Vilja styrkja háskóla enn frekar 15. júní 2005 00:01
Tímamót urðu í sögu háskólastigsins í morgun þegar rektorar allra háskóla landsins undirrituðu sameiginlega yfirlýsingu um að styrkja háskólana enn frekar og standa vörð um akademískt frelsi. Þetta er í fyrsta skipti sem íslenskir háskólar gefa út sameiginlega yfirlýsingu um forsendur háskólastarfs og akademískt frelsi, en hún var undirrituð í hástíðarsal Háskóla Íslands í morgun. Í henni kemur fram að hlutverk háskóla sé að skapa skilyrði til frjálsrar þekkingarleitar, þekkingarsköpunar, varðveislu og miðlunar á sviði vísinda, fræða og lista. Segir að með starfsemi sinni þjóni háskólar fræðunum og langtímahagsmunum samfélagsins. Kveðið er á um þá stjórnunarhætti sem standa vörð um akademísk frelsi sem felur í sér að einstaklingur geti leitað þekkingar og tjáð sannfæringu sína án þess að eiga á hættu að það bitni á starfsöryggi hans eða öðrum mikilvægum hagsmunum. Í sameiginlegri yfirlýsingu háskólarektoranna kemur einnig fram að háskólar skuli haga ráðningum og framgangi akademískra starfsmanna samkvæmt faglegu matsferli. Einnig hefur verið ákveðið að koma á samstarfi á milli skólanna um margvísleg fagleg háskólamálefni og verður stefnt að því að skólarnir standi sameiginlega að ýmsum verkefnum í þágu fjölbreyttrar og góðrar háskólamenntunar sem standist alþjóðlegar kröfur.
Fréttir Innlent Mest lesið Athafnamaður sagður handtekinn í Leifsstöð Innlent Meirihlutinn sprakk eftir fjóra mánuði Innlent Skólabörn sáu nakinn hótelgest úr skólastofunni Innlent Sýknaður eftir að hafa skotið mann til bana í dyragættinni Erlent Fólk láti reyna á húsráð áður en það leiti á yfirfulla Læknavakt Innlent Handtekin í Bandaríkjunum grunuð um njósnir Erlent Lægðin ætlar ekki að láta okkur í friði alveg strax Veður „Veit ekki hvort maður á að hlæja eða gráta eða brosa“ Innlent Hyggst ná öllu landsvæðinu af Hútum Erlent Ekki eina leiðin til að uppfylla skuldbindingar Íslands Innlent Fleiri fréttir Tveir komnir með höfuðið inn um gluggann Athafnamaður sagður handtekinn í Leifsstöð Skólabörn sáu nakinn hótelgest úr skólastofunni Meirihlutinn sprakk eftir fjóra mánuði Ekki eina leiðin til að uppfylla skuldbindingar Íslands „Veit ekki hvort maður á að hlæja eða gráta eða brosa“ Fólk láti reyna á húsráð áður en það leiti á yfirfulla Læknavakt Sveitarstjórnin flytur sig um set vegna myglu Röð skjálfta ekki áhyggjuefni út af fyrir sig Gera þurfi breytingar á þingsköpum til að efla virðingu og traust Arnarnesvegur opnar loks á morgun „Þeir eru að borða gras úr garðinum og snigla“ Skjálfti upp á 3,4 „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Banaslys á Austurlandi og barátta upp á líf og dauða Hafði lítil afskipti af veisluhöldum Vítisenglanna Sprengisandur: Pólitíkin, fíknimeðferð og neistinn kveiktur Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Ók bílnum yfir kant og upp á gras en hafnaði að lokum á ljósastaur Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Sjá meira