Vonast til að halda embætti 21. apríl 2005 00:01
Silvio Berlusconi vonast enn til að halda forsætisráðherraembættinu á Ítalíu en forseti landsins kannar hvort hann nýtur til þess stuðnings. Fleiri vandamál blasa þó við Berlusconi en hugsanlegar þingkosningar. Carlo Azeglio Ciampi, forseti Ítalíu, ræddi í morgun við fulltrúa allra flokka á ítalska þinginu til að reyna að skera úr um hvort að Silvio Berlusconi nyti nægilegs stuðnings til að fá umboð til stjórnarmyndunar á ný. Berlusconi sagði af sér embætti í gær en vill mynda nýja stjórn með sömu flokkum og mynduðu fyrri stjórnina. Sjálfur lítur hann þó ekki á þetta sem hefðbundna afsögn heldur þurfti hann að segja af sér þar sem til stóð að stokka stjórnina verulega upp. Komist Ciampi að þeirri niðurstöðu að Berlusconi njóti ekki nægilegs stuðnings til að mynda nýja stjórn er hann neyddur til þess að efna til þingkosninga. Vinsældir Berlusconis hafa dalað verulega og því er hann ekki spenntur fyrir kosningum. Almennt er búist við því að Berlusconi fái vilja sínum framgengt. En þar með lýkur vandræðum hans ekki því dómstóll Evrópusambandsins ætlar að fjalla um ítölsk lög sem haldið er fram að heimili bókhaldsfals upp að vissu marki. Fullyrt er að þau lög séu sniðin að þörfum Berlusconis sjálfs sem er auðugasti maður Ítalíu og einn umsvifamesti kaupsýslumaður landins.
Erlent Fréttir Mest lesið Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Innlent Athafnamaður sagður handtekinn í Leifsstöð Innlent Slitu samstarfinu vegna trúnaðarbrests „sem ekki var hægt að líta framhjá“ Innlent Handtekin í Bandaríkjunum grunuð um njósnir Erlent Vann óvæntan sigur í fyrri umferðinni Erlent Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Innlent Meirihlutinn sprakk eftir fjóra mánuði Innlent Fluttu allar sprengjuflugvélar frá RAF Fairford Erlent Skólabörn sáu nakinn hótelgest úr skólastofunni Innlent Tveir komnir með höfuðið inn um gluggann Innlent Fleiri fréttir Fá Nóbelsverðlaun fyrir uppgötvun á ljósstýrðri erfðatækni Fluttu allar sprengjuflugvélar frá RAF Fairford Bein útsending: Hver hlýtur Nóbelsverðlaunin í læknisfræði? Höfðar mál gegn lögreglunni vegna húsleitarinnar Vann óvæntan sigur í fyrri umferðinni Boðaði óvænt þingkosningar á Spáni Stofnar „Ofurgreindarstjórnina“ þrátt fyrir ákall um hægari þróun Handtekin í Bandaríkjunum grunuð um njósnir Sýknaður eftir að hafa skotið mann til bana í dyragættinni Hyggst ná öllu landsvæðinu af Hútum Öryggisstjóri segir af sér hjá OpenAI Gerðu árás skömmu eftir að Þýskalandskanslari mætti Mennirnir sem létust voru feðgar Yfir fimm þúsund handteknir í frönsku stúdentamótmælunum Hluturinn sem fannst í sjónum reyndist meinlaus Rektor Cornell-háskóla rýfur þögnina Tveir látnir eftir skotárás í Noregi Fundið brak úr flugvélinni sem týndist á leið frá Bermúda Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Þúsundir manna mótmæla í 50 borgum Samgöngur í lamasessi eftir enn eina árás á brú Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Keyrði inn í mannfjölda norður af Sydney Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Menntaskólanemar mótmæla: Íslensk stúlka varð fyrir táragasi Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Fær umboðið í fangið fjórum dögum eftir uppgjöf Skipar sérstakan saksóknara vegna hópnauðgunar við Cornell-háskóla Boðaði ríkisstjórn á fund vegna mótmæla nemenda Sjá meira