Vargöldin heldur áfram 21. apríl 2005 00:01
Ellefu manns fórust í Írak í gær þegar flugskeytum var skotið á þyrlu þeirra. Auk þess var forsætisráðherra írösku bráðabirgðastjórnarinnar sýnt banatilræði. Áhyggjur manna af átökum trúarhópa í landinu fara vaxandi. Ekkert lát virðist á voðaverkum í Írak. Í gær var flugskeytum skotið að þyrlu norður af Bagdad með þeim afleiðingum að allir farþegar hennar fórust. Þar á meðal voru þrír Búlgarir sem flugu vélinni og sex Bandaríkjamenn sem voru verktakar hjá bandarísku öryggisfyrirtæki. Þeir voru á leiðinni til borgarinnar Tikrit. Enginn hefur lýst ábyrgð á verknaðinum á hendur sér. Miðvikudagurinn var ekki síður blóðugur en þá fórust 13 manns í tilræðum víða um land, auk 21 sem særðist illa. Einni sprengjuárásinni var beint gegn bílalest Iyad Allawi, forsætisráðherra bráðabirgðastjórnarinnar, en hann slapp ómeiddur. Fylgismenn al-Kaída í Írak lýstu því yfir í kjölfarið að þeir hefðu verið að verki. "Allawi slapp, en þótt ein ör missir marks þá eru margar eftir í örvamælinum," sagði á vefsíðu þeirra. Kennsl hafa verið borin á lík 19 manna sem fundust á íþróttavelli nálægt höfuðborginni en þeir höfðu verið teknir af lífi. Ólíkt því sem talið var í fyrstu þá voru mennirnir ekki hermenn heldur fiskimenn sem ætluðu að halda upp á afmæli spámannsins. Ekki er vitað hver var að verki. Írakar eru orðnir óþreyjufullir eftir að stjórnmálamenn þeirra myndi starfhæfa ríkisstjórn. Tilkynna átti um myndun hennar í gær en því hefur enn verið frestað. Óttast er að upp úr sé að sjóða í samskiptum trúarhópa í landinu og gaf líkfundurinn í Tígris í vikubyrjun þeim röddum byr undir báða vængi. Þá fundust lík af 50 sjíum sem hafði verið rænt í bænum Madain. Þó hefur verið á það bent að harkalegar aðgerðir stjórnvalda gegn gíslatökumönnunum geti hafa leitt til óðagots í þeirra röðum með þessum hörmulegu afleiðingum. Almenningur virðist enn sem komið er ekki ætla að láta draga sig út í trúarbragðastyrjöld, á þessari stundu eru það aðeins öfgahópar sem reyna að spilla friðnum.
Erlent Fréttir Mest lesið Kviðdómandi neitar að fylgja reglum um sönnunarbyrði Erlent Vilja að heimskortið sýni Afríku í réttum hlutföllum Erlent Eyvindur P. Eiríksson látinn Innlent Skrifað undir viljayfirlýsingu vegna jarðganga til Eyja Innlent Fegursta flugvél Íslands rifin Innlent Ákærður fyrir að brjóta á börnum Erlent Segir Repúblikönum að tala meira um afrek hans Erlent Tveimur bjargað úr göngum níu dögum eftir skyndiflóðin Erlent Einn enn með stöðu sakbornings vegna E. coli sýkingar á Mánagarði Innlent Óttast að yfir áttatíu hafi farist Erlent Fleiri fréttir Ákærður fyrir að brjóta á börnum Vilja að heimskortið sýni Afríku í réttum hlutföllum Grænlendingar fá fría læknisþjónustu í Danmörku Kviðdómandi neitar að fylgja reglum um sönnunarbyrði Tveimur bjargað úr göngum níu dögum eftir skyndiflóðin Óttast að yfir áttatíu hafi farist Segir Repúblikönum að tala meira um afrek hans Ásakanir á víxl milli leyniþjónusta eftir skothríð í Kænugarði Sakaskrá fjölda glæpamanna óvart hreinsuð Ungmenni drepin og þorp rifið á Vesturbakkanum Hefja síðasta áfanga ferðarinnar til Merkúrs Kviðdómendur fá síðasta séns Trump má enn ekki meina börnum um ríkisborgararétt Kyrrsetja grunsamlegt rússneskt skip á Svalbarða NATO og ESB ætli að bregðast við auknu gáleysi Rússa Eitraður reykjarmökkur veldur vandræðum í Suðaustur-Asíu Vonast til að geta haldið árásum í lágmarki fram yfir kosningar Trump um Harry og Meghan: „Ég var enginn aðdáandi“ Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Spyr hvort breyta ætti heitinu í Trumpsund Vita hverjir drónamennirnir í Leipzig eru Úkraínumenn skiptust á skotum í Kænugarði Løkke kallar rússneska sendiherrann á teppið Útséð um að markmið Parísarsamkomulagsins náist Pútín segir Rússland vera að vinna stríðið Myrt í tilefnislausri stunguárás á Times Square Neitar að hafa myrt Charlie Kirk Átökin við Persaflóa stigmagnast á ný Munu verja hagsmuni sína á norðurslóðum „með öllum ráðum“ Sjá meira