Enginn neyðarútgangur á hóteli 15. apríl 2005 00:01
Tíu börn eru meðal þeirra sem fórust þegar hótel í París brann til kaldra kola í nótt. Enginn neyðarútgangur var á hótelinu og eldurinn læsti sig í stigaganginn svo fjöldi fólks hafði enga undankomuleið. Það var skömmu eftir klukkan tvö í nótt sem slökkvilið Parísarborgar var kallað að Paris-Opera hótelinu skammt frá hinni þekktu stórverslun Galerie Lafayette í níunda hverfi Parísar. Hótelið er í gömlu húsi og reglugerðir heimila að þar sé hvorki neyðarútganga eða brunastiga að finna. Gestirnir, velflestir innflytjendur sem félagsmálayfirvöld hýstu til bráðabirgða á hótelinu, sváfu þegar eldurinn kviknaði á neðri hæðum. Engin sprenging varð eða hávaði sem hefði getað vakið fólki. Eldurinn læsti sig í stigaganginn og rauk upp eftir hótelinu. Gestir áttu sér því enga undankomuleið, margir stukku út um glugga og ofan af þaki og sjónarvottar sáu foreldra reyna að bjarga börnunum sínum með því að kasta þeim út um glugga. Af 76 gestum fórust ekki færri en tuttugu. Óttast er að talan geti hækkað þar sem á annan tug liggur þungt haldinn á sjúkrahúsum og enn er leitað í rústum hótelsins. 250 brunaliðsmenn og tíu sjúkrabílar voru á vettvangi í nótt og þó að slökkvistarfið hafi gengið nokkuð vel var það of seint fyrir fjölda hótelgesta. Um fimmtíu slösuðust og var þeim sinnt í bráðabirgðamóttöku sem sett var upp í Galerie Lafayette. Meðal þeirra voru nokkrir bakpokaferðalangar sem gistu á hótelinu. Lögregla segir enga ástæðu til að ætla að kveikt hafi verið í en saksóknarar í París segja að málið verði rannsakað vegna gruns um manndráp af gáleysi.
Erlent Fréttir Mest lesið Vaktin: Hildur valdi Viðreisn og Framsókn Innlent Íbúar miður sín og fuglalíf nær allt farið Innlent Reyndi að fá Miðflokk með og segir stöðu Ara ekki friðþægingu Innlent Svona kynntu oddvitarnir nýjan meirihluta í Viðey Innlent Sjálfstæðisflokkur, Viðreisn og Framsókn mynda meirihluta Innlent Hannes Valle fær þrjú ár fyrir brot á Múlaborg Innlent „Ákveðin svik við úrslit kosninganna“ Innlent Bardagabúr rís við Hvíta húsið Erlent Féllust á að gera ekki lítið úr tilfinningum hinna eða ræða persónuleg mál Innlent „Orð hennar og þessar upphrópanir ekki til sóma“ Innlent Fleiri fréttir Lenda þremur geimförum á tunglinu á þessu ári Trump-liði vann og Demókratar fagna Hörðustu árásir á Líbanon í langan tíma Hótel í fullum rétti að neita konu um kranavatn Bardagabúr rís við Hvíta húsið Skugganefndir styðja umdeilda Demókrata Kalla rússneska sendiherra á teppið vegna hótana Gera almenningssamgöngur ódýrari vegna olíukreppunnar Fleiri „brúðir-ISIS“ lenda í Ástralíu Ráðist á heilbrigðisstarfsmenn í ebólu-faraldri Æfðu árás á Suður-Kóreu Fjögur látin í árekstri skólarútu og lestar Hóta frekari árásum og hvetja sendifulltrúa til að flýja Kænugarð Bandaríkjaher gerði árásir á írönsk skotmörk í dag þrátt fyrir vopnahlé Margrét Þórhildur aftur inn á sjúkrahús Hitamet í maí slegið í Bretlandi Tæplega tuttugu fluttir á sjúkrahús vegna óþefs Rubio vongóður um vopnahlé Arftaki 757 aftur á teikniborði Boeing Trump vill ekki flýta sér Ofurhljóðfrárri eldflaug skotið að Úkraínu Meintur byssumaður 21 árs góðkunningi leyniþjónustunnar Skothvellir við Hvíta húsið Bandarískir sendimenn mælist til þess að Trump sé hunsaður Mjakist nær samkomulagi Kratar fá umboðið á ný og hyggja á miðjuvinstri stjórn Níutíu látnir eftir sprengingu í kolanámu Spjallað í Reykjavík á meðan drónarnir dynja á Kænugarði Sprengdu fljúgandi furðuhlut í loft upp Vilja skipa erindreka en vita ekki hvert erindið er Sjá meira