225 þúsund látin 19. janúar 2005 00:01
Flóðbylgjurnar sem skullu á ellefu ríkjum Suður-Asíu og austanverðrar Afríku kostaði fleiri menn lífið en allar nema einar náttúruhamfarir síðustu rúmlega hundrað ára. Indónesar staðfestu í gær andlát rúmlega 50 þúsund manns sem fram að því höfðu verið flokkaðir sem týndir. Eftir þetta er ljóst að í það minnsta 225 þúsund manns lét lífið af völdum flóðbylgjunnar. Einu náttúruhamfarirnar síðustu rúmlega hundrað árin sem hafa kostað fleira fólk lífið en flóðbylgjan í Asíu var jarðskjálftinn sem skók Tangshan í Kína í júlí 1976. Þá létu 255 þúsund manns lífið, 30 þúsund fleiri en nú er vitað til að hafi látið lífið af völdum flóðbylgjunnar. Tala látinna getur enn hækkað, þrátt fyrir að ljóst sé að aldrei fæst endanlega úr því skorið hversu margir nákvæmlega létust. Tölur um fjölda látinna á Sri Lanka eru til að mynda mjög á reiki. Ráðuneyti almannavarna segir rúmlega 38 þúsund manns hafa látist af völdum flóðbylgjunnar en Hamfaraviðbragðastofnunin segir tæplega 31 þúsund manns hafa látist. Fundi þeirra í gær þar sem fá átti á hreint hversu margir hefðu látist lauk án niðurstöðu. "Báðir staðhæfa að þeirra tölur séu réttar," sagði Niranjan de Soysa, talsmaður Hamfaraviðbragðastofnunarinnar, í samtali við AP-fréttastofuna. Þrátt fyrir að mannfallið af völdum flóðbylgjunnar sé gríðarlegt voru mannskæðustu náttúruhamfarir mannkynssögunnar miklu mun verri. Jarðskjálftinn sem reið yfir Shensi hérað í Kína árið 1556 er talið hafa kostað 830 þúsund manns lífið. 150 fulltrúar sitja alþjóðlega ráðstefnu um varnir við náttúruhamförum sem hófst í Tókíó, höfuðborg Japan, í gær. Jan Egeland, fulltrúi Sameinuðu þjóðanna á ráðstefnunni, sagði að margar af fjölmennustu borgum heims væru viðkvæmar fyrir náttúruhamförum. "Ógnvænlegasta tilhugsunin væri sú að gríðarlegar náttúruhamfarir riðu yfir tugmilljónaborg," sagði hann. Hann sagði að við verstu mögulegu aðstæður kynni mannfallið að verða hundrað sinnum meira en af völdum flóðbylgjunnar.
Erlent Fréttir Mest lesið Sex handteknir og um verulegt magn sterkra efna að ræða Innlent Hafi selt alls konar fíkniefni í gegnum „Kannabis Inc“ Innlent „Ég reikna sterklega með því að karma banki upp á hjá þeim“ Innlent Góðkunningjar lögreglu grunaðir í stóru dópmáli Innlent Segist ekki munu biðja páfa afsökunar Erlent Hyggst banna mánaðarlega hækkun leigu Innlent Áfrýja ekki dómi vegna dauða dóttur þeirra Innlent Svikarar við þjóðina verði dregnir til ábyrgðar Erlent Unnar kjötvörur af matseðli í skólum: „Stranglega bannað að hafa pylsupartý“ Innlent Vara dýraeigendur við: Gruna að eitrað hafi verið fyrir tveimur dýrum Innlent Fleiri fréttir Kona forsætisráðherra Spánar ákærð fyrir spillingu Staðfesting úrslita dönsku kosninganna í uppnámi Stórt smyglmál til rannsóknar og eitrað fyrir gæludýrum í Kjós Lýsir yfir fyrsta sigri vélmenna á vígvellinum Svikarar við þjóðina verði dregnir til ábyrgðar Segist ekki munu biðja páfa afsökunar Hezbollah mótmælir viðræðum og Íranir krefjast skaðabóta Mótmæla samruna Paramount og Warner Bros Öllum írönskum skipum útrýmt nálgist þau herkví Ótrúleg valdatíð Viktors Orban á enda Páfi hvergi banginn þrátt fyrir atyrði Trump Innanbúðarmaðurinn sem lagði Orbán Gerir yfirbót eftir vítisenglahótanir um páskana Trump hjólar í páfa Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Olíuverð hækkar enn meir í ljósi hótana Trumps Orbán játar sig sigraðan Orbán skákað í síðustu skoðanakönnuninni Faðir Mary drottningar látinn Mette Frederiksen leitar yfir miðju Trump setur blátt bann við siglingum um Hormússund Allra augu verða á Ungverjalandi í kvöld Íri réðst á bandaríska herflugvél með öxi Friðarviðræður runnu út í sandinn Komið að ögurstundu Níu ára drengur læstur í bíl föður síns í Frakklandi frá árinu 2024 Trump „alveg sama“ um hvort samkomulag náist við Íran Augliti til auglitis í fyrsta sinn frá íslömsku byltingunni „Arc de Trump“ rísi í Washington Fullkomin lending eftir sögulega ferð Sjá meira