Bush styttir frí vegna deilna 20. mars 2005 00:01 MYND/AP
George Bush Bandaríkjaforseti hefur ákveðið að stytta frí sem hann er í og snúa aftur til Washington til þess að vera tilbúinn að undirrita lög sem kveða á um að halda eigi lífi í heiladauðri konu í Flórída. Miklar deilur hafa verið um málið í Bandaríkjunum en þar er tekist á um hvort hinni fjörutíu og eins ár Terri Schiavo skuli leyft að deyja eða hvort halda eigi henni á lífi. Hún varð fyrir heilaskaða fyrir fimmtán árum og hafði dómari í Flórída úrskurðað að rör sem flytur næringu til hennar skyldi fjarlægt að ósk eiginmanns hennar. Rörið var fjarlægt í fyrradag og var búist við að hún myndi deyja innan hálfs mánaðar. Báðar deildir Bandaríkjaþings hafa hins vegar tekið undir kröfur foreldra Terriar um að henni skuli haldið á lífi og á fundi fulltrúardeildar í dag verður lagt fram frumvarp um að málið skuli aftur fara fyrir dómstóla og næringarslöngunni aftur komið fyrir í Schiavo. Talsmaður Bandaríkjaforseta segir að hann hyggist skirfa undir lögin en þau verða hugsanlega samþykkt á þingi á morgun.
Erlent Fréttir Mest lesið Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Innlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Innlent Segir Aþenu í andarslitrunum Innlent Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Innlent Athafnamaður sagður handtekinn í Leifsstöð Innlent „Ég geri ekki ráð fyrir því að við munum halda útgáfupartí í Valhöll“ Innlent Tuttugu milljónir fyrir rafmagn hjólhýsa Innlent Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Innlent Rubio lentur á Íslandi Innlent Fleiri fréttir Hútar sagðir hörfa frá mynni Rauðahafs Idol-keppandi í lífstíðarfangelsi fyrir að skjóta eiginkonu sína Tugir í sóttkví í Síberíu eftir andlát starfsmanns rannsóknarstofu Fá Nóbelsverðlaun fyrir uppgötvun á ljósstýrðri erfðatækni Fluttu allar sprengjuflugvélar frá RAF Fairford Bein útsending: Hver hlýtur Nóbelsverðlaunin í læknisfræði? Höfðar mál gegn lögreglunni vegna húsleitarinnar Vann óvæntan sigur í fyrri umferðinni Boðaði óvænt þingkosningar á Spáni Stofnar „Ofurgreindarstjórnina“ þrátt fyrir ákall um hægari þróun Handtekin í Bandaríkjunum grunuð um njósnir Sýknaður eftir að hafa skotið mann til bana í dyragættinni Hyggst ná öllu landsvæðinu af Hútum Öryggisstjóri segir af sér hjá OpenAI Gerðu árás skömmu eftir að Þýskalandskanslari mætti Mennirnir sem létust voru feðgar Yfir fimm þúsund handteknir í frönsku stúdentamótmælunum Hluturinn sem fannst í sjónum reyndist meinlaus Rektor Cornell-háskóla rýfur þögnina Tveir látnir eftir skotárás í Noregi Fundið brak úr flugvélinni sem týndist á leið frá Bermúda Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Þúsundir manna mótmæla í 50 borgum Samgöngur í lamasessi eftir enn eina árás á brú Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Keyrði inn í mannfjölda norður af Sydney Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Menntaskólanemar mótmæla: Íslensk stúlka varð fyrir táragasi Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Sjá meira