Fjarskipti á Vestfjörðum í ólagi 27. ágúst 2005 00:01
Ástandi fjarskiptamála í dreifbýli á Vestfjörðum er líkt við ástand í vanþróuðum ríkjum í greinargerð sem Fjórðungssamband Vestfirðinga vann. Frá áramótum hefur ljósleiðari sem liggur um Vestfirði rofnað tvisvar. Greinargerðin var send Byggðastofnun, en þar var fjallað um framkvæmd byggðaáætlunar 2002 til 2005. Í greinargerðinni kemur fram að lélegt fjarskiptasamband við Vestfirði dragi úr samkeppnishæfni fyrirtækja á svæðinu og að ljóst sé að fyrirtæki og einstaklingar í fjórðungnum standi höllum fæti þegar kemur að öryggi í gagnaflutningum, þar sem vestfirðir eru eini landshlutinn sem ekki búi við hringtengingu ljósleiðarans. Ef landshlutinn á að geta laðað til sín samkeppnishæf fyrirtæki og stutt við uppbyggingu núverandi og nýrra fyrirtækja þurfi grunngerðin að vera í lagi. Þá er slæmt GSM samband á þjóðvegum vestfjarða einnig gagnrýnt. Að sögn Aðalsteins Óskarssonar framkvæmdastjóra fjórðungssambandsins var lagt í mikla vinnu, ásamt fyrirtækjum og stofnunum, við greinargerðina. Hann sagði að síðan þá hafi Síminn svarað og bent á að þeir séu að vinna í því að byggja upp sambandið. Hann sagðist gera sér grein fyrir því að verið væri að vinna í því t.d. í ríkistjórninni að efla GSM samband á landinu öllu. Hann sagði að í dreifbýli væri staða fólks talsvert öðruvísi og verrri, bæði hvað varðar ISDN og GSM samband, heldur en fólks í þéttbýli. Hann telur sig ráða af svörum Símans að lagfæringar verði gerðar og að verið sé að vinna í þessu hjá þeim. Hann segir Símann hafa fullyrt að breytingar verði á næstu mánuðum.
Fréttir Innlent Mest lesið Kosningavaktin 2026: Kjördagur genginn í garð Innlent Kosningaspá Vísis: Nýr möguleiki opnast til hægri Innlent Fyrrverandi sendiherra skiptir óvænt um skoðun Innlent Deilt um orð Hildar um „súkkulaðikleinuna“ Sönnu Innlent Enginn augljós meirihluti á vinstri vængnum Innlent Skoða að gefa bandamönnum Trumps tvö hundruð milljarða Erlent „Ég veit ekki alveg hvernig stendur á þessu“ Innlent Felldu næstæðsta ISIS-liða heims: „Hélt að hann gæti falið sig í Afríku“ Erlent Bríet krefur Pálma Ragnar um átta milljónir króna Innlent Björg útilokar samstarf með Miðflokknum og Einar vill forðast það Innlent Fleiri fréttir Eftirlitsmenn á vegum Evrópuráðsins fylgjast með kosningunum Deilt um orð Hildar um „súkkulaðikleinuna“ Sönnu Svona nýttu oddvitarnir sínar tuttugu sekúndur Enginn augljós meirihluti á vinstri vængnum Kjördagur runninn upp Fyrrverandi sendiherra skiptir óvænt um skoðun Kosningaspá Vísis: Nýr möguleiki opnast til hægri Kosningavaktin 2026: Kjördagur genginn í garð Nýjustu tölur í Reykjavík Nýjustu tölur í Kópavogi Nýjustu tölur í Hafnarfirði Nýjustu tölur úr Garðabæ Nýjustu tölur í Reykjanesbæ Nýjustu tölur á Akureyri Nýjustu tölur í Árborg Nýjustu tölur í Mosfellsbæ Nýjustu tölur á Akranesi Nýjustu tölur í Múlaþingi Nýjustu tölur í Fjarðabyggð Nýjustu tölur í Vestmannaeyjum Nýjustu tölur í Skagafirði Nýjustu tölur í sameinuðu sveitarfélagi Borgarbyggðar og Skorradalshrepps Nýjustu tölur í Ísafjarðarbæ Nýjustu tölur í Hveragerði Nýjustu tölur í Norðurþingi Nýjustu tölur í Ölfusi Nýjustu tölur í Sveitarfélaginu Hornafirði Nýjustu tölur í Fjallabyggð Nýjustu tölur í Rangárþingi ytra Nýjustu tölur úr Rangárþingi eystra Sjá meira