Segir landsmótið það besta allra tíma 3. júlí 2006 06:45
Framkvæmd og gott skipulag þessa móts gerir það að besta landsmóti allra tíma, segir Hulda Geirsdóttir fjölmiðlafulltrúi Landsmóts hestamanna. Hún þakkar þennan góða árangur þrotlausri vinnu frábærs starfsliðs. Sérstaklega vil ég nefna björgunarsveitarmennina og lögregluna sem hafa verið mjög sýnilegir, segir Hulda og bætir við að hestarnir hafi einnig slegið í gegn og gert mótið einstakt. Þar ber af ótrúleg geta hjá ungum hrossum, heimsmet sem hafa verið sett og spútnikkeppendur sem komið hafa fram sem er alltaf líflegt og skemmtilegt, segir Hulda. Veðrið lék við gesti fyrir utan nokkra rigningardropa sem féllu síðasta daginn. Þegar kom að lokaatriði mótsins sem er úrslitakeppni í A-flokki gæðinga, læddi sólin sér í gegnum skýin og gladdi mótsgesti. Á Vindheimamelum voru um ellefu þúsund manns þegar mest lét. Vel tókst að halda friðinn meðal fólksins. Hestamót eru ekki lengur neinar sukkhátíðir, segir Ólafur Ásgeirsson aðstoðaryfirlögregluþjónn á Akureyri sem hefur haft umsjón með löggæslu á landsmótinu og verið við löggæslu á mörgum hestamótum. Þetta hefur gengið alveg ótrúlega vel. Fimmtudags- og föstudagskvöldin voru bara mjög fín en aðeins meira að gera aðfaranótt sunnudags, segir Ólafur, nokkuð var um stympingar en ekkert sem ekki varð ráðið við. Nokkrir voru teknir vegna ölvunar við akstur um helgina en lögreglan tók mörg hundruð manns í tékk. Þrátt fyrir að vel hafi tekist til er alltaf hægt að gera betur. Við munum fara yfir öll atriði eftir mótið en það er ekkert eitt sérstakt sem stingur, segir Hulda sem telur of snemmt að segja hvort mótið beri sig fjárhagslega. Ef við sleppum nokkurn veginn á sléttu erum við sátt, segir hún.
Innlent Mest lesið Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Innlent „Ef ég hefði ekki farið upp á heilsugæslu þá hefði ég ekki fengið heilablóðfall“ Lífið Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Innlent Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Innlent Öll hin látnu um og undir tvítugu Innlent „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Innlent Ungum Pólverja best treyst til forystu í Langanesbyggð Innlent Glæpaforingi dæmdur fyrir morðið á Tupac Erlent Myndasyrpa: Síðasti kvöldfréttatími Sýnar Lífið Kviknaði í jeppa á Reykjanesbraut Innlent Fleiri fréttir SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Norðausturland fær loks langþráðan veg Tjón vegna skemmdarverka hlaupi á milljónum Rætt við vitni að banaslysinu og eldri borgarar ósáttir með skattahækkun Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Rún frá Veitum til Þorgerðar Katrínar Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Hlaup af þessari stærðargráðu vel þekkt í Múlakvísl Kviknaði í jeppa á Reykjanesbraut Leggja til að Evrópusambandsumsóknin verði formlega dregin til baka Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Sakborningur í Kársnesmáli sóttur til Spánar Sinntu hávaðatilkynningum í heimahúsum „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Enn óljóst hvað verður um umsóknina Ungum Pólverja best treyst til forystu í Langanesbyggð Þurfi að hækka laun og fjölga frídögum Öll hin látnu um og undir tvítugu „Við segjum ekki bless, við segjum takk“ Síðasti kvöldfréttatími Sýnar „Ríkið á stóra sök á þessu“ Líka slæmar fréttir fyrir Rúv Á morgun mega hommar gefa blóð Tekjuáætlun verulega undir áætlun „Þetta mun auka enn á vald Ríkisútvarpsins“ Metfjöldi kvartana Ekkert ákveðið á fundinum: „Það væru fráleit viðbrögð við þessari niðurstöðu“ Þrjú ungmenni létust í bílslysinu á Krýsuvíkurvegi Skora á stjórnvöld að tryggja fasta viðveru þyrlu á Akureyri Reiðarslag fyrir fréttaflutning á Íslandi Sjá meira