Um 21.000 fallnir í Írak 20. mars 2005 00:01
Nítján þúsund óbreyttir borgarar fallnir. Á annað þúsund hermanna liggur í valnum. Eftir tveggja ára stríð og átök hafa engin gereyðingarvopn fundist í Írak en George Bush segir Bandaríkin samt öruggari fyrir vikið og bendir á kosningarnar sem nýja byrjun í Miðausturlöndum. Að morgni hins 20. mars 2003 hófst sprengjuherferð Bandaríkjahers. Hátæknisprengjum rigndi yfir Bagdad. Tilgangurinn: Að finna gjöreyðingarvopn Saddams Husseins. Innan fárra vikna voru hersveitir bandamanna komnar inn í miðborg Bagdad og Saddam var horfinn. Bandamenn börðu sér á brjóst og töldu sig hafa sigrað. Tveimur árum síðar er enn barist. Gjöreyðingarvopnin, sem voru ástæða stríðsins, hafa hvergi fundist. Hver vopnaeftirlitsmaðurinn á fætur öðrum hefur komist að þeirri niðurstöðu að trúlega hafi þau ekki verið til heldur megnið eyðilagt eftir Flóabardaga árið 1991. Andspyrna spratt upp sem haldið hefur uppi linnulausum árásum. Við það bættust al-Qaida hryðjuverkasveitir undir stjórn Jórdanans Abus Musabs al-Zarqawis og svo súnnítar sem margir hverjir tengdust stjórn Saddams Husseins. Þessir þrír hópar hafa gert árásir og valdið miklu mannfalli. Það sem af er þessu ári hafa helmingi fleiri farist en á sama tíma í fyrra. Enginn veit með vissu hversu margir óbreyttir borgarar hafa týnt lífi. Staðfest tala liggur á milli sautján og nítján þúsund en umdeilt mat sérfræðinga sem rituðu í læknatímaritið Lancet var hundrað þúsund óbreyttir borgarar fallnir. Tæplega sautján hundruð hermenn af ýmsu þjóðerni hafa farist í Írak. Í fyrra var Bandaríkjastjórn komin í vörn enda kom gagnrýnin á stjórn mála í Írak bæði að utan og innan. Fregnir af meðferð fanga í Abu Ghraib fangelsinu ollu hneykslan um allan heim og sköðuðu málsstað Bandaríkjanna í Írak enn frekar. Kosningarnar í Írak í janúar urðu þó til þess að margir þóttust greina þáttaskil en að sama skapi er víst að haukarnir svokölluðu í Washington, arkitektar stríðsins, einkum og sér í lagi fylgisveinar Donalds Rumsfelds varnarmálaráðherra, eru horfnir úr embættum sínum. Paul Wolfowitz fer í Alþjóðabankann, John Bolton verður sendiherra hjá Sameinuðu þjóðunum og Douglas Faith hættir von bráðar.
Erlent Fréttir Mest lesið Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Innlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Innlent Segir Aþenu í andarslitrunum Innlent Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Innlent Athafnamaður sagður handtekinn í Leifsstöð Innlent „Ég geri ekki ráð fyrir því að við munum halda útgáfupartí í Valhöll“ Innlent Tuttugu milljónir fyrir rafmagn hjólhýsa Innlent SA hafi skilað auðu og telur að samningum verði sagt upp Innlent Rubio lentur á Íslandi Innlent Fleiri fréttir Idol-keppandi í lífstíðarfangelsi fyrir að skjóta eiginkonu sína Tugir í sóttkví í Síberíu eftir andlát starfsmanns rannsóknarstofu Fá Nóbelsverðlaun fyrir uppgötvun á ljósstýrðri erfðatækni Fluttu allar sprengjuflugvélar frá RAF Fairford Bein útsending: Hver hlýtur Nóbelsverðlaunin í læknisfræði? Höfðar mál gegn lögreglunni vegna húsleitarinnar Vann óvæntan sigur í fyrri umferðinni Boðaði óvænt þingkosningar á Spáni Stofnar „Ofurgreindarstjórnina“ þrátt fyrir ákall um hægari þróun Handtekin í Bandaríkjunum grunuð um njósnir Sýknaður eftir að hafa skotið mann til bana í dyragættinni Hyggst ná öllu landsvæðinu af Hútum Öryggisstjóri segir af sér hjá OpenAI Gerðu árás skömmu eftir að Þýskalandskanslari mætti Mennirnir sem létust voru feðgar Yfir fimm þúsund handteknir í frönsku stúdentamótmælunum Hluturinn sem fannst í sjónum reyndist meinlaus Rektor Cornell-háskóla rýfur þögnina Tveir látnir eftir skotárás í Noregi Fundið brak úr flugvélinni sem týndist á leið frá Bermúda Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Þúsundir manna mótmæla í 50 borgum Samgöngur í lamasessi eftir enn eina árás á brú Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Keyrði inn í mannfjölda norður af Sydney Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Menntaskólanemar mótmæla: Íslensk stúlka varð fyrir táragasi Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Fær umboðið í fangið fjórum dögum eftir uppgjöf Sjá meira