Styttra milli ferða á háannatímum 14. júlí 2005 00:01
Leiðakerfi strætisvagna á höfuðborgarsvæðinu hefur verið gjörbylt og verður nýja kerfið tekið í notkun laugardaginn 23. júlí. Það miðar að því að koma farþegum á milli hverfa á sem stystum tíma og verða farnar ferðir á tíu mínútna fresti á háannatímum á sex stofnleiðum sem aka með fáum stoppum á milli helstu íbúðar- og atvinnuhverfa. Nýja leiðakerfið er fyrsta raunverulega samræmda leiðakerfi almenningssamgangna á höfuðborgarsvæðinu en þegar byggðasamlagið Strætó var stofnað árið 2001 var steypt saman leiðakerfum sveitarfélaganna sem að því stóðu og hefur það kerfi ekki tekið stórkostlegum breytingum, fyrr en nú. Strætóleiðir hins nýja leiðakerfis skipast í þrjá flokka; sex stofnleiðir sem eru eins konar hraðleiðir sem ganga milli hverfa, sex almennar leiðir sem ganga innan fjölmennra hverfa og tengja þau saman, allar með viðkomu í miðborg Reykjavíkur og einnig sjö hverfaleiðir sem ganga eingöngu innan borgarhverfa eða sveitarfélaga án viðkomu í miðborginni. Ásgeir Eiríksson forstjóri Strætó bs. sagði á blaðamannafundi í gær þar sem leiðakerfið var kynnt að strætó yrði með nýja leiðakerfinu raunhæfari valkostur en áður þegar kemur að því að velja sér samgöngumáta og að ferðatími muni almennt styttast. Björk Vilhelmsdóttir borgarfulltrúi og stjórnarformaður Strætó bs. sagði að í sumum tilfellum ætti strætó, með auknum forgangi svo sem eins og á sérakrein á Miklubraut, að geta orðið fljótari á milli staða en einkabíllinn. Markmiðið væri að þjóna betur þörfum fólks í umferðinni en hingað til hefur verið gert og að gera strætó að góðum, ódýrum og umhverfisvænum ferðamáta fyrir almenning. Ljóst er að notendur strætisvagna eiga sumir hverjir eftir að lenda í einhverjum vandræðum á meðan þeir læra á nýtt kerfi og er rétt að benda þeim á að hægt er að kynna sér nýja leiðakerfið á vefsíðunum bus.is og strætó.is og í þjónustunúmeri Strætó bs., 800 1199. Einnig liggja frammi bæklingar með upplýsingum um leiðakerfið á skiptistöðvum.
Fréttir Innlent Mest lesið Skildu skriðdrekana eftir á víglínunni Erlent „Varð að martröð“ Innlent Labbaði 57 kílómetra heim úr vinnunni: „Af hverju bý ég ekki nær“ Innlent „Þetta er náttúrulega algjörlega fáránlegt“ Innlent Bandarískur ellilífeyrisþegi býður vegfarendum tugi milljóna Erlent Yfirmaður WHO hughreystir Tenerife-búa Erlent Farþegi Norrænu greindist með annað afbrigði hantaveiru Erlent Maður varð fyrir flugvél á flugbraut og lést Erlent Kosningavaktin 2026: Landsmenn kjósa sér sveitarstjórnir Innlent Loftárásir skekja vopnahlé í Líbanon Erlent Fleiri fréttir Einars Ólafssonar minnst í Lúxemborg „Varð að martröð“ Hrósar olíufélögunum fyrir viðbrögð sín Keyrði niður ljósastaur á Vesturlandsvegi Labbaði 57 kílómetra heim úr vinnunni: „Af hverju bý ég ekki nær“ Fólki yfir fimmtugt síður boðið í atvinnuviðtöl Starfsemi gæti hafist í nýjum Listaháskóla innan fjögurra ára Þriðja viljayfirlýsingin frá árinu 2007 undirrituð „Þetta er náttúrulega algjörlega fáránlegt“ Oddviti Samfylkingar bregst við færslum borgarstjóra Flugi aflýst vegna áhafnarskorts í annað sinn í vikunni Maðurinn handtekinn og fluttur til Reykjavíkur í nótt „Sá gamli er miklu fallegri“ Bjó sér til vopn með því að setja steinhellu í sokk Sérsveitaraðgerð í Vestmannaeyjum Fær ár fyrir hvora flösku af amfetabínbasa Segir þekkt andlit mikið auglýst, jafnvel á kostnað málefna Drógu aflvana fiskibát í land „Beinlínis gengið í skrokk á fólki“ Myndskeiðið byggi á „netmemi og tölvuleikjamenningu“ „Auðvitað hef ég íhugað það“ Borgarstjóri í beinni um umdeildar kortafærslur Engin bið eftir plássi á meðferðarheimilum ungmenna Endurgreiddi eftir að fjölmiðlar spurðu út í innkaupakortið Lögregla sögð vilja koma höggi á blaðamenn Gagnrýna myndband Miðflokksins: „Þetta er bara Sovét-Ísland í dag“ Ótrúlegt kjörtímabil að baki á Vopnafirði Formaður Heimssýnar varar við ofbeldi gangi Ísland í ESB Stykkishólmur verður að vera annað og meira en svefnpláss Mikil tímamót fyrir Víkinga, byrja á bílastæðum Sjá meira