Safnhaugur í heilastað 20. september 2006 15:15 Sylvía Vanden Heeden rithöfundur Varð rithöfundur fyrir slysni en hefur verið sískrifandi síðan. MYND/Pjetur
Flæmski rithöfundurinn Sylvía Vanden Heeden líkir höfuðinu á sér við safnhaug. Þar sé allt fullt af handahófskenndum upplifunum en í óreiðunni verða samt til frjósamar afurðir og ein þeirra er sagan um Rebba og Héru. "Ég byrjaði að skrifa því ég gat ekki gert neitt annað," segir Sylvía kímin. "Ég ætlaði mér að verða listamaður og fór í listaskóla. Ég hef verið að skrifa smásögur frá því ég var 9-10 ára og mig dreymdi um að skrifa bækur en óraði aldrei fyrir því að neitt yrði gefið út." Hún segist jafnan hafa byrjað með mikilfenglegan titil og langan efnislista. "Ég byrjaði á einum kafla og skrifaði annan og kannski síðustu setninguna í sögunni en kláraði aldrei það sem þurfti að vera á milli. Maður þarf sjálfsaga til að skrifa bækur og ég hafði hann hreinlega ekki." Núna er Sylvía búin að skrifa liðlega þrjátíu bækur af ýmsum toga. Eftir að hún hreppti verðlaunasæti í samkeppni um sögur fyrir unga lesendur kom fyrsta bókin hennar út, 1987, og hún hefur verið sískrifandi síðan. "Allt í einu var ég orðinn rithöfundur, eins og fyrir algjöra slysni," segir hún í gríni. Sylvía segist skrifa allt nema ljóð. "Bækurnar mínar eru mjög ólíkar, ég skrifa fyrir börn á aldrinum 6-16 ára en líka myndabækur fyrir yngri lesendur, sögulegar skáldsögur og sálfræðilegar sögur fyrir fullorðna. Ég skrifa fantasíur eins og Rebba og Héru en líka sögur um dýr sem ekki ganga í fötum eða tala," áréttar hún. Reyndar gleyma lesendur oft að hún hefur skrifað fleiri bækur en sögurnar um þá títtnefndu vini. "Það hafa komið út átta bækur um þau og sú fyrsta er komin út á íslensku." Sögurnar um Rebba, Héru og vini þeirra þykja með eindæmum hugljúfar og hafa notið gríðarlegra vinsælda um allan heim á undanförnum árum. Fyrsta bókin um Rebba og Héru segir frá vetri í skóginum og er sérstaklega hugsuð fyrir börn sem eru að byrja að lesa. "Ég skrifaði þessa bók með unga lesendur í huga. Þeim finnst auðveldara að byrja á stuttum orðum og setningum en svo lengjast þau eftir því sem líður á söguna. Þetta er svona saga sem vex með barninu en það er auðvelt að byrja á henni." Sögurnar hafa ílengst á metsölulistum um alla Evrópu og hugmyndin hefur undið talsvert upp á sig, búið er að gera tölvuleiki eftir bókunum og gefa út orða- og uppskriftabók í sömu seríu. Sylvía segist sjaldan þurfa að leita innblásturs fyrir skriftirnar, hugmyndirnar flæði nokkuð greiðlega en hún líkir höfðinu á sér við safnhaug. "Ég er ekki með heila, bara safnhaug," segir hún hlæjandi. "Þú veist að safnhaugurinn er í raun og veru bara rusl en úr honum verður samt frjósamur jarðvegur. Allt sem ég sé og upplifi fer á safnhauginn, flestu gleymi ég, eins og til dæmis hvar ég set lyklana mína, en svo geta verið litlir hlutir eða hugmyndir þar sem breiða úr sér, blómstra og úr verður saga."
Menning Mest lesið Hvað er það versta sem þú hefur gert? Gagnrýni Þau syngja Þjóðhátíðarlagið í ár Lífið „Þetta pólýsamband er orðið að mormónahjónabandi“ Bíó og sjónvarp Cruise tekur á loft í þriðja sinn Bíó og sjónvarp Útför Björgvins opin almenningi Lífið Krummi kveður pabba sinn Lífið Fengið sinn skerf af áföllum í lífinu Lífið Með líkamsræktaraðstöðu heima í stofu og var að klára bílskúrinn Lífið Kaldir pottar eru orðnir hluti af daglegri rútínu margra landsmanna Lífið samstarf Rákust á Mamdani yfir morgunbollanum Lífið Fleiri fréttir Með líkamsræktaraðstöðu heima í stofu og var að klára bílskúrinn Þau syngja Þjóðhátíðarlagið í ár Útför Björgvins opin almenningi Báru fram kokteila í vatnsbyssum, páskaeggjum og kransakökum Einvígi aldarinnar endurtekið Svona er dagskrá Barnamenningarhátíðar í ár „Það er verið að kalla hana n-orðinu“ Fjölbreyttur hópur í dómnefnd Ungfrúar Íslands Fengið sinn skerf af áföllum í lífinu Krummi kveður pabba sinn Leikaraliðið í Leitinni að Gollri fullskipað: Jamie Dornan verður Aragorn Oddvitaáskorunin: Myndi vilja vera „sérfræðingur að sunnan“ Rákust á Mamdani yfir morgunbollanum Þetta er áratugurinn sem samtíminn saknar mest Hvað veistu um... Vetrarólympíuleika? Mætti í þáttinn til að vinna sér inn fyrir þurrkara Frumfluttu lag Barnamenningarhátíðarinnar fyrir káta krakka „Ég hef grátið því að ég var svo skotin í þér“ Uppeldið hjá ömmu og afa áhrifamest „Þetta lið á Akureyri vildi ekki gefa mér gullið“ Gurrý um svuntuaðgerðina: „Jesús hvað þetta er búið að vera erfitt“ Clavicular fluttur á spítala vegna ætlaðrar ofskömmtunar Oddvitar landsins takast á við Oddvitaáskorunina Óvænt ökuferð að ógleymanlegu augnabliki Umdeildum K-Pop stjörnum skipt út í Hörpu Opnar sig um andlát kærastans eftir skotárás í New York „Svo kom í ljós að þetta var alls ekki amma mín“ „Hún reyndi aldrei að koma í stað mömmu“ „Ég var mjög skrítinn krakki“ Bryndís Líf orðin móðir Sjá meira