Himneskar veigar 20. apríl 2005 00:01
Nýi páfinn, Benedikt XVI, messaði í fyrsta sinn og kynnti sér aðstæður í Páfagarði í dag. Í heimabæ hans er kjörinu fagnað með því að baka Ratzinger-tertu, Vatíkanbrauð og bjóða upp á Benedikts-pylsu. Benedikt páfi XVI leiddi fyrstu messu sína sem 265. leiðtogi rómönsk-kaþólsku kirkjunnar í gærkvöldi. Ekki voru þó allir viðstaddir með það á hreinu. Kólumbíski kardínálinn Alfonso Lopez Trujillo ávarpaði hann sem Jóhannes Pál en leiðrétti sig reyndar um hæl. Kannski ekki svo skrítið í ljósi þess að Benedikt er sagður hafa verið valinn sem millibilspáfi sem framfylgja á stefnu Jóhannesar Páls. Enginn veit nákvæmlega til hvaða Benedikts Joseph Ratzinger er að vísa með vali sínu á nafninu, en getgátur eru meðal annars uppi um Benedikt páfa XV sem reyndi að stilla til friðar í Seinni heimsstyrjöldinni. Fleiri Benediktar eru nefndir til sögunnar. John Wauck, sérfræðingum í málefnum Páfagarðs, telur að hann hafi valið Benediktsnafnið vegna þess að heilagur Benedikt hafi verið einn af máttarstólpum og frumkvöðlum hinnar kristnu Evrópu. „Með því að velja nafnið Benedikt er hann að segja að við gefum ekki Evrópu upp á bátinn á tímum þegar margir tala um dauða kristninnar í Vestur-Evrópu. Hann segir: „Nei, trúin í Vestur-Evrópu á sér von.“ Þetta val er eiginlega menningarleg yfirlýsing um trú og von í Evrópu,“ segir Wauck.
Erlent Fréttir Mest lesið Lögreglan leitar að Cezary Innlent Starfsemi Hvals mögulega í uppnám: Hefur ekki svarað eftirlitinu frá því í maí Innlent „Hagið ykkur eins og fullorðið fólk“ Innlent Ógn felist í hótunum Paul Watson-samtakanna Innlent „Hverjir hafa efni á því að kaupa gramm af kókaíni?“ Innlent Dæmdur í fangelsi fyrir að hrella fyrrverandi kærustu Erlent Mímósuísinn ljúffengur en gerir aldrei aftur Jägermeister-ís Innlent Aflvana togari hættulega nálægt landi Innlent Spiluðu þjóðsönginn á meðan hvalurinn var dreginn á land Innlent Sér Blönduós eflast með byggðalínu og virkjunum Innlent Fleiri fréttir Dæmdur í fangelsi fyrir að hrella fyrrverandi kærustu Börn sem fæðast í Bandaríkjunum áfram talin bandarísk Mega banna trans konum að stunda keppnisíþróttir Úkraínskur auðkýfingur særðist í sprengjutilræði í Mónakó Reiðin magnast í Venesúela Sjötti lést af sárum sínum á sjúkrahúsi Fimm sagðir látnir í skotárás nærri Hamborg Hafi komið líki stúlkunnar fyrir í ferðatösku Hátt í milljón sótt um dvalarleyfi á Spáni Sammælast um að bera klæði á vopnin Yfir þúsund látnir í hitabylgjunni í Evrópu og hitamet falla víða Rúmlega þrjátíu bjargað úr rústunum en tugþúsunda enn saknað Segir Ísraelsher hafa eyðilagt gangakerfi Hezbolla-samtakanna Ellefu létust í flugslysi í Frakklandi Fleiri en 1300 látnir vegna hitabylgju í Evrópu Íran gerir árásir á Barein og Kúveit í kjölfar árása Bandaríkjanna Tónlistarhátíðum aflýst vegna hita Stór hluti barna enn á samfélagsmiðlum hálfu ári eftir bannið Tala látinna hækkar og gremja íbúa eykst Bandaríkjaher heldur árásum áfram í Íran Forseti Serbíu hyggst segja af sér 41,5 gráður í Þýskalandi og hitamet slegið Stór skjálfti í Afganistan Núverandi hitabylgja „sú alvarlegasta sem mælst hefur“ Dagurinn í dag sé örlagaríkur fyrir leit og björgun Bandaríkin bregðast við drónaárás með annarri árás Fyrrverandi ráðgjafi Trumps játar illa meðferð á trúnaðargögnum Lítilli flugvél flogið á hæsta skýjakljúf Peking Finnst sturlað að Watergate hafi fellt Nixon Taugaeiturshúsið auglýst til sölu Sjá meira