Röð af óhöppum 29. júní 2006 07:15 "
Hér er um röð af óhöppum að ræða, ég vil ekki tala um að neinn hafi gert mistök," segir Árbjörn Magnússon, yfirsundlaugarvörður í sundlaug Eskifjarðar, um klórmengunina sem átti sér stað á þriðjudaginn. Daginn eftir slysið var enn megn klórlykt inni í sundlaugarbyggingunni. Eins og komið hefur í ljós var orsök mengunarslyssins sú að ediksýru var dælt í klórtank sundlaugarinnar fyrir mistök. Slanga var tengd úr tanki sem var í bíl við hliðina á sundlauginni og starfsmaður Olís var við bílinn þegar dælun hófst. Að sögn Árbjörns varð starfsmaðurinn strax var við að ekki væri allt með felldu og tjáði Árbirni að hér væri klórgas á ferð. "Þegar hann sá þessa gulu slikju koma frá tankherberginu sagði hann mér að hlaupa strax inn og hringja á slökkviliðið, hann þekkti það um leið að þetta væri klórgas." Árbjörn segir það lán í óláni að klórtankurinn var næstum því tómur og verr hefði getað farið. Árbjörn sá að sundlaugargestir gripu um vit sín og hlupu inn í búningsklefana en klórgasið hafði dreifst út um allt hús gegnum loftræstikerfið. Ástandið var því síst skárra þar. Árbjörn hringdi strax í neyðarlínuna og sundlaugarverðir drifu sundlaugargesti út undir bert loft. Lögreglan mætti strax á staðinn og tók yfir stjórn á vettvangi. Árbjörn segir að starfsmaður Olís hafi getað veitt lögreglu allar upplýsingar á staðnum. Starfsmönnum sundlaugarinnar var ekki hleypt aftur inn í sundlaugina fyrr en um kvöldið, eftir að jafnvægi hafði verið komið á klórtankinn og loftið hreinsað. "Fólk hefur mikið verið að hringja í dag og spyrja um fötin sín," segir Árbjörn en fæstir höfðu tíma til að grípa fötin með sér á hlaupum út úr byggingunni. Árbjörn er mjög ánægður með viðbrögð lögreglu og annarra í þessum aðstæðum. "Þetta gekk allt mjög hratt fyrir sig og allir stóðu sig vel."
Innlent Mest lesið Verjanda Helga Bjarts nóg boðið Innlent Afleiðingarnar af systkinabroti séu verri en brotið sjálft Innlent Launahækkun Höllu illskiljanleg Innlent Föst í Herjólfi í korter eftir langa ferð frá Eyjum Innlent Faðirinn skaut sjö börn sín til bana og eitt til viðbótar Erlent Stór skálfti í Japan og flóðbylgjuviðvörun gefin út Erlent Vinstrið eygir þrjá borgarfulltrúa og sjálfstæðismenn þann sjöunda Innlent Stjórnvöld í Tehran sögð orðin afhuga samningaviðræðum Erlent Nánast búin með stafrófið Innlent Skýringar manns sem vildi „endurvekja þýsku sturturnar“ héldu ekki vatni Innlent Fleiri fréttir Þórdís Kolbrún skipuð sendiherra Nánast búin með stafrófið Útlit fyrir flókna meirihlutamyndun í borginni Launahækkun Höllu illskiljanleg Verjanda Helga Bjarts nóg boðið Mandarínönd heillar við Hamarkotslæk Öll tólf mánaða börn fá leiksskólapláss í Kópavogi Vilja að fullorðnir lofi að búa til rými þar sem börn geta sagt frá Vinstrið eygir þrjá borgarfulltrúa og sjálfstæðismenn þann sjöunda Bein útsending: Samtal um atvinnustefnu og aðgerðir í þágu verðmætasköpunar Afleiðingarnar af systkinabroti séu verri en brotið sjálft Sagðist ætla að kveikja í hundi áður en hann rændi gull- og demantsmunum Föst í Herjólfi í korter eftir langa ferð frá Eyjum Skýringar manns sem vildi „endurvekja þýsku sturturnar“ héldu ekki vatni Nánast hreint kókaín í umferð en ekkert fentanyl Ofsaakstur um allt höfuðborgarsvæðið Nám Hildar sé merkilegra en menntunarfræði leikskóla „Ég sé engin rök fyrir því“ „Það er bara frekar slæmt ástand“ Inga sendir boltann á sveitarfélögin „Hver hefur reynslu af því að byrla eiginkonu sinni?“ Vill verja hundruðum milljóna í þegar dýrt leikskólakerfi „Eitthvað það tilgerðarlegasta og hallærislegasta sem ég hef séð“ Þúsundir karla byrla eiginkonum sínum og nauðga Inga of upptekin til að funda: „Við höfum ekki fjármagn, engan stuðning“ „Lóa í Víðum“ sveitarstjóraefnið Aðildar- eða aðlögunarviðræður, djúptækni og tekist á í borginni Innbrot í kirkju og slagsmál í strætisvagni Flugvél lenti á hvolfi í Mosfellsbæ Grunaður í tengslum við eld á heimili eiginkonu sinnar Sjá meira