Icelandair ógildir greidda farmiða 14. júlí 2005 00:01
Icelandair ógildir farmiða þeirra farþega sem kaupa miða með félaginu og hafa ekki nýtt fyrri helming farseðilsins. Þannig hefur farþegi sem kaupir sér far fram og til baka til einhvers áfangastaðar félagsins og nýtir ekki fyrri ferðina, glatað rétti sínum til að nýta sér seinni hluta farmiðans enda þótt viðkomandi eigi bókað sæti. Þar sem dýrara er að kaupa miða aðra leið en báðar hafa margir freistast til að kaupa miða báða leiðir og sleppa öðru fluginu. Það gengur upp ef seinna fluginu er sleppt en ef fyrra fluginu er miði fólks í seinni flugið ógiltur. Guðjón Arngrímsson, upplýsingafulltrúi Icelandair, segir að uppbygging fargjalda Icelandair sé þannig að félagið bjóði flug fram og til baka en ekki stakar leiðir. "Sá sem kaupir ferð fram og til baka en mætir ekki þegar ferðin hefst, hefur í raun afþakkað þá þjónustu sem hann var að kaupa. Þegar farþegi mætir ekki í flug, fellur miðinn úr gildi og frátekna sætið á bakaleiðinni opnast þá í tölvukerfunum til sölu á ný," segir Guðjón. Hann segir að fólk geti hins vegar breytt miðum sínum fyrir fram og hvetur fólk til að breyta í tæka tíð. "Við bjóðum auðvitað fargjöld aðra leiðina fyrir þá sem það kjósa en þau eru hlutfallslega dýrari og mun færri kaupa þau. Þetta fyrirkomulag byggir á reynslu til margra áratuga en fólk vill yfirleitt nýta sér það hagræði að kaupa ferð fram og til baka í sama vetvangi." Birgir Jónsson, forstjóri Iceland Express, segir að farþegar félagsins byggi sína ferðabókanir upp á annan hátt en Icelandair. "Við horfum á þetta aðskilið. Þú breytir miðanum alveg að vild hvort sem er að ræða áfangastað, nafni farþega og dagsetningu allt að þremur klukkustundum fyrir brottfarartíma. Okkar kerfi byggist á því að farþegar kaupa sína miða hvora leið fyrir sig," segir Birgir. Gísli Tryggvason, talsmaður neytenda, segist ekki vilja tjá sig um efnisatriði einstakra mála fyrr en hann hafi kynnt sér báðar hliðar málsins en hvetur fólk sem telur sig misrétt beitt að hafa samband.
Fréttir Innlent Mest lesið „Fólk er bara slegið“ Innlent „Viljið þið gjöra svo vel að fyrirgefa mér af öllu hjarta“ Innlent Fjöldi menntaskólanema sá myndskeið af árásinni Innlent „Ég er hræddur við þessa menn“ Innlent Þúsundir kalla eftir afsögn Þorgerðar: „Vandræðaleg tilraun“ Innlent „Sleggja beint í höfuðið á almenningi og fyrirtækjum“ Innlent Blása á gagnrýni og opna dagatalið Innlent „Við fyrirgefum ráðherra þessa yfirsjón“ Innlent Biður Loga afsökunar „á dónaskapnum“ Innlent Leikskólakennarar slegnir yfir ummælum Ingu Innlent Fleiri fréttir Bein útsending: Stefnuræða forsætisráðherra Dæmdir fyrir að sprengja heimagerða sprengju í Múlagöngum Ríkisstjórnin í mun veikari stöðu eftir erfitt sumar Skora á yfirvöld að taka SÁÁ til skoðunar „Viljið þið gjöra svo vel að fyrirgefa mér af öllu hjarta“ „Við fyrirgefum ráðherra þessa yfirsjón“ Fleiri en einn yfirheyrður en enginn í haldi Segir afnám vaxtabóta bitna á tekjulágum heimilum Blása á gagnrýni og opna dagatalið „Fólk er bara slegið“ Þúsundir kalla eftir afsögn Þorgerðar: „Vandræðaleg tilraun“ Fjöldi menntaskólanema sá myndskeið af árásinni Leikskólakennarar slegnir yfir ummælum Ingu „Sleggja beint í höfuðið á almenningi og fyrirtækjum“ Breytingar á innanlandsflugi vegna bilunar Langflestir upplifðu sólmyrkvann Sumir framhaldsskólar líti fram hjá unglingadrykkju Kristrún flytur stefnuræðuna „Ég er hræddur við þessa menn“ Ekkert heitt vatn á Suðurnesjum í dag Stærðfræðin vefst fyrir íslenskum stúlkum Biður Loga afsökunar „á dónaskapnum“ Vanti ekki fjármagn eða hjálpargögn heldur þrýsting á Ísrael Sex gistu í fangageymslu í nótt Segir þörf á samheldni innan „evrópsku fjölskyldunnar“ Aðeins um 28 prósent innflytjenda með grunnfærni í lesskilningi „Það kostar peninga að afla peninga“ Ekki þurfi mikið til að EES-samningurinn rakni upp Íkveikja í miðborginni Rukka meira fyrir aksturinn og sérstaklega fyrir veginn Sjá meira