Slæðubannið hefur reynst vel 13. apríl 2005 00:01 "
Slæðubannið" svokallaða, lög sem sett voru í Frakklandi fyrir rétt rúmu ári sem banna áberandi trúartákn í ríkisskólum, er leið til lausnar á aðlögun múslima og annarra innflytjendahópa að þjóðfélagi þar sem gildi eins og frelsi einstaklingsins og jafnrétti allra borgara eru í hávegum höfð. Þetta segir franski stjórnmálaheimspekingurinn Blandine Kriegel, en hún hefur á síðustu árum starfað sem sérstakur ráðgjafi Jacques Chirac Frakklandsforseta í málefnum innflytjenda og er formaður ráðgjafarnefndar frönsku ríkisstjórnarinnar um aðlögun fólks af erlendum uppruna að frönsku samfélagi. Kriegel flytur einn af aðalfyrirlestrunum á málþingi sem haldið er til heiðurs Vigdísi Finnbogadóttur, fyrrverandi forseta, en það fer fram í Háskóla Íslands í dag og á morgun. Fyrirlestur Kriegel fjallar um stefnu Frakka í trúmálum. "Lögin hafa sannað gildi sitt," segir Kriegel, spurð um reynsluna af "slæðubanninu". "Áður en lögin tóku gildi fóru um 1.500 stúlkur fram á að fá að ganga áfram með slæðu [í ríkisreknum skólum Frakklands] - en á þessu fyrsta gildisári bannsins hafa aðeins 48 beiðnir um undanþágu komið fram," bendir Kriegel á sem dæmi um árangurinn. Hún segir góða sátt hafa náðst um þessa ráðstöfun. Kriegel útskýrir að í sögu Evrópulanda hafi mismunandi lausnir verið fundnar til lausnar á átökum ólíkra trúarhópa. Í Hollandi, Bretlandi og almennt í Norður-Evrópu hafi einn ráðandi siður orðið ofan á en minnihlutahópum tryggður réttur til að iðka sinn sið í friði, í nafni trúfrelsis, réttarríkis og umburðarlyndis. Í Frakklandi hafi hins vegar hreyfingar kaþólskra og mótmælenda verið báðar það jafnöflugar, að á sínum tíma hafi náðst samkomulag um að halda hinu opinbera rými sem hlutlausu svæði í trúmálum. Um hið opinbera rými, þar á meðal ríkisrekna skóla, setti ríkisvaldið reglur sem tæki mið af þessu. Enn þann dag í dag væri samstaða um þessa grundvallarreglu meðal Frakka. Og Kriegel segir hana hjálpa innflytjendum úr ólíkum menningarheimi að temja sér virðingu fyrir hinum frjálslyndu gildum frönsku stjórnarskrárinnar, til dæmis hjálpi það múslimskum karlmönnum að virða eiginkonur sínar og dætur sem jafnréttháa einstaklinga - að minnsta kosti í hinu opinbera rými.
Erlent Fréttir Mest lesið „Lygaáróðursherferð af hálfu pólitískra andstæðinga“ Innlent Allir Bretar fæddir eftir 2008 í lífstíðarbann frá tóbaki Erlent Fiskflutningabíll valt á Þorlákshafnarvegi Innlent Þriðji þingmaðurinn segir af sér á viku Erlent Vilja tæpar tvö hundruð billjónir til varnarmála Erlent Tveir flokkar í Garðabæ útiloka samstarf Innlent Hætta að styrkja Feneyjartvíæringinn vegna þátttöku Rússa Erlent Ingó veðurguð hefur fengið meira en nóg Innlent Greinir frá nauðgun eftir sýningu í Þjóðleikhúsinu Innlent Við þurfum að vera tilbúin að takast á við eldgosavá Innlent Fleiri fréttir Vilja senda afganska bandamenn og fjölskyldur til Kongó Hætta að styrkja Feneyjartvíæringinn vegna þátttöku Rússa Vilja tæpar tvö hundruð billjónir til varnarmála Allir Bretar fæddir eftir 2008 í lífstíðarbann frá tóbaki Framlengir vopnahléið og herkvína Þriðji þingmaðurinn segir af sér á viku Viðræður enn á ís vegna „óásættanlegrar“ hegðunar Ein hinsta ósk Frans páfa enn óuppfyllt „Jæja, herra Heuermann. Mér skilst að þú hyggist játa fyrir mér þessi morð?“ Starmer vissi ekkert en þrýstingurinn mikill að gefa Mandelson grænt ljós Skaut ferðamann til bana við mexíkóskan pýramída Friðurinn úti á morgun en ekkert ákveðið um viðræður Óttast enn stærri skjálfta í Japan á næstu dögum Vilja festa símabannið í lög Vill þrjátíu milljarða vegna fyllerísfréttar D4vid ákærður fyrir að myrða táningsstúlku Utankjörfundur fer vel af stað og fylgið að setjast Stór skálfti í Japan og flóðbylgjuviðvörun gefin út Bandamaður Rússa vann stórsigur í Búlgaríu Faðirinn skaut sjö börn sín til bana og eitt til viðbótar Starmer á leið á átakafund í þinginu Stjórnvöld í Tehran sögð orðin afhuga samningaviðræðum Barist á hafi úti Átta börn látin eftir skotárás „Það er kominn tími til að binda endi á drápsvél Íran“ Klukkan tifar og enn langt í land Að minnsta kosti sex látnir eftir gíslatöku í matvöruverslun Gámaskip Samskipa bilaði við Færeyjar Trump segir Írani krúttlega og þeir geti ekki kúgað Bandaríkin Fimm látnir eftir skotárás í Kænugarði Sjá meira