Ungt listafólk fær styrk 18. september 2006 06:00 Styrkir til framhaldsnáms í listum. Styrkhafarnir í ár voru Dodda Maggý Kristjánsdóttir og Ragnar Jónasson en faðir hans, Jónas Ragnarsson, tók við styrknum fyrir hans hönd. MYND/Vilhelm
Listamennirnir Dodda Maggý Kristjánsdóttir og Ragnar Jónasson hlutu styrki úr minningarsjóði Guðmundu Andrésdóttur listmálara við hátíðlega athöfn um helgina. Guðmunda lést árið 2002 en hún tilheyrir þeirri kynslóð listamanna sem á sjötta áratug síðustu aldar ruddi abstraktlistinni braut í íslenskri listasögu. Innan þess tjáningarforms þróaði hún persónulegan stíl sem gerir framlag hennar til íslenskrar samtímalistar bæði sterkt og áhrifamikið. Hún arfleiddi Listasafn Íslands, Listasafn Háskóla Íslands og Listasafn Reykjavíkur að listaverkum sínum. Ráðstöfunarfé sjóðsins er raunvextir af höfuðstól og ákvað stjórn sjóðsins, sem er skipuð safnráði Listasafns Íslands, að ráðstafa að þessu sinni þremur milljónum króna sem deilast jafnt milli styrkhafanna tveggja. Markmið sjóðsins er að hvetja og styrkja unga og efnilega myndlistarmenn til náms en hann styrkir að þessu sinni myndlistarnema til framhaldsmenntunar. Dodda Maggý mun hefja nám við Konunglegu Listaakademíuna í Kaupmannahöfn en Ragnar stundar sitt nám við Glasgow School of Arts. Það er fyrst og fremst mikill heiður að hafa hlotið þennan styrk, segir Dodda Maggý, sem er að vonum ánægð með útnefninguna. Hún bætir því við að fjárhæðin komi sér líka vel því hún hefur verið starfandi myndlistarmaður frá því hún lauk námi í Listaháskóla Íslands árið 2004 en hefur lítið getað safnað sér í námssjóð á þeim tíma. Verk hennar má nú sjá á samsýningunni Prójekt Patterson sem stendur yfir í Galleríi Suðsuðvestur í Reykjanesbæ en Dodda Maggý vinnur einkum með vídeó og tónlist. Ég blanda líka þessum miðlum saman, vinn með ólíkar stemningar og framvindu og bý til litlar sögur, segir hún. Dodda Maggý hefur haldið fáar sýningar hér á landi en sýnt þeim mun meira erlendis, til dæmis í París, New York og víðar í Bandaríkjunum en hún er nú á leið til Berlínar þar sem hún mun taka þátt í listahátíðinni Berliner Liste.
Menning Mest lesið „Þetta er bara nútímavændi“ Lífið Krefst þess að Elvar greiði sér miskabætur vegna hljóðbúts Lífið Ungfrú Ísland teymið svarar fyrir sig Lífið Thelma og Sveinn Aron sjóðheitt par Lífið Sendi nýrri kærustu kveðju í stúkuna Lífið Eyddi mörgum árum í að fela það sem aðrir tóku varla eftir Lífið Danski leikstjórinn setti vini sínum afarkosti Lífið Seiðandi Alaska heillaði gesti upp úr skónum Tónlist Stjörnulífið: Heitustu skvísur landsins mála Ibiza rauða Lífið „Eins og þegar einangrunarplasti er strokið eftir glerrúðu“ Lífið Fleiri fréttir Thelma og Sveinn Aron sjóðheitt par „Þetta er bara nútímavændi“ Sendi nýrri kærustu kveðju í stúkuna Stökk Ulrike Meinhof í heim hryðjuverkanna „Eins og þegar einangrunarplasti er strokið eftir glerrúðu“ Krabbameinið það besta sem hafi komið fyrir hann Dorrit þvoði hárið í íslenskri náttúru Danski leikstjórinn setti vini sínum afarkosti Stjörnulífið: Heitustu skvísur landsins mála Ibiza rauða Ungfrú Ísland teymið svarar fyrir sig Krefst þess að Elvar greiði sér miskabætur vegna hljóðbúts Fimmtug hjón vilja swinga með vinahjónum sínum Eyddi mörgum árum í að fela það sem aðrir tóku varla eftir „Bókmenntalegir palladómar frá mér ekki mikils virði“ Krakkatía vikunnar: Tjútt, tjull og feitir bangsar Sleppti því að þrífa símann í viku og niðurstaðan kom á óvart „Þegar ég syng finn ég mest fyrir pabba“ Fréttatía vikunnar: Kíró, tár og ræningjarenna Segir stjórnendur Ungfrú Ísland hafa gert upp á milli keppenda Taka upp Netflix þætti í miðbænum og Tina Fey óvæntur gestur Laug um að Jay-Z hefði nauðgað henni „Bjóða upp á einhverja díla sem meika engan sens og undirbjóða allt“ „Það voru margir með tár á hvarmi“ Svín út um allt í fallegu einbýli Björns Braga Margot Robbie ekki lengur Margot Robbie Hvað veistu um… kvikmyndahátíðir? Kærasta Love Island stjörnunnar Davide í fangelsi Birgitta mætti sem fimleikakona, markmaður, leikmaður og þjálfari Taylor og Taylor nefndu barnið Taylor Þú trúir ekki hvað lögreglan gerði við sönnunargagnið Sjá meira