Tíu ár frá sarínárás í Tókýó 20. mars 2005 00:01
Japanar minnast þess í dag að tíu ár eru liðin frá einhverri stærstu hryðjuverkaárás sem gerð hefur verið í landinu þegar meðlimir ofsatrúarreglu dreifðu taugagasi í lestarvögnum í Tókýóborg. Trúarreglan starfar enn. Á þessum degi fyrir tíu árum, á háannatíma að morgni til, fóru meðlimir í ofsatrúarreglunni Aum Shinri Kyo í fimm lestarvagna með taugagasið sarín í plastpokum. Þeir stungu gat á pokana með sérstaklega brýndum regnhlífaoddum og leyfðu gasinu að breiðast rólega út. Saríngas er um fimm hundruð sinnum banvænna en blásýra. Það lamar vöðva og lítill dropi getur drepið mann á nokkrum mínútum. Saddam Hussein notaði sarín og sinnepsgasblöndu í árásinni á kúrdíska þorpið Halabja árið 1988 þegar um fimm þúsund manns létu lífið. Það var hins vegar lán í óláni að sarínblandan sem japanski hópurinn notaði var ekki sterkasta tegund og að auki dreifðist hún ekki vel um lestarvagnana. Þrátt fyrir það létust tólf og 5500 manns veiktust. Japanar minntust árásarinnar í dag með bænahaldi og þagnarstundum í jarðlestarstöðvum borgarinnar. Shoko Asahara, leiðtogi trúarreglunnar, var dæmdur til dauða fyrir þessa og fleiri árásir ásamt tólf öðrum meðlimum en allir hafa áfrýjað dómnum og sitja enn í fangelsi. Trúarreglan skipti um nafn og heitir nú Aleph og er enn að störfum. Meðlimir hennar, tæplega tvö þúsund manns, segjast hins vegar hafa afneitað hryðjuverkum.
Erlent Fréttir Mest lesið Hopp segir mál ökumanns í höndum lögreglu Innlent Reki fyrirtæki og séu nálægt því að missa allt frá sér Innlent Klausturbleikjan fæst ekki lengur Innlent Sími undir dýnu á skiptiborði tengdur innflutningi amfetamínbasa Innlent „Skráningum rignir inn“ Innlent „Verulegur samdráttur og menn eru að segja upp mannskap“ Innlent Kristján allt annað en sáttur við typpadansinn Innlent Ný hreyfing mynduð gegn aðild að ESB Innlent Dæmdur morðingi grunaður í Straumsvíkurmálinu Innlent Klifu á topp Empire State-byggingarinnar Erlent Fleiri fréttir Klifu á topp Empire State-byggingarinnar Þýska landsliðið spegli land stöðnunar Eldur braust út í fjölbýlishúsi og nokkrir eru látnir Mótmælendur í Suður-Afríku krefjast brottflutnings innflytjenda Úkraínumenn kaupa sextán Gripen E frá Svíþjóð Dæmdur í fangelsi fyrir að hrella fyrrverandi kærustu Börn sem fæðast í Bandaríkjunum áfram talin bandarísk Mega banna trans konum að stunda keppnisíþróttir Úkraínskur auðkýfingur særðist í sprengjutilræði í Mónakó Reiðin magnast í Venesúela Sjötti lést af sárum sínum á sjúkrahúsi Fimm sagðir látnir í skotárás nærri Hamborg Hafi komið líki stúlkunnar fyrir í ferðatösku Hátt í milljón sótt um dvalarleyfi á Spáni Sammælast um að bera klæði á vopnin Yfir þúsund látnir í hitabylgjunni í Evrópu og hitamet falla víða Rúmlega þrjátíu bjargað úr rústunum en tugþúsunda enn saknað Segir Ísraelsher hafa eyðilagt gangakerfi Hezbolla-samtakanna Ellefu létust í flugslysi í Frakklandi Fleiri en 1300 látnir vegna hitabylgju í Evrópu Íran gerir árásir á Barein og Kúveit í kjölfar árása Bandaríkjanna Tónlistarhátíðum aflýst vegna hita Stór hluti barna enn á samfélagsmiðlum hálfu ári eftir bannið Tala látinna hækkar og gremja íbúa eykst Bandaríkjaher heldur árásum áfram í Íran Forseti Serbíu hyggst segja af sér 41,5 gráður í Þýskalandi og hitamet slegið Stór skjálfti í Afganistan Núverandi hitabylgja „sú alvarlegasta sem mælst hefur“ Dagurinn í dag sé örlagaríkur fyrir leit og björgun Sjá meira