Minnast fórnarlamba í Hiroshima 6. ágúst 2005 00:01
Tugþúsundir manna víðs vegar að úr heiminum eru komnir til Hiroshima í Japan, til þess að minnast þess að í dag eru 60 ár síðan kjarnorkusprengju var varpað á borgina. Klukkan kortér yfir átta að morgni 6. ágúst árið 1945 sleppti bandaríska sprengjuflugvélin Enola Gay kjarnorkusprengju sem hafði fengið gælunafnið Feiti strákurinn yfir Hiroshima. Andartaki síðar hafði borgin verið jöfnuð við jörðu. Af 350 þúsund íbúum létu 140 þúsund lífið og þúsundir til viðbótar dóu síðar vegna meiðsla og geislunar. Þrem dögum síðar, hinn 9. ágúst, var annarri kjarnorkusprengju varpað á borgina Nagasaki. 15. ágúst gáfust Japanar svo upp og heimsstyrjöldinni síðari var lokið á Kyrrahafsvígvellinum. Klukkan kortér yfir átta í morgun var kirkjuklukkum hringt um alla Hiroshima til þess að minnast þeirra sem létu lífið. Það er kaldhæðnislegt að þessi minningarathöfn er haldin í skugga annarrar kjarnorkuógnar. Nú er stödd samninganefnd í Japan sem reynir að fá Norður-Kóreu ofan af því að smíða kjarnorkuvopn. Þessi ógn hefur valdið því að komið hafa fram kröfur í Japan um að styrkja varnir landsins og treysta enn hernaðarlega samvinnu við Bandaríkin sem vörpuðu á Japan fyrstu kjarnorkusprengju sögunnar.
Erlent Fréttir Mest lesið Vanhelgunin ýmist skemmdarverk eða persónuleg árás Innlent Árið gert upp í Kryddsíld 2025 Innlent „Margir sem því miður eru ekki jafn heppnir og ég“ Innlent Segir myndbandsupptöku af því þegar skórnir voru teknir Innlent Tveir með alvarlega áverka eftir hnífstunguárás Innlent Dótturdóttir JFK er látin Erlent Grunaður um stórfellda líkamsárás og frelsissviptingu Innlent Kamilla Bretadrottning greinir frá kynferðisofbeldi Erlent Enn fleirum sagt upp hjá Árvakri Innlent Hafþór Freyr maður ársins að mati lesenda Vísis og hlustenda Bylgjunnar Innlent Fleiri fréttir Kamilla Bretadrottning greinir frá kynferðisofbeldi Dótturdóttir JFK er látin Handtóku 357 meinta ISIS-liða í kjölfar mannskæðra átaka „Sannur Finni“ fær hæli í Rússlandi Sífellt fleiri hermenn falla á ári hverju Hvetur ESB til að svara refsiaðgerðunum Bandaríkjanna fullum hálsi Þrítugasta árásin á bát meintra smyglara TikTok-áskorun leiddi til banafalls af útvarpsmastri Blóðbaðið í El Fasher: Milljón manna borg orðin að „draugabæ“ Neita að ræða við Úkraínumenn vegna meintrar árásar á heimili Pútíns Sádar sprengja hergögn frá furstadæmunum í Jemen og hóta frekari árásum Á lista yfir þrjú hlýjustu ár í mælingasögunni Selenskí sver af sér drónaárás á heimili Pútíns Bandaríkin leggja til tvo milljarða dala með skilyrðum Trump hótar skelfilegum afleiðingum afvopnist Hamas ekki Neita að tjá sig um ummæli Trumps um árás í Venesúela Kim ánægður með nýjar stýriflaugar Þrír lögregluþjónar og sex ISIS-liðar fallnir eftir átök í Tyrklandi Vill lengri tryggingar og tilbúinn til að hitta Pútín Frímúrarareglan vill lögbann á nýjar lögreglureglur Milljón dalir eða meira fyrir náðun Umkringdu Taívan og æfðu lokanir hafna „Markmið mitt var bara að ná byssunni af honum“ Minnst einn látinn eftir að tvær þyrlur rákust saman í loftinu Trump telur friðarsamkomulag mögulegt innan nokkurra vikna „Þetta er ansi flókið, en þó ekki svo flókið“ Átti gott samtal við Pútín Skildu farþega eftir í fyrri ferð og strönduðu í annarri Í deilum við nágrannann vegna trjáa Mesti snjór í New York í fjögur ár Sjá meira