Drakk úr einni flösku 30. júní 2006 07:00 Romas Kosakovskis í héraðsdómi Drakk eina af þeim sex flöskum sem hann reyndi að smygla inn til landsins í febrúar. Hinar fimm flöskurnar innhéldu sterkan amfetamínbasa og brennisteinssýru. MYND/GVA
Mál Romasar Kosakovskis, Litháans sem handtekinn var í Leifsstöð í febrúar er hann reyndi að smygla sex flöskum af amfetamínbasa og brennisteinssýru inn til landsins, var tekið fyrir í dómi í gær. Flöskurnar fundust við gegnumlýsingu hjá tollgæslunni á Keflavíkurflugvelli og vitnuðu tollverðir fyrir dómi að grunsemdir hefðu vaknað þegar í ljós hafi komið við skoðun að á þær vantaði innsigli og ómögulegt hafi reynst að opna þær. Flöskurnar voru ein tekílaflaska, fjórar Perrier og ávaxtasafi. Tveir tollverðir báru vitni fyrir dómi að Romas hafi um leið og ferðataskan hans var opnuð, gripið eina Perrier-sódavatnsflöskuna, opnað hana og fengið sér að drekka. Fyrir dómi kom fram að hinar fjórar Perrier-sódavatnsflöskurnar hafi innihaldið amfetamínbasa og brennisteinssýru, en að sögn Jakobs eiturefnafræðings hefði innihald þeirra dugað margfalt til að bana Romasi. Brennisteinssýra er nauðsynleg til að vinna efni úr amfetamínbasa til neyslu að sögn Jakobs Kristinssonar, dósents í eiturefnafræði, sem bar vitni fyrir dómnum. Saksóknari sagði við dóminn að vökvinn sem Romas flutti hingað til lands, hefði dugað til að framleiða sautján og hálft kíló af amfetamíni. Romas bar fyrir rétti að hann hafi verið neyddur til að drekka eina flöskuna og að mikill magaverkur hafi gert vart við sig þremur til fjórum tímum síðar. Hann hafi þá haft samband við lækni, sem hafi ráðlagt honum að drekka vatn. Romas segist hafa keypt flöskurnar í góðri trú á götumarkaði í Kaunas, heimaborg sinni í Litháen, þar sem búa tæplega sjö hundruð þúsund manns að hans sögn. Hann gaf lögreglu lýsingu á manni sem seldi honum flöskurnar, við skýrslugerð hjá lögreglu, en lögregla ákvað að aðhafast ekkert frekar í málinu og reyndi ekki að finna umræddan mann. Romas bar fyrir rétti að tilgangur ferðar hans hingað til lands hefði verið að fara í frí. Hann segist ekki hafa ætlað að hitta neinn hér á landi, en í lögregluskýrslu sem tekin var af honum við handtökuna sagðist hann hafa ætlað að hitta einhverja Kristínu sem hann kynntist á netinu. Lögreglu hefur ekki tekist að hafa upp á umræddri konu þrátt fyrir ítrekaðar tilra unir. Við komu Romas til Íslands fundust á honum, auk ofangreinds, tveir farsímar. Hann sagði fyrir rétti er hann var spurður um ástæðu þess að hann ferðaðist með tvo farsíma, að hann tæki yfirleitt tvo farsíma með sér í ferðalög ef annar skyldi bila. Dómur verður upp kveðinn í málinu eftir þrjár vikur.
Innlent Mest lesið Undrast „leiðinlega“ Íslendinga Innlent Skora á Bubba að taka sér pásu frá laxveiði og mæta Innlent Trúði ekki að siglt yrði úr höfninni: „Mér leið svo illa, ég fór að hágráta“ Innlent Þungt haldinn eftir að kýr réðst á tvo Erlent Segir Reykjavík að verða að Mekka vændisiðnaðar Innlent Lést í slysi á Hálsasveitarvegi Innlent „Ég hef verið kölluð þingmaður dauðans“ Innlent „Þetta er kannski dýrasta tækið sem barnið á“ Innlent Hópur fólks hafi setið um matinn í frískápnum Innlent „Verulega áhugaverður fávitaskapur“ Innlent Fleiri fréttir Undrast „leiðinlega“ Íslendinga Skora á Bubba að taka sér pásu frá laxveiði og mæta „Ég hef verið kölluð þingmaður dauðans“ Segir Reykjavík að verða að Mekka vændisiðnaðar Trúði ekki að siglt yrði úr höfninni: „Mér leið svo illa, ég fór að hágráta“ Höfuðvígi vændismansals, mótmælandi sem brotnaði niður og Þingvellir Björgunarsveitir sóttu göngumann við Háafoss Þingið komið í sumarfrí Samþykkja úrræði fyrir fólk sem sæta þarf öryggisráðstöfunum Óljós um tilganginn en þekktu hvert egg Allt eftirlit matvæla undir einni stofnun Boltinn sé hjá fjarskiptafélögunum Fresta opnun Sundhallar Reykjavíkur Áhöfnin hlúði að Hólmsteini á siglingunni til Hvalfjarðar Vetur í íslenskri kvikmyndagerð Handtökur í vændisrannsókn lögreglu Hjartaljósin ekki sloppin „Virðist vera einhverskonar gamaldags sjómennskuhefndaraðgerð“ Stór mál á dagskrá síðasta þingfundar fyrir þingfrestun Lést í slysi á Hálsasveitarvegi Hvalavinurinn í tunnunni og Kaleo undirbýr Þingvallakonsert Inga ræddi við fulltrúa Tiktok um að hækka aldursmörk Halda í opinbera heimsókn til Færeyja Dómur burðardýrs mildaður Starmer ætlar ekki að láta í minni pokann fyrir Burnham strax Einn vildi sýkna þegar dómur fyrir sérlega sársaukafulla nauðgun var staðfestur Ólafur Þ. Harðarson sakaður um fánaslugs „Þetta er kannski dýrasta tækið sem barnið á“ Tveir á slysadeild eftir eld í Jörfabakka Stefna á að ljúka þingi í dag Sjá meira