Lífið

Offita olli dauða

Leikarinn Sean Penn heldur á sígarettu á blaðamannafundinum í Toronto.
Leikarinn Sean Penn heldur á sígarettu á blaðamannafundinum í Toronto.

Leikarinn Sean Penn segir að bróðir sinn Chris hafi dáið af völdum offitu en ekki vegna áfengis- og eiturlyfjanotkunar. "Á ákveðnum tímabilum í lífi sínu fór hann mjög illa með sjálfan sig en það var ekki það sem gerðist undir það síðasta," sagði Penn í viðtali við Larry King á CNN.

Penn sagði að bróðir sinn, sem lést í janúar, hefði dáið af eðlilegum orsökum, að hluta til vegna vímuefnanotkunar sinnar en aðallega vegna offitu.

Meðal þess sem fannst í líkama Chris við krufningu var valíum, morfín og maríjúana. Penn segir þá bræðurna hafa verið mjög nána. "Þetta er hluti af þér en svona er lífið og fólk þarf oft að ganga í gegnum svona lagað," sagði hann.

Penn hefur að undanförnu verið staddur á kvikmyndahátíðinni í Toronto til að kynna nýjustu mynd sína All the King"s Men. Vakti hann mikla reiði í borginni eftir að hann sást reykja sígarettur á blaðamannafundi á Sutton Place-hótelinu. Á hann yfir höfði sér rúmar fjörutíu þúsund króna sekt fyrir athæfið.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.