Ísland sem bjargvættur ESB? 19. apríl 2005 00:01
Gætu Íslendingar séð Evrópusambandinu fyrir neyðarleið út úr þeirri kreppu sem upp kæmi ef Frakkar höfnuðu stjórnarskrársáttmála sambandsins í þjóðaratkvæðagreiðslu? Að þessu spyr leiðarahöfundur Financial Times í gær. Þannig er mál með vexti að staðfesti ekki allar hinar 25 núverandi aðildarþjóðir Evrópusambandsins stjórnarskrársáttmálann - sem í daglegu tali er oft kallaður stjórnarskrá en er í raun aðeins nýjasta uppfærsla stofnsáttmála ESB - getur hann ekki gengið í gildi. Lögformlega þyrfti því að endurtaka allt ferlið, kalla saman nýja ríkjaráðstefnu, ná nýjum málamiðlunum og fá útkomuna samþykkta af þingum og þjóðum aðildarríkjanna. Þetta tæki mörg ár. Þegar skoðanakannanir benda til að franskir kjósendur muni í atkvæðagreiðslu í lok maí hafna staðfestingu sáttmálans leita embættismenn ESB að leiðum til að koma þrátt fyrir það mikilvægustu uppfærslunum á stjórnkerfi ESB í gildi. Ein þessara hugsanlegu leiða væri að bæta þessum uppfærsluákvæðum við næsta nýja aðildarsamning. Þetta var leið sem fyrst kom til umræðu eftir að naumur meirihluti þeirra sem tóku þátt í þjóðaratkvæðagreiðslu á Írlandi höfnuðu árið 2001 svonefndum Nice-sáttmála, síðustu uppfærslu stofnsáttmálans fyrir stjórnarskrársáttmálann. En nú vill svo til að búið er að ganga frá aðildarsamningum Rúmeníu og Búlgaríu - utanríkisráðherrar sambandsins munu undirrita þá þann 25. þessa mánaðar. Næstu lönd í biðröðinni eru lönd eins og Króatía, Albanía og Tyrkland, og ekkert þeirra er líklegt til að ljúka aðildarsamningum fyrr en í fyrsta lagi árið 2009. Að sögn Financial Times horfa því sumir í Brussel vonaraugum til Íslands, sem er nú þegar það vel aðlagað ESB í gegnum EES-aðildina, að það gæti tekið stuttan tíma að ganga frá samningum um fulla aðild landsins. Með þeim samningum gæfist tækifæri til að koma nauðsynlegustu stofnsáttmálauppfærslunum í gagnið fyrr en ella. Leiðaranum lýkur á orðunum: "En væri Ísland tilbúið að taka slaginn? Ef eyþjóðin gæti boðið ESB lausn á stjórnskipunarvanda sínum kynnu ráðamenn þess að gera henni tilboð sem hún gæti ekki hafnað. Íslensku fiskimiðin yrðu örugg enn um sinn."
Erlent Fréttir Mest lesið Kviðdómandi neitar að fylgja reglum um sönnunarbyrði Erlent Vilja að heimskortið sýni Afríku í réttum hlutföllum Erlent Skrifað undir viljayfirlýsingu vegna jarðganga til Eyja Innlent Eyvindur P. Eiríksson látinn Innlent Fegursta flugvél Íslands rifin Innlent Segir Repúblikönum að tala meira um afrek hans Erlent Tveimur bjargað úr göngum níu dögum eftir skyndiflóðin Erlent Einn enn með stöðu sakbornings vegna E. coli sýkingar á Mánagarði Innlent Óttast að yfir áttatíu hafi farist Erlent Túlkunaratriði hvað eigi að gera við umsóknina Innlent Fleiri fréttir Ákærður fyrir að brjóta á börnum Vilja að heimskortið sýni Afríku í réttum hlutföllum Grænlendingar fá fría læknisþjónustu í Danmörku Kviðdómandi neitar að fylgja reglum um sönnunarbyrði Tveimur bjargað úr göngum níu dögum eftir skyndiflóðin Óttast að yfir áttatíu hafi farist Segir Repúblikönum að tala meira um afrek hans Ásakanir á víxl milli leyniþjónusta eftir skothríð í Kænugarði Sakaskrá fjölda glæpamanna óvart hreinsuð Ungmenni drepin og þorp rifið á Vesturbakkanum Hefja síðasta áfanga ferðarinnar til Merkúrs Kviðdómendur fá síðasta séns Trump má enn ekki meina börnum um ríkisborgararétt Kyrrsetja grunsamlegt rússneskt skip á Svalbarða NATO og ESB ætli að bregðast við auknu gáleysi Rússa Eitraður reykjarmökkur veldur vandræðum í Suðaustur-Asíu Vonast til að geta haldið árásum í lágmarki fram yfir kosningar Trump um Harry og Meghan: „Ég var enginn aðdáandi“ Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Spyr hvort breyta ætti heitinu í Trumpsund Vita hverjir drónamennirnir í Leipzig eru Úkraínumenn skiptust á skotum í Kænugarði Løkke kallar rússneska sendiherrann á teppið Útséð um að markmið Parísarsamkomulagsins náist Pútín segir Rússland vera að vinna stríðið Myrt í tilefnislausri stunguárás á Times Square Neitar að hafa myrt Charlie Kirk Átökin við Persaflóa stigmagnast á ný Munu verja hagsmuni sína á norðurslóðum „með öllum ráðum“ Sjá meira