmu“ Sjá meira