Miklar endurbætur á Alþingishúsinu 22. september 2005 00:01
Umfangsmiklar endurbætur hafa staðið yfir á Alþingishúsinu síðastliðin tvö ár og nú sér brátt fyrir endann á þeim. Ákveðið var árið 2002 að ráðast í endurbæturnar en engar engar heildstæðar viðgerðir höfðu þá verið gerðar á húsinu frá því það var byggt árið 1881. Framkvæmdunum var skipt í nokkra áfanga enda einungis hægt að vinna að þeim að sumarlagi meðan hlé er á þingstörfum. Sumarið 2003 var gert við suður- og austurhlið hússins að utan og anddyri þess endurgert og sumarið eftir var unnið að endurbótum og viðgerðum innanhúss á 1. og 2. hæð og voru m.a. gólfplötur í herbergjum 1. hæðar brotnar upp, skipt um jarðveg og gólfin steypt á ný enda höfðu komið í ljós verulegar rakaskemmdir í gólfum. Í sumar hefur svo viðgerðum verið haldið áfram, einkum á 1. og 3. hæð. Lyfta var sett í húsið svo að nú eiga fatlaðir greiðan aðgang að þingpöllum. Hins vegar er viðgerðum á norður- og vesturhlið hússins og á þaki ólokið auk þess sem eftir á að endurgera loftræstikerfi hússins. Ákveðið var að færa húsið að innan sem næst upprunalegu horfi og margvíslegar endurbætur gerðar á veggjum og loftum, meðal annars voru lagfærðar skemmdir eftir jarðskjálfta í suðvesturhluta hússins. Að loknum endurbótum á að velja ný húsgögn í Alþingishúsið. Heildarkostnaður við endurgerð og viðgerðir á Alþingishúsinu er um 285 milljónir króna og kostnaður við viðgerðir sem enn er ólokið utanhúss og við loftræstikerfi og endurnýjun húsgagna er áætlaður um 100 milljónir króna. Alþingishúsið og Skálinn verða almenningi til sýnis næstkomandi laugardag frá kl. 10 til kl. 15 og verður gengið inn um aðaldyr Skálans.
Fréttir Innlent Mest lesið Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Innlent Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Innlent Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni Innlent Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Innlent Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Innlent Kristrún tilbúin í aðgerðir Innlent Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Innlent „Dapurlegt pólitískt útspil hjá oddvita Samfylkingar“ Innlent Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun Innlent Fleiri fréttir Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni „Dapurlegt pólitískt útspil hjá oddvita Samfylkingar“ Ekki búið að finna nýjan lögreglustjóra hátt í hálfu ári síðar Alvarlega slasaður eftir fall af svölum Árekstur við Hamraborg Engin aðstoð við próftöku og litaðar númeraplötur Uppsagnir hjá Klettabæ Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Kristrún tilbúin í aðgerðir Inga vildi alls ekki svara spurningum fréttamanns Ákærður fyrir að nauðga sofandi og ölvaðri dóttur sinni Væntingar um útspil tengt gjaldahækkunum Neituðu sök við þingfestingu Straumsvíkurmálsins Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun „Ég væri að ljúga ef ég segði að það væri tilviljun“ Sniðganga geti verið túlkuð sem yfirlýsing ríkisstjórnarinnar Fjórir í gæsluvarðhald eftir hraðsendingu frá Þýskalandi Ekkert svigrúm í tengslum við kjarasamninga og tvísýnt með framhaldið Lét ákærða vita af andlátinu: „Hann var í miklu uppnámi“ „Vitum ekki hundrað prósent hvað er í þessu“ Flutningabíll valt á Þverárfjallsvegi sem er lokaður Lægðin grynnist í dag en von á annarri Bíl ekið á ljósastaur Sjá meira