Tuttugu fórust í eldsvoða 15. apríl 2005 00:01
Tuttugu manns fórust í eldsvoða í París þegar hótel brann til kaldra kola aðfaranótt föstudagsins. Ríflega fimmtíu slösuðust í brunanum sem er einn sá versti í sögu borgarinnar á síðari tímum. Hotel Paris-Opera er einnar stjörnu hótel í níunda hverfi höfuðborgarinnar. Það er á sex hæðum og höfðu borgaryfirvöld leigt nokkur herbergi fyrir flóttamenn frá Afríku sem biðu þess að komast í betri húsakynni. Laust eftir klukkan tvö í fyrrinótt kom upp eldur á fyrstu hæð hótelsins og er talið að hann hafi kviknað í eldhúsi þar sem framreiða átti morgunverð. Logarnir breiddust út á svipstundu og vöknuðu margir gestanna upp við vondan draum þegar þeir urðu reyks og hitans varir. Mikil skelfing greip um sig og gripu margir til þess ráðs að stökkva út um glugga en einhverjir flúðu upp á þak. Maður sem býr í næsta húsi við hótelið sagðist hafa vaknað við hróp og síðan sá hann þrjá stökkva út um glugga, þar á meðal konu og barn. "Þau lágu bara á gangstéttinni og hreyfðu sig ekki. Allir voru að æpa og fólk lá í götunni." Slökkvilið kom fljótlega á vettvang og tók það rúma klukkustund að ná tökum á eldinum. 250 slökkviliðsmenn voru á staðnum þegar mest var og höfðu þeir í nógu að snúast. Einn þeirra vann hetjudáð þegar hann óð inn í eldhafið og bjargaði ungabarni sem grét þar fyrir innan. Í dögun var ljóst að tuttugu manns hefðu beðið bana í brunanum og rúmlega fimmtíu hefðu slasast, þar af ellefu alvarlega. Ekki er vitað um þjóðerni hinna látnu en mörg börn eru þeirra á meðal. Í hópi hinna slösuðu eru Frakkar, Bandaríkjamenn, Senegalar, Túnisar og Úkraínumenn. Að sögn fréttaritara BBC í París hafa spurningar þegar vaknað um öryggismál hótelsins. Aðeins einn útgangur er á byggingunni og þar er engan brunastiga að finna enda er slíkur búnaður ekki skylda í gömlum húsum. Jacques Chirac, Frakklandsforseti og fyrrverandi borgarstjóri í París, sagðist harmi sleginn vegna atburðarins og Dominique de Villepin innanríkisráðherra heimsótti brunastaðinn í gærmorgun.
Erlent Fréttir Mest lesið Vaktin: Hildur valdi Viðreisn og Framsókn Innlent Íbúar miður sín og fuglalíf nær allt farið Innlent Reyndi að fá Miðflokk með og segir stöðu Ara ekki friðþægingu Innlent „Þetta vita Einar og Björg“ Innlent Svona kynntu oddvitarnir nýjan meirihluta í Viðey Innlent Hannes Valle fær þrjú ár fyrir brot á Múlaborg Innlent „Ákveðin svik við úrslit kosninganna“ Innlent Sjálfstæðisflokkur, Viðreisn og Framsókn mynda meirihluta Innlent Bardagabúr rís við Hvíta húsið Erlent „Orð hennar og þessar upphrópanir ekki til sóma“ Innlent Fleiri fréttir Lenda þremur geimförum á tunglinu á þessu ári Trump-liði vann og Demókratar fagna Hörðustu árásir á Líbanon í langan tíma Hótel í fullum rétti að neita konu um kranavatn Bardagabúr rís við Hvíta húsið Skugganefndir styðja umdeilda Demókrata Kalla rússneska sendiherra á teppið vegna hótana Gera almenningssamgöngur ódýrari vegna olíukreppunnar Fleiri „brúðir-ISIS“ lenda í Ástralíu Ráðist á heilbrigðisstarfsmenn í ebólu-faraldri Æfðu árás á Suður-Kóreu Fjögur látin í árekstri skólarútu og lestar Hóta frekari árásum og hvetja sendifulltrúa til að flýja Kænugarð Bandaríkjaher gerði árásir á írönsk skotmörk í dag þrátt fyrir vopnahlé Margrét Þórhildur aftur inn á sjúkrahús Hitamet í maí slegið í Bretlandi Tæplega tuttugu fluttir á sjúkrahús vegna óþefs Rubio vongóður um vopnahlé Arftaki 757 aftur á teikniborði Boeing Trump vill ekki flýta sér Ofurhljóðfrárri eldflaug skotið að Úkraínu Meintur byssumaður 21 árs góðkunningi leyniþjónustunnar Skothvellir við Hvíta húsið Bandarískir sendimenn mælist til þess að Trump sé hunsaður Mjakist nær samkomulagi Kratar fá umboðið á ný og hyggja á miðjuvinstri stjórn Níutíu látnir eftir sprengingu í kolanámu Spjallað í Reykjavík á meðan drónarnir dynja á Kænugarði Sprengdu fljúgandi furðuhlut í loft upp Vilja skipa erindreka en vita ekki hvert erindið er Sjá meira