Banvæn veira send fyrir mistök 13. apríl 2005 00:01
Algengt er að hættuleg veiruefni séu send á milli rannsóknarstofa, jafnvel heimshorna á milli. Stórhættuleg flensuveira, sem hægt væri að nota til að búa til banvæn sýklavopn, var þannig send frá Bandaríkjunum til alls átján landa. Nú vilja yfirvöld að þessari veiru verði eytt. Bandarískir meinafræðingar sendu sýnishorn af svokallaðri Asíuinflúensu til alls 3700 rannsóknarstofa í átján löndum en þessi flensa olli heimsfaraldri árið 1957 þegar allt að fjórar milljónir manna létust af hennar völdum. Haraldur Briem sóttvarnarlæknir segir algengt að svona sýnishorn séu send landa á milli. Rannsóknarstofur um allan heim noti sýnishornin til að búa til prófefni svo þær geti greint þessar veirur, ef svo vildi til að þær gerðu vart við sig. Þetta veirutilfelli er hins vegar sérstaklega hættulegt þar sem þessi flensa hefur ekki stungið sér niður í áratugi og ekkert mótefni er til gegn henni. Klaus Stohr, inflúensusérfræðingu WHO, Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar, segir veiruna auðveldlega geta borist auðveldlega manna á milli. Og hann segir þá sem fæddir séu eftir 1968 hafa ekkert ónæmi fyrir henni. Aðaláhyggjurnar eru hins vegar þær að óprúttnir aðilar eða hryðjuverkahópar komist yfir þessa veiru og noti hana til að búa til einhvers konar sýklavopn því þá væri voðinn vís. Ísland er ekki meðal þeirra landa sem fengu veiruna senda, en um það skapaðist örlítill ruglingur á fréttamannafundi hjá Alþjóðaheilbrigðismálastofnuninni í dag. Stohr las þá upp þau sextán lönd sem fengið hafa veiruna senda og nefndi Ísland þegar hann ætlaði að segja Ísrael. Hann leiðrétti sig svo eftir ábendingu aðstoðarmanns.
Erlent Fréttir Mest lesið Íbúar miður sín og fuglalíf nær allt farið Innlent Vaktin: Hildur valdi Viðreisn og Framsókn Innlent Reyndi að fá Miðflokk með og segir stöðu Ara ekki friðþægingu Innlent „Þetta vita Einar og Björg“ Innlent Svona kynntu oddvitarnir nýjan meirihluta í Viðey Innlent Hannes Valle fær þrjú ár fyrir brot á Múlaborg Innlent Býr sig undir það versta en vonar það besta Innlent „Ákveðin svik við úrslit kosninganna“ Innlent Sjálfstæðisflokkur, Viðreisn og Framsókn mynda meirihluta Innlent Breytingum fórnað fyrir starfsfrið: „Friðjónslínan“ hafi ráðið för Innlent Fleiri fréttir Fundust eftir að hafa verið föst í helli í viku Lenda þremur geimförum á tunglinu á þessu ári Trump-liði vann og Demókratar fagna Hörðustu árásir á Líbanon í langan tíma Hótel í fullum rétti að neita konu um kranavatn Bardagabúr rís við Hvíta húsið Skugganefndir styðja umdeilda Demókrata Kalla rússneska sendiherra á teppið vegna hótana Gera almenningssamgöngur ódýrari vegna olíukreppunnar Fleiri „brúðir-ISIS“ lenda í Ástralíu Ráðist á heilbrigðisstarfsmenn í ebólu-faraldri Æfðu árás á Suður-Kóreu Fjögur látin í árekstri skólarútu og lestar Hóta frekari árásum og hvetja sendifulltrúa til að flýja Kænugarð Bandaríkjaher gerði árásir á írönsk skotmörk í dag þrátt fyrir vopnahlé Margrét Þórhildur aftur inn á sjúkrahús Hitamet í maí slegið í Bretlandi Tæplega tuttugu fluttir á sjúkrahús vegna óþefs Rubio vongóður um vopnahlé Arftaki 757 aftur á teikniborði Boeing Trump vill ekki flýta sér Ofurhljóðfrárri eldflaug skotið að Úkraínu Meintur byssumaður 21 árs góðkunningi leyniþjónustunnar Skothvellir við Hvíta húsið Bandarískir sendimenn mælist til þess að Trump sé hunsaður Mjakist nær samkomulagi Kratar fá umboðið á ný og hyggja á miðjuvinstri stjórn Níutíu látnir eftir sprengingu í kolanámu Spjallað í Reykjavík á meðan drónarnir dynja á Kænugarði Sprengdu fljúgandi furðuhlut í loft upp Sjá meira